Vikan - 26.02.1987, Síða 23
Eins og flestum er kunnugt, sem
eitthvað fylgjast með kvikmyndum,
hefur kvikmyndalistin blómstrað í
Ástralíu á undanfömum ámm. Sá
leikstjóri, sem á ekki hvað minnstan
þátt í þeiiTÍ bylgju og sá sem er þekkt-
astur, er Peter Weir.
Hann gerði sína fyrstu kvikmynd
1974. Það var svo önnur mynd hans,
Picnic at Hanging Rock, sem vakti
athygli heimsins á honum. Síðan
hefur kornið frá honum hver gæða-
myndin af annarri. Helstar em
Gallipoli, The Year of Living Dan-
gerously og Witness sem var fyrsta
mynd hans utan Ástralíu og kannski
hans besta mynd til þessa.
Aðalhlutverkið í Witness lék
Harrison Ford og sannaði þar að
hann getur meira en leikið ævintýra-
hetjur. Það kom því engum á óvart
að þeir tveir skyldu ákveða að halda
samstarfmu áfram. Það sem kom
aftur á móti á óvart var viðfangsefn-
ið, Moskítóströndin (Mosquito
Coast) eftir rómaðri skáldsögu Pauls
Theroux.
Sagan virðist fljótt á litið ekki fýsi-
leg til kvikmyndunar. Peter Weir
haföi aftur á móti orðið hrifinn af
sögunni og var fyrir löngu búinn að
ákveða að gera kvikmynd eftir henni.
Vins;eldir Witness gerðu honum það
kleift og þegar Harrison Ford var
búinn að lýsa áhuga sínum á að leika
aðalhlutverkið þurftu þeir félagar
ekki að leita lengi eftir ijámiagni.
Moskítóströndin fjallar um Allie
Fox (Hanison Ford) og fjölskyldu
hans. Fox er einn af þeim mönnurn
sent vekja athygli, þótt flestir telji
hann vandræðagrip. Hann er hug-
sjónamaður og ósáttur við líf sitt í
Bandaríkjunum. Hann flyst þvi með
fjölskyldu sína til fjarlægrar eyju í
Karíbahafinu er nefnist Moskító-
ströndin.
Hann ákveður að búa til samfélag
sem hann sættir sig við. Það tekst
honum og njóta íbúar eyjunnar góðs
af uppfinningasemi hans. En nýjasta
uppgötvun hans, vél sem breytir eldi
i ís, verður til þess að allt fer að snú-
ast til veni vegar og þá fer að halla
undan fæti hjá Fox...
Moskítóströndin hefur yfirleitt
fengið góða dónta þótt sumum finn-
ist hún heldur þungur biti að kyngja.
Sérstaklega hefur Harrison Ford
fengjð góða dóma fyrir leik sinn í
erfiðu hlutverki Allies Fox.
Myndbönd
FLESH + BLOOD ★ ★ ★
Leikstjóri: Paul Verhoeven.
Aðalleikarar: Rutger Hauer, Jennifer Jason Leigh og Jack Thompson.
Sýningartimi: 124 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Oft hefur verið talað um hinar dimmu miðaldir. Miskunnarleysi og plág-
ur einkenndu þann tíma þótt lítið sé í raun vitað miðað við vitneskju seinni
tíma. Flesh + Blood gerist í byrjun sextándu aldar og lýsir viðureign her-
manna sem ekki fengu laun sín eftir sigur, voru í staðinn reknir í útlegð,
og baráttu þeirra gegn fyrrverandi yfirboðurum sínum. Flesh + Blood er
tilbreyting frá flestum myndum um sama efni. Grimmdin og tillitsleysið
gagnvart manneskjunni er algjört og er aðalhetjan, sem Rutger Hauer leik-
ureftirminnilega, ekki undanskilin. Leikstjóri er Hollendingurinn Paul
Verhoeven sem einmitt á heiðurinn fyrir að uppgötva Rutger Hauer. Ver-
hoeven hefur skapað eftirminnilega kvikmynd sem að vísu er uppfull af
ofbeldi en góð kvikmyndun og sérstök efnismeðferð gerir hana eftirminni-
lega.
