Vikan


Vikan - 26.02.1987, Page 18

Vikan - 26.02.1987, Page 18
Lesendur skrifa: Æwntýri aprílnætur eftir Sigrúnu Björgvinsdóttur Það gerðist ekkert í tvœr þrjár mínútur og við Dagný vorum að vona að það drœgi úr hríðunum þegar hún var laus við hrist- inginn í bílnum. En sú von brást. Hun fékk harða hríð og greip í hönd mér. Ég sá að það var viðbúið að barnið fœddist áður en hjálpin bœrist. Ég reyndi að hag- rœða henni í sœtinu og færði hana úr nœrbuxum. Það sá þegar á kollinn. Ég vaknaði við að hönd var lögð á öxl mér. Dagný stóð við rúmið. Ég reis upp til hálfs og spurði hálfsof- andi: Hvað? Ertu orðin lasin? Ég held það, sagði hún og gekk út úr herberginu. Ég svipti af mér sæng- inni, greip fötin mín og læddist fram að dyrum, sneri mér við og leit til barnanna. __ Nei, þau höfðu ekki rumskað. Ég lokaði hljóðlega og fór fram í eldhús þar sem Dagný sat. Er það strákurinn? spurði ég. Ég held það, sagði vinkona mín og hló við. Ég vaknaði klukkan hálfeitt og fannst ég fínna verki. Fannst þér þú finna? sagði ég. Sam- kvæmt minni reynslu þarf maður nú ekki að vera í vafa um það. Nei, þetta er líklega vitleysa í mér en ég er samt eitthvað skrítin í bak- inu. Við skulum þá bara hita okkur kaffi og sjá til hvað gerist, sagði ég. En mikið væri nú stráksi góður að koma í páskafríinu. Já, það væri fallega gert af honum, sagði Dagný og hló við aftur. Hún er einstaklega hláturmild, stúlkan sú. Ég tók til kaffið og gaf henni auga. Nei, hún var ekki þessleg að hún væri þjáð. Nú. þetta fór nú venjulega rólega af stað. Hún Dagný hafði verið hjá mér þennan vetur að hugsa um börnin og heimilið á meðan ég var að kenna. Þá heppni að fá hana átti ég strákn- um að þakka. Hefði hann ekki tekið upp á þessum ósköpum, að vilja endi- lega troða sér inn í þennan ómögu- lega heim einmitt núna, þá hefði hún mamma hans getað fengið sér betri vinnu. Þess vegna varð mér oft hugs- að hlýlega til þess litla. Já, við töluðum alltaf um strákinn. Líklega var það af því að Dagný átti eina stúlku fyrir. Jæja, nú finn ég ah'eg greinilegan verk, sagði Dagný. Ég held að það sé best að fara inn eftir. Vilt þú vekja Jökul á meðan ég tek til það sem ég þarf að hafa með mér. Ég gekk upp á efri hæðina og barði hjá Jökli. Hann var kennari við skólann og hafði lofast til að aka Dagnýju á sjúkrahúsið, sem var um fjórtán kíló- rnetra leið. Hann var ekki lenai að 18 VIKAN 9. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.