Vikan - 26.02.1987, Side 43
P Ó S T U R
\
MADONNA
Kæri Póstur.
Ég vona að þú birtir þetta bréf en ég hef
aldrei skrifað þér áður. Þannig er mál með
vexti að mig vantar nauðsynlega heimilis-
fang aðdáendaklúbbs Madonnu. Mig langar
lika til að vita hvað maður skrifar í bréf til
aðdáendaklúbba, ég meina á maður að gefa
einhverjar upplýsingar um sjálfan sig? Á
maður að frímerkja bréfið með alþjóðafrí-
merki?
„Dísa."
Madonna
c/o Jo Ewards
'Winterland," Suite 500
150 Regent Street
London Wi
England
Hér hefurðu heimilisfangið. Hvað fólk
skrifar almennt í bréf til aðdáendaklúbba er
sjálfsagt jafnmisjafnt og bréfin eru mörg.
Hvortþú gefur einhverjar persónulegar upp-
lýsingar um sjálfa þig er þér því í sjálfsvald
sett. En þú ættir að drífa þig i að skrifa og
kannski færðu kveðju um hæl.
LYKKJU-
VANDAMÁL
Kæri Póstur.
Nú leita ég til þín í von um að þú getir
aðstoðað mig. Þannig er að ég er sautján
ára, að verða átján. Ég átti barn í fyrra, þá
sautján ára gömul. Nokkrum vikum seinna
lét ég setja í mig lykkjuna. Vandamálið er að
í hvert skipti, sem ég er um það bil að fá
fullnægingu, kemur verkur í móðurlífið sem
kom ekki áður en ég fékk lykkjuna. Ég er
að spá í hvort þessi verkur boði eitthvað illt.
Það er eins og það sé eitthvað sem stingst
inn í móðurlífið eða þar í kring. Nú bið ég
þig, elsku Póstur, að ráðleggja mér eitthvað.
Ef þetta er allt saman eðlilegt þá ekki meira
um það, en ef ekki þá.. ,ja, þá veit ég ekki
hvað. En eitthvað er það.
Með fyrirfram þökk.
Den lille.
Því er fljótsvarað að þessi verkur. sem þú
færð þegar þú ert um það bil að fá fullnæg-
ingu. er engan veginn eðlilegur. Þú ættir þvi
að leita læknis hið fyrsta og skýra honum
undanbragðalaust frá liðan þinn og biðja
hann að athuga hvort lykkjan sitji rétt. Það
er algengt að lykkjan hafi ýmsar aukaverkan-
ir. Þæralgengustu eru blæðingaóregla fyrstu
mánuðina eftir að lykkjunni var komið fyrir
i leginu. Einnig er hætta á sárum blæðinga-
verkjum. Sumar konur fá aukna útferð með
lykkjunni. í örfáum tilfeílum fer lykkjan í
gegnum legvegginn þegar hún er sett I og
slíkt getur líka gerst seinna þótt það sé sjald-
gæfara. Lykkjan getur farið alla leið ígegnum
legvegginn og út í kviðarholið og þá verður
að fjarlægja hana með skurðaðgerð. En þetta
er sárasjaldgæft. Það getur Hka verið að
þessi verkur eigi sálrænar orsakir en þó er
fremur ólíklegt að svo sé þar sem þú hafðir
ekki kennt þér þessa meins fyrr en þú fékkst
lykkjuna. Það eina raunhæfa, sem Pósturinn
geturráðlagtþér, ersem sé að leita læknis.
TOE NOU
Kæri Póstur.
Vilt þú birta þetta fyrir mig. Ef þú hefur
áhuga á öðrum löndum er Toe Nou blað
fyrir þig. Það er gefið út í Frakklandi. Blöðin
eru skrifuð á ensku, þýsku og frönsku. í blað-
ið skrifar ungt fólk frá ýmsum þjóðlöndum.
Þar kemur fram að þó þjóðirnar séu mismun-
andi eru áhugamálin samt sem áður lík. Allir
þeir sem hafa áhuga geta verið með. Þú
færð send þau blöð sem bréfin þín birtast
i. En þú getur líka gerst áskrifandi. Nánari
upplýsingar og sýnishorn af blaðinu er hægt
að fá hjá mér. Ég hef skrifað í blaðið í tvö
ár og líkað ágætlega. Skrifið til:
Toe Nou c/o Líney Laxdal
Túnsbergi
601 Akureyri
P.S. Vinsamlegast sendið frímerkt umslag
með. Toe Nou tekur einnig við óskum um
pennavini.
VINKVENNA-
SLAGUR
Elsku besti Póstur.
Við erum tvær vinkonur sem erum i stök-
ustu vandræðum. Við elskum báðar þann
sama og það gengur náttúrlega ekki upp til
lengdar. Harmsagan byrjaði síðastliðið
haust. Það byrjaði nýr strákur í bekk með
okkur. Hann er ekkert eðlilega sætur, þú
ættir bara að sjá hann. Jæja. A negldi hann
á skólaballi. Á næsta balli nappaði B honum
frá A. Við fórum i fýlu hvor út í aðra en jöfn-
uðum okkur og ákváðum að halda áfram
að vera vinkonur. Svo sprakk sprengjan. A
fór að vera með honum á föstu án þess svo
mikið sem tala við B. Það var eins og málið
kæmi henni ekkert við. Við hættum að tala
hvor við aðra og höfum ekki haft samband
í nokkra mánuði. Svo hringdi A allt í einu í
B og spurði hvort við gætum ekki haldið
áfram að vera vinkonur og gleymt þessu
veseni með strákinn. En B vill bara ekki vera
vinkona A nema hún hætti að vera með
þessum sæta strák. Þú verður að hjálpa okk-
ur að leysa málið, annars verðum við vit-
lausar.
A og B.
Nú er illt I efni. Það er ótrúlegt hverju
þessi karlpeningur getur komið til leiðar. En
hefur strákurinn ekkert að segja í málinuP
Hefur hann ekkert val? Honum geðjast
greinilega vel aðA fyrstþau hafa verið svona
lengi saman. Eða hvað haldið þiðP Svo trúir
Pósturinn því ekki að það séu ekki fleiri fisk-
ar I sjónum i þessum skóla sem þið eruð í.
Það ætti samkvæmt öllum sólarmerkjum að
dæma að vera einhver einn I viðbót sem B
gæti sætt sig við. ef hana langar á annað
borð að vera með strák. Að mati Póstsins
ber B meiri sök í þessu máli en A. Ef maður
vill vera vinkona einhvers lætur maður ekki
svona. A sýnir af sér drenglyndi þegar hún
hringir i B til að friðmælast við hana. Vin-
áttu fylgir nefnilega ábyrgð og hana verður
maður að axla - vilji maður á annað borð
að hún sé endurgoldin.
9. TBL VIKAN 43