Vikan - 15.01.1987, Page 30
Kvikmyndahátíðin í Feneyjum
Round Midnight eftir Bernard Tavernier með saxófónsnillingnum Dexter Gordon i aðalhlutverki naut hvað mestra vinsælda gesta á kvik-
myndahátíðinni.
Einsteéur listviðburður
Síðan 1936 hefur kvikmynda-
hátíðin i Feneyjum verið þekkt
fyrir nýsköpun og tilraunir í kvik-
myndagerðarlist.
Það var meðal annars þar sem
Evrópubúar uppgötvuðu jap-
anska kvikmyndagerð, fyrir til-
stuðlan Akiro Kurosawa árið
1949. En þótt hátíðin sé kvik-
myndahátíð hafa fleiri listgreinar
komið við sögu hennar.
Á .árunum eftir 1960 komu
listamenn úr hinum ýmsu greinum
og stóðu fyrir uppákomum.
Salvador Dali málaði gul ljón á
allt svæði hátíðarinnar. Og hann
gerði fleira, eins og að láta sprauta
gulri málningu á nokkra sjálfvilj-
uga kvikmyndahátíðargesti.
En smám saman fékk þessi bylt-
ingargleði og nýhugsun póitíska
slagsíðu sem átti eftir að hafa al-
varlegar afleiðingar.
Árið 1968 var haldinn fundur
undir stóru tré í garðinum fyrir
utan Quattro Fontane hólelið.
Þar voru saman komnir nokkrir
útvaldir menn. Þar voru nteðal
annarra Francois Truffaut, Jean
Luc Godard og Charles Chaplin.
Sá sem stóð fyrir þessum fundi
var ítalski kvikmyndagerðarmað-
urinn Pierre Paolo Pasolini. Hann
tilkynnti fundargestum að nú væri
hátíðin í hættu vegna borgaralegs
snobbs og óæskilegra auðvalds-
afla. Fundargestir voru sammála
þessu og þar með var hátíðin lögð
formlega niður.
Þótt kvikmyndir væru sýndar í
Feneyjum eftir þetta var það ekki
fyrr en árið 1979 sem hátíðin gat
starfað á alþjóðagrundvelli. Hin
feneyska kvikmyndaveisla hafði
lifað af og auk þess haldið heiðrin-
um.
Árið 1986 var hún svo haldin í
43. skipti. Meira en hundrað
myndir voru sýndar þá tíu daga
sem hátíðin stóð yfir og það voru
sextán hundruð blaðamenn frá
allri Evrópu sem fylgdust með
henni.
Mynd sem gerð var um franska
málarann Paul Gauguin vakti
mikla athygli. Hún er árangur
samstarfs Dana og Frakka.
Myndin fjallar um hið litríka líf
sem Gauguin lifði, konurnar í því
og baráttu hans fyrir að öðlast
viðurkenningu sem listamaður í
köldu og óvinveittu santfélagi.
Donald Sutherland leikur lista-
manninn en Daninn Henning
Carlsen er leikstjóri. Myndin hef-
ur hlotið nafnið Oviri - Hinn
villti. Orðið er sótt til Tahiti, þar
sem Gauguin dvaldi hluta úr lífi
sínu. Hann dreymdi einnig um að
geta koniið á fót listamannaný-
lendu þar. Myndin var talin
vænleg til sigurs en henni gekk
ekki vel í keppninni um hið eftir-
sótta gullljón.
Sænska kvikmyndagerðarkon-
an Mai Zetterling sýndi líka mynd
um listamann, sænska rithöfund-
inn Agnes von Krusenstjerna sem
var á sínum tíma einn af mest
gagnrýndu og umtöluðu rithöf-
undum Svíþjóðar.
Sú mynd, sem var einna vinsæl-
ust nteðal gestanna, var Round
Midnight. Það er bresk mynd eft-
30 VI KAN 3. TBL