Vikan - 26.02.1987, Side 56
S T J Ö R
S P Á
Á
SPÁIN GILDIR FYRIR VIKUNA
1.-7. MARS
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Þér gefst tilefni til að gera þér daga-
mun og ættir að gefa sem flestum
kost á að njóta þess með þér. Sitt-
hvað kann að koma flatt upp á þig
en hvað sem því líður muntu styrkj-
ast í þeirri trú að þú hafir rétt fyrir
þér varðandi mál sem vissulega ork-
ar tvímælis.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Augljóst er að ýmislegt lýtur sínum
eigin lögmálum. Á sama hátt ætti
þér nú að fara að verða ljóst að þér
þýðir ekki að notast endalaust við
viðmiðanir annarra enda eru þín eig-
in lífsgildi þau sem henta þér best.
Ymsir eru auk þess reiðubúnir að
styrkja þig í þeirrri trú.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Nú hefur þú viðrað skoðanir þínar
og enginn ætti að velkjast í vafa um
hvað þú hyggst fyrir. Ekki er laust
við að ýmsum finnist þú hafa tekið
nokkuð stórt upp í þig og því er
vænlegast fyrir þig að slaka til og
hlusta á hvað aðrir hafa til málanna
að leggja.
VOGIN24.sept.-23.okt.
Reyndu ekki að sigla undir fölsku
flaggi. Þótt það kunni að lukkast
um stundarsakir kemur að því fyrr
eða síðar að þeir sem þú hefur mest
samskipti við eða staifar með sjái í
gegnum þig. Reynst gæti þrautin
þyngri að ráða niðuríögum ágrein-
ings ef upp kemur.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-21. des.
Það er nauðsynlegt að ræða mál sem
upp koma og útkljá þau þannig að
sem flestir megi við una. Hrein-
skiptni borgar sig og á næstu dögum
verður þér væntanlega mun meira
ágengt en að undanfömu sýnist þér
nauðsynlegt að koma af stað um-
ræðum um hagsmunamál.
VATNSBERINN 21. jan.-19. febr.
í þessari viku muntu þurfa á styrk
og hugrekki að halda og af slíku
áttu meira en þig grunar. Vertu við
því búinn að hvað reki annað og á
stundum virðist sem allt beri upp á
sama daginn. Við þessu erekkert
að gera annað en mæta því sem að
höndum ber og sýna stillingu.
NAUTIÐ 21. apríl—21. maí
Þú kemur til með að eiga ýmissa
kosta völ en aðalhættan er í því fólg-
in að þú gerir þér ekki grein fyrir
því vegna þess að þetta eru nokkur
umskipti frá því sem þú átt að venj-
ast. Taktu því með opnum huga sem
fyrir þig ber og nokkru varðar að
kunna að velja og hafna.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Nú er að renna upp tími nýrra hug-
mynda og tilvalið að móta þær
þannig að framkvæmanlegar verði.
Láttu eftir þér að sinna hugðarefn-
unum, líka þeim sem ekki geta talist
beinlínis hagnýt. Ekki er alltaf auð-
velt að sjá í fljótu bragði hvað nýtist
best þegar til lengdar lætur.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Láttu þér ekki bregða þótt þú fyllist
óþoli og eigir erfitt með að einbeita
þér. Besta ráðið er að gera það sem
ekki verður hjá komist en fresta því
sem ekki sakar þótt bíði betri tíma.
Leggðu umfram allt ekki árar í bát,
þetta gengur fljótt yfir og þarf ekki
að hafa neitt slæmt i för með sér.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Þér ættu að gefast ýmis tækifæri til
að sýna hvað í þér býr. Líklegt er
að þú komir þér og öðrum á óvart
með því að ráða mun betur en vænta
má að óreyndu við verkefni sem þér
verður falið. Treystu því ekki að
umbunin komi sjálfkrafa, hikaðu
ekki við að ganga eftir henni.
STEINGEITIN 22. des.-20.jan.
Hugur þinn verður væntanlega mjög
bundinn við krefjandi og áhugavert
viðfangsefni. Ekki er heldur ólíklegt
að það taki meiri tíma en gott þyk-
ir. Þú verður að reyna að sigla milli
skers og báru. Ógætileg orð eða
vanhugsaðar athafnir gætu hæglega
komið af stað sprengingu.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Láttu þessa viku fyrst og fremst ein-
kennast af umhyggju fyrir sjálfum
þér. Þér er hollt að rækta garðinn
þinn, í hverju sem það kann að vera
fólgið, en það veistu best sjálfur.
Fylgir þú þessu ráði geturðu vænst
þess að eflast að visku og þroska
og af slíku er aldrei nóg.
Fiskum er ýmislegt til lista lagt og margir þeirra fást við hin
ólíkustu verkefni samtímis. Árni Johnsen alþingismaður og
Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Útsýnar og stjórnandi Póly-
fónkórsins, eru meðal fiskanna.
56 VIKAN 9. TBL