Vikan - 15.01.1987, Side 46
Hún kom, sá og sigraði þegar hún söng sig
inn í hjörtu fólks. Fyrsta lagið hennar, Saving
All My Love for You, þaut upp vinsældalist-
ana um allan heim. Whitney Houston heitir
hún og hefur verið nefnd arftaki stórstirna
eins og Diönu Ross og Arethu Franklin.
En það er ekki bara röddin sem er stórkost-
leg, Whitney Houston er gullfalleg og í dag,
tuttugu og þriggja ára gömul, er hún marg-
faldur milljónamæringur. Plötur hennar
seljast i milljónum eintaka. Frægð og frami
hefur þó ekki komið fyrirhafnarlaust hjá
henni frekar en flestum í þessum bransa.
Sú staðreynd að hún er frænka hinnar frægu
söngkonu Dianne Warwick hefur ekkert frek-
ar orðið til þess að hjálpa henni á hinni
þyrnum stráðu braut til frægðar.
Whitney Houston fæddist í New Jersey
þann níunda ágúst 1963. Fjölskylda hennar
er mjög trúuð og söngelsk en það tvennt fer
oftast saman hjá blökkumönnum. Móðir
hennar, Cissy, var aðaldrifíjöðrin í söng-
hópnum Sweet Inspiration og um leið tónlist-
arstjóri kórsins í baptistakirkjunni sem
fjölskyldan tilheyrði.
Þegar Whitney var fimmtán ára tók móðir
hennar hana með sér á söngferðalög með
Sweet Inspiration. Það reyndist Whitney góð-
ur skóli. Hún steig sín fyrstu skref á tónlistar-
brautinni sem bakraddarsöngkona hjá
frægum náungum eins og Lou Rawls, Neville
Brothers, Chaka Khan og Material. Árið 1984
var henni boðið að syngja með Teddy Pender-
grass. Það leiddi til þess að Jermaine Jackson
(bróðir hins eina sanna Michaels Jackson og
einn af hinum frægu Jackson Five) söng með
henni Take Good Care of My Heart. Þar
með var Whitney kornin af stað og fyrsti
plötusamningurinn i höfn.
Hún var aðeins þrettán ára þegar hún tók
þá ákvörðun að gerast söngkona. Móðir
hennar bað guð og góðar vættir að hjálpa
sér, lítið hrifin af þessu uppátæki dóttur
sinnar. En eins og góðri móður sæmir studdi
hún dóttur sína í þessari ákvörðun hennar
og hefur reynst henni besti kennari og ómetan-
leg stoð á brautinni til frægðar og frama enda
með langa reynslu að baki í þesum bransa.
En Whitney var skynsamari en svo að hún
færðist of mikið í fang.
Hún lagði til hliðar alla drauma um að slá
í gegn. I stað þess einbeitti hún sér að því að
læra allt sem hún gat og beið þolinmóð eftir
að hennar tími kæmi og hún væri, að eigin
mati, tilbúin að taka stóra stökkið. Sjálf var
hún líklega mest undrandi yfir þeint móttök-
um sem lagið Saving All My Love for You
hlaut, þó hún segi að það hafi að vísu verið
afskaplega þægileg tilfinning að verða heims-
fræg á einni nóttu.
Hún er þegar búin að gefa út eina stóra
plötu sem hefur slegið öll fyrri sölumet. Á
leiðinni er önnur stór plata sem aðdáendur
hennar geta þegar farið að hlakka til að
heyra, en hún kemur út í febrúar næstkom-
andi. Hún vinnur með ýmsum upptökustjór-
um og velur lög sín i samvinnu við þá og
forstjóra hljómplötufyrirtækisins sem hún er
á samningi hjá. Enn hefur hún ekki samið sín
eigin lög en hefur fullan hug á að reyna sig í
því líka. Hún hefur einnig áhuga á að reyna
fyrir sér í kvikmvndum og lítur i raun svo á
að það sé eðlilegt framhald af ferli hennar sem
söngkonu. Reyndar er allt útlit fyrir að aðdá-
endur hennar fái tljótlega að berja hana
augum á hvíta tjaldinu því allt bendir til þess
að hún muni fara með hlutverk Tinu Turner
í kvikmynd sem stendur til að gera um ævi
og feril þeirrar frægu söngkonu.
Hún er þakklát fyrir velgengni sína og
hyggst ekki láta hana stíga sér til höfuðs. I
einu af lögum sínum syngur hún um að það
sé mikilvægast að elska sjálfan sig. í því felst
mikið af hennar eigin lífsspeki því hún er
þeirrar skoðunar að allir þurfi fyrst að kcra
að elska sjálfa sig til að geta elskað aðra.
46 VIKAN 3. TBL