Vikan

Eksemplar

Vikan - 18.09.1986, Side 51

Vikan - 18.09.1986, Side 51
P 0 S T U R LEKANDI Ágæti Póstur. Mig langar til að fá að vita eitthvað um lekanda. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég held að ég sé haldinn þeim kvilla. Hver eru einkenni þessa sjúkdóms og hven- ær koma þau í Ijós? Svo væru allar aðrar upplýsingar varðandi lekanda mjög vel þegnar. Að lokum, hvert á maður að fara til að fá lækningu? Takk fyrir birtinguna. Einn áhyggjufullur. Einkenni iekanda eru sviði í þvagrás og siimkennd eða graftarkennd útferð. Algeng- ast er að einkennin komi í Ijós tveimur til sjö dögum eftir smitun en stundum koma þau ekki fyrr en þremur vikum eftir smitun eða seinna. Og smitun á sér nær eingöngu stað við samfarir. Ef þessi einkenni hafa komið fram hjá þér skaltu drjfa þig til læknis. Ef menn fá ekki lækningu í tæka tíð geta afleiðingarnar orð- ið bólgur i sáðgöngum, eistum og blöðru- hálskirtli auk þess sem menn geta orðið ófrjóir. Húð- og kynsjúkdómadeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur annast þá er hafa fengið kynsjúkdóma og þangað skalt þú fara og leita þér lækningar. ÞROSKA- ÞJÁLFUN Kæri Póstur. Við erum hér tvær vinkonur sem búum úti á landi. nánar tiltekið á Vestfjörðum. Við höfum mikinn áhuga á að læra þroskaþjálf- un. Við vitum að starfandi er í Reykjavík Þroskaþjálfaskóli íslands en síðan vitum við ekki meir. Þess vegna ákváðum við að skrifa þér og biðja þig að svara nokkrum spurning- um fyrir okkur. Hér koma þær: 1. Hver eru inntökuskilyrði í skólann? 2. Hvað er þetta langt nám? 3. Hvernig er náminu háttað? Við vonum að þú svarir þessu fyrir okkur. Allaraðrarupplýsingarværu líka vel þegnar. í von um birtingu. Hulda og Jóhanna. Inntökuskilyrðin í Þroskaþjálfaskólann eru stúdentspróf en þó erannað nám viðurkennt ef skólastjórnin metur það gilt. Auk þessa verðið þið að vera orðnar átján ára gamlar til þess að komast inn í skólann og að hafa starfað i að minnsta kosti sex mánuði á stofn- un með fötluðum. Námið tekur þrjú ár. Námið skiptist í bóklegan og verklegan þátt. Bóklegu greinarnar skiptast í uppeldis- og heilbrigðisgreinar. Mesta vægi uppeldis- greina hafa sálfræði og fræðsla um vangefni. En lyfjafræði, líkamsþjálfun, heilbrigð/sfræði og hreyfiþroski hafa mest vægi í heilbrigðis- greinunum. Verklega námið fer fram á ýmsum stofnunum, bæði hælum og heimil- um fyrir vangefna, sérskólum og fleiri stofnunum um alltland. Skólinn ræðurnem- endum sínum leiðbeinendur á hverjum verknámsstað. Bóklega námið er um það bil 2/3 af námstímanum en verklega námið 1/3. Þroskaþjálfaskólinn auglýsir eftir umsókn- um um skólavist á vorin og fást umsóknar- eyðublöð á skrifstofu skólans. Þá er bara að bíða til næsta vors og sækja um ef þið haf- ið aldur og menntun til þess. VINKONUR HRIFNAR AF SAMA STRÁKNUM Halló Póstur. Við vinkonurnar eigum við mjög alvarlegt vandamál að stríða, nefnilega það að við erum að deyja úr ást sem er í sjálfu sér OK en málið er bara það að það er sami strákur- inn. Þetta hefur gengíð svona lengi og hvorug getur hætt að hugsa um hann því hann er svo æðislegur. Þá er það hitt vanda- málið. Við erum með það nokkurn veginn á hreinu að hann sé ekki hrifinn af okkur. að minnsta kosti veitir hann okkur enga sér- staka athygli. Elsku, besti Póstur, hvað eigum við að gera? Við getum ekki hætt að hugsa um hann hvað sem við reynum og svo þýðir það nú lítið að vera báðar hrifnar af honum. Þú verður að svara okkur. Þetta getur stundum verið vandamál hjá vinkonum. það erað segja að þær séu hrifn- ar af sama stráknum. Það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt þarsem vinkonur hafa gjarn- an mjög svipaðan smekk. Það segir sig samt sjálft að það dæmi gengur varla upp þar sem strákurinn hefði líklega nóg með aðra ykkar. Nú segist þið vera með það nokkurn veginn á hreinu að hann sé ekki hrifinn af ykkur. Þið ættuð samt að ganga algjörlega úr skugga um það og fá til dæmis þriðju vin- konuna til að spyrja hann. En áður en það verður gert verðið þið að tala út um málin svo ekki verði úr leiðindi eða vinslit milli ykkar ef strákurinn skyldi nú vera hrifinn af annarri ykkar. Það er um að gera að fá þetta á hreint svo að þið getið snúið ykkur að öðrum sætum og skemmtilegum strákum ef þessi hefur engan áhuga eftiralltsaman. PENNAVINIR Rune Syvertsen Vibeveien 2 4500 Mandal Norge Rune er 23 ára gamall. Áhugamál hans eru Ijómyndun, tónlist, ferðalög og bréfa- skriftir. Hann leitar að pennavinum á aldrin- um 18-24 ára sem skrifa á ensku og norsku. Minna Isomáki Puistotie 1c 53900 Lappeenranta Finland Minna er 20 ára gömul og vill skrifast á við fólk út um allan heim. Áhugamál hennar eru tónlist, dans, bréfaskriftir og margt fleira. Hún leitar að pennavinum á aldrinum 17-23 ára sem skrifa á ensku. Zbigniew Dudkiéwicz Sadowie 7 32-093 Goszcza Poland Zbigniew er 26 ára gamall, einhleypur læknir. Hann safnar frimerkjum og póstkort- um og hefuráhuga á iþróttum, kvikmyndum og karate. Hann skrifará ensku og esperanto. Heather Dillon 48 Henry Street Gunnedah, NSW 2380 Australia Heather er 27 ára gömul hjúkrunarkona. Áhugamál hennar eru eldamennska, ferða- lög, sund og göngutúrar. Johan Hagerborg Borghamnsgatan 8 S-421 66 V. Frölunda Sverige Johan er 16 ára gamall. Hann hefur mik- inn áhuga á að komast í samband við islenska pennavini. 38. TBL VIKAN 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.