Vikan


Vikan - 12.03.1987, Side 31

Vikan - 12.03.1987, Side 31
hafði eitt sinn gjört fé Húnvetninga mikinn skaða. Fannst hann ioks i holu einni við Blöndugil og varð þar drepinn með mannsöfnuði. Sagði skuggabaldur- inn í því hann var stunginn: „Segðu henni Bollastaðakisu að hann skugga- baldur hafi verið stunginn í dag í gjánni." Þetla þótti undarlegt. Kom bani skuggabaldurs að Bollastöðum og var þar nótt. Lá hann uppi i rúmi um kvöldið og sagði frá þessari sögu. Gam- all fressköttur sat á baðstofubita. En þegar maðurinn hermdi orð skugga- baldurs hljóp kötturinn á hann og læsti hann í hálsinn með klóm og kjafti og náðist kötturinn ekki fyrr en höfuðið var stýft afhonum, en þá var maðurinn dauður. Finngálkn er afkvæmi kaltar og tófu stundum kallað. Er það talið mjög grimmt og skaðlegt sauðfé manna. A því vinnur engin byssukúla nema hún sé gjörð úr silfri. Það er mjög styggt og ákaflega frátt á fæti. Einu sinni lagðist finngálkn á sauðfé Hafnamanna í Gullbringusýslu og ann- arra þar nærlendis. Hélt það sig mest umhverfis Ósana, sem kallaðir eru. og gjörði tjón mikið. Reyndu mann á allar lundir að drepa finngálknið en það tókst ekki og gekk svo lengi þangað til loks- ins að maður einn, sem vissi jafnlangt nefi sínu, fann upp á að marka eina hellu við Ósbotnana með hunangi. Vissi hann að finngálkn er mjög sólgið í sæt- indi, helst hunang. Síðan lagði maður- inn sig í leyni skammt frá hellunni. Dýrið rann á hunangslyktina og fór að sleikja helluna. Skaut þá maðurinn dýr- ið og hafði silfurhnapp af bol sinum fyrir kúlu. Öllum þótti vænt um verk þetta. Hellan er síðan kölluð Hunangs- hella og er hún við landsuðurhorn Ósanna hjá alfaraveginum milli Kefla- víkur og Hafna. Urðarköttur er mikil skaðræðis- skepna ef marka má þjóðtrúna. Hann lagðist á ná og var samfieytta þrjá vetur neðanjarðar í kirkjugarði. Augnaráð hans stenst engin skepna. Þessar mein- vættir eiga það allar sameiginlegt að augnaráð þeirra stenst enginn nema ef vera skyldi finngálknsins. Illvættum þessum verður ekkert að aldurtila nema ef þær sjá eigin mynd sína eða ef skotið er á þær með silfurhnöppum og þrí- krossað fyrir byssukjaftinn áður en af er hleypt. Ef við höfum þessar sagnir í huga ættum við ef til vill að hugsa okkur tvisvar um áður en við nefnum einhvern skoffin eða skuggabaldur eins og stund- um hefur verið brugðið á þegar ein- hverjum er í nöp við einhvern, því samkvæmt sögunum eru þetta hinar mestu meinvættir. Heimildir: Jónas Jónasson, íslenzkir þjóöhættir; íslenskar þjóðsögur og ævintýri, Jón Árnason safnaði. 11. TBL VIKAN 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.