Vikan


Vikan - 15.01.1987, Síða 13

Vikan - 15.01.1987, Síða 13
ekki eftir neinu ákveðnu atriði öðru fremur sem sýndi mína hæfileika. Ég man varla eftir mér öðruvísi en spilandi. Faðir minn fór oft með mig á önnur heimili til að leika og æfa. Á þann hátt kynntist ég mörgu góðu fólki." - Það hefur verið sagt að faðir þinn hafi verið mjög strangur kennari og alls ekki sam- boðinn þér. . . „Já, það er rétt. En sem betur fer kynntist ég fljótlega gamla hirðorganleikaranum van der Eeden. Hann kenndi mér margt og við vorum góðir vinir." Og þú kynntist fleiri tónlistarmönnum á unga aldri, er ekki svo? „Tobías Friðrik Pfeiffer var leikari í þjóðleik- húsi því sem Maximilian Friðrik setti á fót. Pfeiffer var jafnframt mikilhæfur tónlistar- maður. Hann spilaði á klaver. Stundum lék hann á flautu. Én ég man að alltaf þurfti að biðja hann lengi áður en hann lét til leiðast að gera það. Við spiluðum stundum saman og hann kenndi mér þónokkuð. Ég eyddi líka mörgum stundum við orgelið í fransiskus- klaustrinu." - En svo kom til Bonn maður að nafni Christian Gottlob Neefe, var hann þinn fyrsti raunveruiegi kennari? „Já. hann var það. Hann var stórkostlegur tónlistarmaður á sviði söngleikja og sönglaga. En hann var líka skáld. Hann hafði einstaka hæfileika og var vökull með afbrigðum þegar um var að ræða listræna atburði. Hann var ekki bara kennari minn í hefðbundnum skiln- ingi. Hann sýndi mér líka alls kyns nýmæli og opnaði augu mín fyrir ýmsu. Hann kenndi mér jafnframt hversu mikið væri hægt að læra af listrænum sjálfsaga." „Þegar þú dvaldist við hirð Max Franz voru þar margir rökræðuglaðir mcnn. Hlust- aðir þú oft á þá? „Já, það gerði ég svo sannarlega. Þar fóru fram hinar merkustu umræður. Það var skipst á skoðunum um K.ant og Göthe. Og þar beindu menn sjónum að því nýja, eins og þeir sem höfðu áhuga á leiklist og tónlist gerðu líka. Annar staður í borginni, þar sem mikið var rökrætt, var hús Breuning fjölskyldunnar. Þar var ég oft og talaði bæði við frú Breuning og aðra. Ég kenndi börnum hennar og okkur kom mjög vel saman. Það gerðist hins vegar stundum að ég fékk hin svokölluðu „köst" mín. En frúin var einstaklega skilningsrík kona. Hún umbar þetta. Börn hennar voru næstum eins og systkini mín. Vinátta og tryggð við vini mína er mér afskaplega mikil- væg. Ég þjáist mikið ef eitthvað eyðileggur vináttuböndin." - Móðir þín lést árið 1787, hvernig tókst þú þeim atburði? „Eg var yfirbugaður af sorg. Móðir mín hafði alltaf reynst mér einstaklega vel. Hún var góður vinur minn og stoð þegar eitthvað bjátaði á. Svo missti ég yngri systur mína. Það var óhugnanlegt. Faðir minn reyndi að drekkja sorgum sínum og sólundaði þannig tekjunum. Það voru miklir erfiðleikar á heim- ili okkar og sorgin kom þar oft við sögu. Ég tók þunga ábyrgðarinnar á mínar herðar." - Getur þú sagt eitthvað frá Vínarferð þinni? „Ég fór til Vínar 1792. Þegar ég kom þang- að var ég þreyttur eftir ferðina en ég var vonglaður. Ég var ekkert frægur þá og ég var líka ókunnugur í þessari stóru borg. Ég ætl- aði bara að vera þar í tvö ár en sú varð ekki raunin. Vín var afskaplega full af lífi. Kjarni hennar bar ennþá svip tignarinnar. Ég var með meðmæli og bréf og ég reyndi að átta mig á þessari borg. Ég fékk að búa hjá prent- ara í útborginni. Það fyrsta sem ég gerði var að heimsækja Haydn. Hann var þá orðinn nokkuð hrumur. Ég naut nokkurrar kennslu hjá honum en það var ekki mikið. Ég samdi fyrstu raunverulegu tónverk mín, píanósónöt- urnar og píanólríóin. Ég tileinkaði þau Haydn. Eg minnist viðbragða hans. Hann sat lengi hugsi en sagði ekkert. Það er nokkuð merkilegt til þess að hugsa að ég kvaddi mér fyrst hljóðs í Vín sem píanóleikari. Þegar ég lagði fram fyrsta tónverk mitt hjá forlagi Cappis breytti það ekki miklu um hugsun manna. Það er miklu auðveldara að grípa hljóðfæraleik heldur en sköpunina sjálfa. Én til allrar hamingju breyttist þetta.“ - Nú langar mig til að biðja þig að tjá þig um viðkvæmt atriði, heyrnarleysið. „Já, heyrnarleysið er svo sannarlega við- kvæmt mál. Ég var frá unga aldri mjög félagslyndur og glaðvær, góðhjartaður og skapheitur. Þegar ég fór f>rst að finna fyrir heyrnarleysinu lét ég ekkert á því bera. Ég þjáðist mikið því ég þurfti að neita mér um ýmislegt sem ég hafði getað leyft mér áður. Myndin sýnir Vín, séö frá Leopoldstadt. (J. Rabl.) Nationalbibliothek, Wien.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.