Vikan


Vikan - 15.01.1987, Blaðsíða 23

Vikan - 15.01.1987, Blaðsíða 23
Myndbönd Umsjón: Hilmar Karlsson Samkvæmt mati House- mans var illa farið með Elvis Presley. Hlutverkin, sem hon- um voru boðin, voru öll þess eðlis að bestu leikarar hefðu ekki getað gert neitt við þau. Hefði hann verið látinn leika lítil en góð hlutverk hefði máttur hans í kvikmyndum orðið mun meiri. Sjálfsagt má endalaust deila um sannleiksgildi kenninga Housemans en ekki er hægt að neita sumum staðreynd- um. Gott dæmi er þegar það fróttist að Tina T urner myndi leika í þriðju myndinni um Mad Max. Skapaði það mikla eftirvæntingu og gekk auglýsingaherferðin aðallega út á að sjálf Tina Turner léki hlutverk í myndinni. Þótt ekki bjargi poppstjörnurnar myndum frá fjárhagslegu tapi vekja þær alltaf mesta at- hygli. David Bowie gat ekki bjargað Labyrinth en hann bjargaði Absolute Beginners og Merry Christmas Mr. Lawrence frá fjárhagslegu hruni. Ekki má gleyma spenningn- unt þegar altalað var að Michael Jackson ætti að leika Pétur Pan. Þegar svo var staðfest að hann myndi ekki leika Pétur Pan hvarf öll umfjöllun um væntanlega mynd af síðum blaða. Það er næsta öruggt að stórstjörnur poppsins vekja mikla athygli á þeirri kvik- mynd sem þær ætla sér að leika í. En fyrst og fremst eru stjörnur þessar söngvarar og því er geta þeirra til að tjá annað yfirleitt takmörkunum háð. Því fer þeim best að vera i litlum en góðurn hlutverkum og láta leikarastjörnur kvik- myndanna um aðalhlutverk- in. YEAR OF THE DRAGON ★★★ Leikstjóri: Michael Cimino. Aöalleikarar: Mickey Rourke, John Lone og Ariane. Sýningartími: 128 min. - Útgefandi: Háskólabíó. Hin magnaða sakamálamynd Michaels Cimino, Year of the Dragon, býður upp á allt það sem spennumynd á að bjóða upp á, hraða atburða- rás, smárómantík og spennuatriði sem taka mörgu fram sem áður hefur verið gert. Þau atrió: eru kannski um leið helsti galli myndarinnar. Cimino veltir sér eins og áður upp úr óhugnaðinum á kostnað heildarinnar. Year of the Dragon fjallar um löggu í New York sem fær það starf að hreinsa til í Kínahverfi borgarinnar. Hann tekur svo rækilega til höndunum að bæði yfinnönnum hans og friðhelgum mafiuforingjum þykir nóg um. Hefst nú einkastríð löggunnar gegn spillingunni sem endar með miklu og blóðugu uppgjöri. Mickey Rourke ferá kostum í hlutverki lögreglumannsins. Það er óhætt að mæla með Year of the Dragon sem einni bestu spennumynd síðasta árs. BACK TO FUTURE ★★★ Leikstjóri: RobertZimeciks. Aöalhiutverk: Michael J. Fox, Christopher Lloyd og Lisa Thompson. Sýningartími: 112 min. - Útgefandi: Laugarásbíó. Tímaferðir hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá rithöfundum sem kvikmynda- framleiðendum. H.G. Wells reið á vaðið með sinni ágætu skáldsögu Tímavélinni. Back to Future fjallar einmitt um ferð aftur í tímann og hún er svo sannarlega vel heppnuð, mynd sem skemmtir áhorfandanum á ein- stakan hátt. Fjallar nryndin um ungling einn sem óvart flýr á bíl sem hefur þann eiginleika að geta farið fram og aftur um aldanna rás. Unglingurinn lendir þrjátíu árurn áður á sama stað sem hann er. Foreldrar hans hafa enn ekki kynnst og óvart verður hann valdur að því að þau hittast ekki á þann máta sent hafði skeð. Drengurinn verður að sjálfsögðu að reyna að bæta úr svo hann geti orðið að veruleika í framtíðinni... Fyrir utan skemmtileg- an söguþráð eru mörg atriði óborganlega fyndin og hjálpa til að gera Back to Future að einni bestu skemmtimynd síðari ára. LAST HARD MEN ★★ Leikstjóri: Andrew McLaglen. Aöalhlutverk: Charlton Heston, James Coburn og Barbara Hershey. Sýningartími: 97 min. - Útgefandi: Steinar hf. The Last Hard Men segir frá tveimur köppum villta vestursins. Annar þeirra hefur setið í fangelsi í mörg ár en tekst að strjúka og hans eina hugs- un er að hefna sín á lögreglustjóra þeim er setti hann inn. En tímarnir hafa breyst. Komin er tuttugasta öldin með allri sinni tækni og ríðandi lögreglur eru deyjandi stétt. Samt er það svo að þegar sakamanninum tekst að ræna dóttur lögreglustjórans, sem kominn er á eftirlaun, þá dugar ekk- ert nema hestarnir í eftirreiðina. The Last Hard Men er gamaldags kúreka- mynd með söguþræði sem allir kannast við. Myndin er aftur á móti vel gerð og þeir Charlton Heston og James Coburn eru góðir í sínum hlutverk- um. Það eru ekki á boðstólum margar myndir úr villta vestrinu og sumir sakna þess ábyggilega. Þeir sömu ættu að vera ánægðir með The Last Hard Men. Hún hefur flest það til að bera sem skreytir góðan vestra. MONTE CARLO OR BUST ★ Leikstjóri: Ken Annakin. Aðalhlutverk: Tony Curtis, Terry Thomas og Susan Hampshire. Sýningartími: 124 mín. - Útgefandi: Háskólabíó. Monte Carlo or Bust gerist í byrjun aldarinnar þegar kappakstur á bílum var aðeins fyrir ævintýramenn. Monte Carlo kappaksturinn er að heíjast og ýmsir skringilegir karakterar ætla sér að vinna keppnina. Og það er svo sannarlega allt reynt til að klekkja á andstæðingnum. Enginn er verri en enski „séntilmaðurinn“ sem Terry Thomas leikur á sinn einkennandi hátt. Monte Carlo or Bust er á köflum nokkuð skemmtileg en verður í heild of langdregin. Mikið er um að notað sé „split screen“ engum til gagns. Það er mikill stjörnufans í myndinni, má þar nefna Tony Curtis, Susan Hamps- hire, Dudley Moore og Peter Cook. Myndin er orðin nokkuð gömul og ber þess merki. I‘ttr lt)ÖH lamkvamt gamla Itigmatinu hf fruiitthufurtnn hnudt ftá til ai hryja /inrtm upp a li/ og tlauAa ■■■ t t gna htitiuri ktmu 3. TBL VIKAN 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.