OFPUREBLOOD ★★
Leikstjóri: Joseph Sargent.
Aðalleikarar: Lee Remick og Patrick McGoohan.
Sýningartimi: 89 mín. - Útgefandi: Tefli hf.
Of Pure Blood er ný sjónvarpsmynd sem fjallar um efni sem oft hefur
verið kvikmyndað: ræktuð aríabörn nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Alic-
ia Browning er kona sem allt gengur í haginn fyrir þangað til einn daginn
að hún fær tilkynningu um að sonur hennar hafi verið skotinn í Þýska-
landi þegar hann hótaði að myrða Natóforingja. Alicia trúir þessu ekki og
þegar hún kemst að því að sonur hennar hefur eignast barn ákveður hún
að rannsaka sjálf hvað olli dauða hans. Er rannsóknin fer að bera árangur
kemst hún að ýmsu er snertir hana sjálfa og kollvarpar hugmyndum henn-
ar um sína eigin fortíð... Of Pure Blood er hin allra sæmilegasta afþreying.
H in ágæta leikkona Lee Remick bregst ekki frekar en fyrri daginn og þótt
söguþráðurinn séekki beint trúverðugurer Of Pure Blood spennumynd
sem gengur ágætlega upp.
EINKAMÁL (THE PERSONALS) ★ ★
Leikstjóri: Peter Markle.
Aðalleikarar: Bill Schoppert, Karen Ladry og Paul Edding.
Sýningartími: 88 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Bill er útgefandi tímarits og lifir fyrir vinnuna. Þegar eiginkona hans
hefur fengið nóg af allri fjarveru hans frá heimilinu og skilur við hann hryn-
ur veröld hans. Skyndikynni við aðrar konur gera hann aðeins dapran.
Hann fer að ráðum vinar síns og auglýsir eftir félaga í smáauglýsingum
dagblaðs. Auglýsingin ber árangur. Hann fær nóg af tilboðum. Tilraun
hans við fyrsta tilboðið endar með hörmungum. Aftur á móti bregst næsta
stúlka, sem hann hefur samband við, ekki vonum hans og takast strax góð
kynni með þeim. Gallinn er aðeins sá að hún er gift... Einkamál er gaman-
söm mynd sem að vísu er langdregin á köflum. Söguþráðurinn er einkar
mannlegur og kryddaður með gamansemi. Bill Schoppert, er leikur Bill,
kemst vel frá sínu hlutverki. Hann er ekkert glæsimenni og gerir sér grein
fyrir því. Einkamál er lítil og mannleg mynd sem engan sakar.
THE NESTLING ★
Leikstjóri: Armand Weston.
Aðalleikarar: Robin Groves, Christopher Loomis og John Carradine.
Sýningartími: 99 min. - Útgefandi: Tefli hf.
The Nestling fyllir stóran flokk hryllingsmynda sem reynast vídeóleigueig-
endum vel þrátt fyrir að þær séu yfirleitt slakar og örugglega ekki eins
spennandi og kápurnar gefa til kynna. Söguþráðurinn er á þá leið að rithöf-
undinum Laureen Cochran er ráðlagt að flytja í sveit vegna þess að hún
þolirekki Ijölmenni. Hún verður hrifin af fornu húsi er líkist húsi sem hún
hafði lýst í einni bóka sinna. Flytur hún i húsið sem hún auðvitað hefði
aldrei átt að gera því það er, eins og áhorfandinn veit, uppfullt afdraugum
sem eru ekkert að fela sig. Draugarnir halda verndarhendi yfir Laureen en
drepa alla sem ætla að gera eitthvað á hluta hennar. Skýringin á þessu
kemur að sjálfsögðu ekki fyrr en í lokin. The Nestling er dæmigerð B-
mynd. Þau atriði, sem dularful! eiga að vera, eru hálfhjákátleg og langt er
frá að sköpuð sé sú spenna sem nauðsynleg er slíkum myndum.
verið svona tynoin...
EHÍKAMÁl
Ást óskast með hxaðl...
9. TBL VIKAN 23