Vikan


Vikan - 15.01.1987, Síða 14

Vikan - 15.01.1987, Síða 14
Málverk af Beethoven frá 1815. Hann var þá 45 ára. (Willibrod Mehler.) Gesellschaft der Musik- freunde, Wien. Beethoven var 53 ára þegar þessi mynd var máluð. (Ferdinand Waldmuller.) Breitkopf og Hertel. Ég hef alltaf haft dálæti á fínum fötum, sam- kvæmum og glaðværð og ég hef alltaf dáð kvenlega fegurð og yndisþokka. En eftir því sent heyrninni hrakaði dró ég mig smám sam- an út úr samfélaginu. Ég verð þó að viður- kenna að þegar ég var mjög ungur var ég undir áhrifum frá fólki að því leyti að mér fannst hljóðfæraleikurinn svo gífurlega mikil- vægur að hann skyggði á sköpunina. En heyrnarleysið gerði það að verkurn að ég sneri mér gagngert að tónsmíðunum." - Samband þitt við Göthe... „Það var mjög sérstakt. Þegar ég kynnti mér verk Göthes varð ég fyrir einstökum og djúpum áhrifum og þegar ég hitti hann í fyrsta sinn sá ég strax að þessi maður var andlegur jafningi minn. Og það reyndist rétt. Það var mér mikil lyftistöng að fá tækifæri til að kynn- ast honum. En hann var ekki gallalaus fremur en önnur mikilmenni. Hann kunni alltof vel við sig við hirðina, rniklu betur en skáld á að gera. Ég minnist þess að við gengunt saman eitt sinn, þá mættum við hirðmönnum. Göthe hneigði sig djúpt og vék til hliðar. Ég lyfti hins vegar hattinum lítillega. En eins og ég sagði leið mér afskaplega vel með þessum manni enda var hann, eins og ég sagði, andleg- ur jafningi minn. Hann bjó yfir snilligáfu." Hvað vilt þú segja mér um santband þitt við Karl bróðurson þinn? ,,Það samband hefur orðið mér til mikillar ógæfu. Þegar Karl bróðir minn dó breyttist sá bróðurkærleikur, sem ég hafði borið til hans, í föðurlega umhyggju fyrir bróðursyni mínum. Mér þykir afskaplega vænt um hann og hann hjálpaði mér í gegnum mörg erfið tímabil. En það kom að því að allt brast. Það var kvöld eitt að Karl ætlaði að fara út en ég vildi ekki leyfa honum það af ótta við að hann kæmi ekki aftur. Karl brást hinn versti við og sagðist vera heftur af mér. Hann sagði jafnframt að hann þyrfti að grípa til örþrifa- ráða. Og hann hlóð skammbyssu að mér viðstöddum og reyndi að stytta sér aldur. En til allrar hamingju tókst mér að grípa í hönd hans svo skotið geigaði. Þetta var eitt mesta áfall lífs míns.“ Aðalæfingin á Fídelíó var erfið fyrir þig. Hvað gcrðist nákvæmlega? „Ég heimlaði að fá að stjórna æfingunni en ég hefði betur látið það ógert. Ég heyrði ekkerl i söngvurunum. Hljónisveitin fylgdi mér cn söngfólkið fiýtti sér. Allt varð cin ring- ulreiö cn ég áttaði mig ckkert á því. Æfingin var stöðvuð en enginn sagði mér hvers vegna. Við byrjuðum að nýju cn allt fór á sama veg. Ég kallaði á vin minn, Schindler. Hann skrif- aði í bókina mína að ég ælti að hætta strax og að hann myndi útskýra allt seinna. Þegar ég gerði mér Ijóst hvað hafði gerst lagðist ég í mikið þunglyndi." Frumflutningurinn á Fidelíó var að vissu leyti frábrugðinn öðrum frumflutningum á verkum þínum. Hvcrs vcgna? „Þessi ópera, sem reyndar er eina óperan sem ég hef skrifað, var samin við tcxta eftir Sonnleithner. Hún álti að hcita Leónóra en ég breytti því. Það voru ýmis vandræði sem þurfti að leysa áður en hún var flutt. Það var árið 1805. Fólk var ekki í skapi til að hugsa

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.