Vikan - 26.02.1987, Side 45
Sjóræningi
Slæðu eða trefli er vafið um höfuð-
ið. Leppur úr filti er settur fyrir annað
augað. Stór, hvít karlmannsskyrta er
ágæt og belti um mittið. Teygjur eru
bundnar fyrir ofan olnboga og
skyrtuermarnar látnar rykkjast. Háir
sokkar eru settir utan yfir buxna-
skálmarnar og að lokum ber sjóræn-
inginn sverð úr pappa.
Hér sjáið þið að það þarf ekki mik-
ið tilstand til að búa til ágætan
búning. Þið getið líka klippt göt á
svartan ruslapoka, fyrir höfuð og
hendur. Ruslapokann má svo
skreyta, til dæmis með álpappír. Ef
þið viljið búa til pappírshatt er gott
að leggja tertudisk á pappa og strika
eftir diskinum. Klippið hringinn út
og !4 úr hringnum (það er eins og
stór tertusneið í laginu). Heftið hatt-
inn saman og skreytið. Festið teygju
eða bönd á hattinn til að halda hon-
um á kollinum.
Þið getið líkt eftir búningum annarra þjóða, verið Japani, Indverji,
Mexíkani eða sígauni. Margir strákar eiga indíána- eða kúrekabúning.
Hugsið nú um hvað þið viljið helst vera á öskudaginn. Kannski getið þið
notað eitthvað af þessum hugmyndum eða þá að þið finnið eitthvað upp
sjálf, ekki er það verra. Munið svo eftir öskupokunum, þeir tilheyra degin-
um. - Góða skemmtun!
## r
Áramótabrenna
og flugeldar
Hrefna Björk Sverrisdóttir, fimm ára,
Kjarrmóum 6 í Garðabæ, sendi okkur þessa
fínu mynd sem hún teiknaði. Hrefna fór á
áramótabrennu í Garðabæ og fékk fullt af
stjörnuljósum og skemmti sér mjög vel.
9. TBL VI KAN 45