Vikan


Vikan - 15.01.1987, Page 56

Vikan - 15.01.1987, Page 56
GILDIR FYRIR VIKUNA JANÚAR SPÁIN 1 8.-24. HRÚTURINN 21. mars-20. apríl Þú hefur í mörg hom að líta og þér verður mjög í mun að ekki fari fram hjá fólki hversu önnum kafin og mikilvæg persóna þú ert. Þetta er í góðu lagi svo lengi sem bægslagang- urinn keyrir ekki úr hófi og eins ættirðu að gæta að því undir viku- lokin að enginn verði útundan. TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní Eitthvað verður öðruvísi umhorfs hjá þér en vant er og tilveran á nýstárlegum nótum. Þú hefur ekki nema gott af að víkka ögn sjóndeild- arhringinn og hugsa um eitthvað annað en þetta vanabundna og hversdagslega. Hvers konar fjár- hagsáhætta er varasöm. LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst Þú verður ef til vill í einhverjum beyglum og það angrar þig sennilega verulega. Það sem á bjátar er fyrst og fremst frá þér sjálfum runnið og hugarfarið skiptir meginmáli nú sem svo oft áður. Því ættir þú að hafa skynsemina í öndvegi og það er óþarfi að æðrast. VOGIN24.sept.-23.okt. Forðastu krefjandi félagsskap og aðstæður sem koma niður á heimilis- lífinu. Þú mátt ekki við frekari röskun á þeim vígstöðvum og tíma- bært að snúa sér að því að koma á kyrrð þannig að allir megi vel við una. Þótt gaman sé að fagurgala er varasamt að taka hann of hátíðlega. BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des. Mikils er um vert að fara ekki út af strikinu enda sennilegt að stund- argleði hafi einhver eftirköst sem betra væri að vera laus við. Þessu sýnist ekki erfitt að fylgja en samt er það nú svo að búast má við að upp komi þær aðstæður að hægara sé um að tala en í að komast. VATNSBERINN21.jan.-I9.febr. Hafðu hemil á skapsmununum ef þú mögulega getur. Ólíklegustu hlutir munu fara í taugarnar á þér og ef þú skeytir skapi þínu á þeim sem í kringum þig eru tekur langan tíma að jafna málin. Töluð orð verða ekki aftur tekin en þetta gengur yfir fyrr en varir. NAUTIÐ 21. apríl-21. maí Kyrrlátir dagar og ánægjulegir eru fram undan. Þú verður í góðu jafn- vægi og skalt óhikað láta hyggjuvitið ráða gerðum þínum. Hæfileikinn til að miðla öðrum er í hámarki og þess munu margir njóta. Það skilar sér og ef að líkum lætur eflir þetta stöðu þína í félagahópnum. KRABBINN 22. júní-23. júlí Láttu ekki koma þér á óvart þótt einhver skorist úr leik. Þetta getur verið ögrandi fyrir þig en heppileg- ast að hver sjái um sig og þú skalt blanda þér sem minnst í málefni annarra. Álitleg kynni eru í uppsigl- ingu en þó því aðeins að þú sýnir ekki of mikið bráðlæti. MEYJAN 24. ágúst—23. sept. Þér finnst verulega freistandi að láta til þín taka og hefur ráð undir rifi hverju. Sennilega er þó heppilegra fyrir þig að kynna þér hvort aðstoð- ar þinnar er óskað þvi að vera má að viðkomandi þykist fullfær um að bjarga sér. Samt sem áður hlýtur þú að mega hafa þínar skoðanir í friði. SPORDDREKINN 24. okt.-23. nóv. Þér er hollara að byggja á eigin reynslu en láta stöðugt segja þér fyr- ir verkum. Þú getur vel metið aðstæður enda þekkir þú best til og átt mest undirþví að vel takist til. Beittu lagni við að snúa þá af þér sem sífellt vilja blanda sér í þín mál. Miklu skiptir að halda friðinn. STEINGEITIN 22. des.-20.jan. Veltu ekki vöngum yfir því sem ekki er í þínu valdi að breyta. Þú getur ekki búist við að áhrifa þinna gæti langt út fyrir þitt nánasta umhverfi og fleiri eiga hagsmuna að gæta og vilja hafa hönd i bagga. Þrátt fyrir þetta færðu næg tækifæri til að sanna mátt þinnog megin. FISKARNIR 20.febr.-20. mars Láttu ekki aðra hafa of mikil áhrif á þig. Það er þreytandi til lengdar að eiga vellíðan að langmestu leyti undiröðrum komna. Þótteinhver hafi valdið þér vonbrigðum er skað- inn skeður og öllum fyrir bestu að ræða málin fordómalaust til að koma samskiptunum á réttan kjöl. Karlar, sem fæddir eru undir merki steingeitar, sýnast hógvær- ir og hlédrægir. í fljótu bragði virðist ekki skipla þá miklu hvað öðrum kann að finnast um þá en í rauninni eru þeir töluvert hégómlegir og láta sigálit annarra miklu varða. Þeir eru hins vegar ólagnir að taka hrósi, verða oftar en ekki vand- ræðalegir en reyna að breiða yfir það með gríni eðajafnvel háði. Það verður til þess að fólk hikar við að hæla þessum mönnum og þeir fara því gjarnan á mis við þá uppörvun sem þeim er þó svo nauðsynleg. Þeir sem umgangast karlmenn í steingeitarmerkinu ættu að hafa þetta í huga og hika ckki við að hrósa þeim eigi þeir það skilið en láta sig viðbrögðin engu skipta, þau eru sennilega hvort sem er ekki annað en lála- læti. Þessir menn taka oft seint út þroska, eru heimakærir fram eftir aldri en þótt þeir fari rólega af stað ellast þeir með aldri og þroska ogeinkum fer þeitn sífellt fram í mannlegum sam- skiptum. Þeir fara sér hægt í makavali, liggurekkert á, forðast lausung þar sem heimilislífer í þeirra augum næstum heilagt ogeftirað til heimilis hefur verið stofnað kunna þeir manna best að meta fjölskyldulifið. Grái fiðringurinn kann þó að sækja dálítið á þá þegar hans tími rennur upp en þcir eru yfirleitt of raunsæir lil að láta hann raska högum sínum. Þótt steingeitarkarlinn virðist oft á líðum strangur faðir ber hann einlæga umhyggju lyrir börnum sínum og er tilbúinn að vaða eld fyrir þau ef með þarf. 66 VI KAN 3. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.