Vikan - 26.02.1987, Blaðsíða 36
þú ert að byrja á hjá ÍR, við þann tíma sem
þú varst með Haukaliðið?
_„Já, það má gera það. Strákarnir, sem eru
í ÍR-liðinu í dag, og þeir sem voru í Haukalið-
inu, þegar ég var að byrja með það, eiga það
sameiginlegt að hafa fengið góða þjáífun í
yngri flokkum félaganna, aðallega þá hjá
Ingvari Jónssyni í Haukum og Einari Ólafs-
syni hjá ÍR. í ÍR-liðinu er að vísu enginn
Pálmar Sigurðsson en á móti kemur að
breiddin _er töluvert meiri hjá ÍR. Helsti gall-
inn við ÍR-liðið er að núverandi leikmenn
liðsins fengu sína eldskírn í meistaraflokki í
úrvalsdeildinni síðustu tvö árin og þá töpuðu
þeir gífurlega mörgum leikjum. Helsta vanda-
málið hjá mér þessa dagana er að breyta
hugarfari leikmanna og fá þá til að sætta sig
ekki við tap.“
- Telur þú að þú sért með lið í höndunum
sem gæti orðið næsta stórveldið í körfuboltan-
um hér á landi?
„Ég hef oft verið spurður að þessu. Það
verður að taka það fram að helmingur leik-
mannanna í meistaraflokki leikur ennþá í
öðrum flokki. Þetta eru gífurlega efnilegir
strákar sem hægt er að gera mikið úr. Fram-
tíð IR ræðst nær eingöngu af því hvort
leikmenn liðsins standast prófið sem þeir
gangast undir í úrvalsdeildinni næsta vetur.
Ef áhugi strákanna og dugnaður helst þá er
ég sannfærður um að ÍR þarf ekki að kvíða
framtíðinni. Margir leikmenn liðsins hafa tek-
ið ótrúlegum framförum. ÍR-liðið er lang-
yngsta Iiðið sem hefur komið upp í úrvals-
deildina og ef liðið stendur sig vel í
úrvalsdeildinni næsta vetur er það til alls lík-
legt árið þar á eftir.“
Lítill áhugi KKÍ
á landsliðinu
- Lokaspurningum körfuna. Hvererfram-
tíð körfuknattleiksins hér á landi að þínu
mati?
„Það er enginn vafi á því að ungir leik-
menn, sem voru í mikilli framför þegar
bandarískir leikmenn léku hér á landi, eru
kjarninn í landsliði okkar í dag og ég held
að mér sé óhætt að fullyrða að við höfum
aldrei átt betra landslið en einmitt núna.
Fjöldi áhugasamra manna vinnur í kringum
landsliðið en gengur auðvitað erfiðlega í öflun
peninga. Styrkurinn frá Körfuknattleikssam-
bandinu er litlar þrjú hundruð þúsund krónur
og sú upphæð dugar ekki fyrir einni utan-
landsferð. Það er ömurlegt til þess að vita að
enn eru til dragbítar sem horfa í hverja krónu
sem fer til landsliðsins. Þessir menn skilja
ekki að grundvöllur fyrir góðum árangri okk-
ar í körfuknattleik er að eiga gott landslið.
Forysta Handknattleikssambandsins hefur
þegar gert sér grein fyrir þessu og árangurinn
þekkja allir. Ljósu punktarnir lúta að út-
breiðslumálunum. Það eru að koma upp
efnileg lið úti á landsbyggðinni. eins og
Grindavík, Tindastóll og Þór, og fyrir hönd
þessara liða erég fullur bjartsýni. En við verð-
um að taka okkur tak. Ég var á sínum tíma
aðalhvatamaðurinn að því að fá hingað er-
lenda leikmenn og vann að því með oddi og
egg. Ég var sammála þeim sem á sínum tíma
vildu hætta með eriendu leikmennina og hélt
þá að menn væru að tala um tímabundið
bann en ekki fyrir lífstíð. Nú eru breyttir timar
og kominn tími til að endurskoða fyrri
ákvarðanir i þessum efnum. Við þurfum að
fá erlenda leikmenn hingað á ný og efla áhug-
ann á körfuknattleiknum."
Blanda af hestamannalykt
og piparmyntuneftóhakslykt
- Það er varla ofsögum sagt þótt fullyrt sé
körfuboltaleikjum, þegar ÍR ætti hlut að máli,
fyndu það ævinlega á andrúmsloftinu í við-
komandi íþróttahúsi hvort Einar hefði komið
við í hesthúsi sínu í Kópavoginum fyrir leik.
Þetta kann að flokkast undir ýkjur en sjálfur
hef ég fundið ákaflega sérkennilega lyktar-
blöndu af Einari, annars vegar ilmandi
hestamannalykt og svo sterka piparmyntu-
neftóbakslykt en Einar treður jafnan vænni
hrúgu af slíkum varningi í nasir sér dags dag-
lega. En auðvitað skiptir það litlu máli hvernig
lykt er af Einari Bollasyni og við snúum okk-
ur að rabbi um hestamennskuna.
Hestaferðirnar geta verið erfiðar og oft verður litið um svefn. Einar hefur þó náð að halla sér
hér á myndinni og líklegt verður að teljast að hann dreymi um einhvern gæðinginn eða ein-
hvern eftirminnilegan sigur á körfuboltavellinum.
að Einar Bollason sé einkum þekktur meðal
landsmanna fyrir körfuknattleik og hesta-
mennsku. Og nú gefum við körfuboltanum
líf og snúum okkur að þarfasta þjóninum og
tengslum Einars og fjölskyldu við hann.
Nokkrum sinnum hef ég orðið þeirrar ánægju
aðnjótandi að sjá Einar á hestbaki og svei
mér ef það er ekki bara fögur sjón. Einar er
hár og mikill vexti og ég hef heyrt kunna
hestamenn segja að alls kyns bikkjur verði
að fögrum hrossum þegar Einar ber við him-
in á baki þeirra. Sömu menn hafa sagt að
Einar hati aldrei átt ófríðan hest. Kunningi
minn sagði mér á dögunum að áhorfendur á
Ófríðir hestar éta jafn-
mikið og fríðir hestar
„Sumarið eftir að ég hætti að leika körfu-
knattleik keyptum við hjónin okkar fyrstu tvo
hesta. Við fórum norður í Skagafjörð til
Sveins Jóhannssonar bónda að Varmalæk og
þar höfum við keypt flesta okkar hesta í gegn-
um tíðina. Sveinn hafði mikil áhrif á okkur
og ég man alltaf eftir því þegar hann sagði
mér að ófríðir hestar ætu jafnmikið og fríðir
hestar og það þyrfti að moka jafnmikið und-
an ófríðum hestum og fríðum. í þessum
boðskap hans fólst sú staðreynd að það kost-
ar lítið meira að eiga mjög góðan hest en
36 VIKAN 9. TBL