Vikan


Vikan - 12.03.1987, Side 37

Vikan - 12.03.1987, Side 37
og ungt fólk að njóta reynslu og visku þeirra sem eldri eru og það er á sama hátt ómetan- legt fyrir gamalt fólk að vera í tengslum við æskufólk. Það heldur því ungu. Ég reyni að láta börnin mín vera virk á heimilinu, taka þátt í ákvörðunum án þess þó að þau taki við stjórninni. en þau eru Jór- unn, sautján ára, sem nú er skiptinemi á vegum AFS á Hawaii. Vésteinn. sex ára, og Einar Steinn, tveggja ára. Auk okkar eru á heimilinu Kristín Rúnarsdóttir frá Húsavík. tvítug stúlka sem réð sig til okkar í haust. hreinasla gersemi, og loks átján ára skiptinemi frá Bandaríkjunum, Sarah Waehenheim, sent er dóttir okkar í eitt ár. Ég finn lil vaxandi hamingjúkenndar með Ijölskyldn minni. Ég get allt i einu fyllst ein- hverri l'riðsælli gleði þegar ég heyri hörnin mín syngja. Og gleðin kemur reyndar til manns fyrirvaralaust á ýmsum stundum. til dæmis þegar maður hlustar a tónlist. þegar ntaður finnur að rnaður hefur náð tökum á erfiðu verkefni - eða á júnímorgni eftir rign- ingu þegar sólin skín. Ég hrífst mjög úti i náttúrunni en þó hvergi meira en á fallegum degi í Reykjavík. Ég er algjört borgarbarn. Pólitík Eftir að ég kom heint að loknu nárni í heim- ilislækningum var ég settur aðstoðarborgar- læknir i nokkra mánuði. Síðan sótti ég unt heilsugæslustöðina í Fossvogi. Þá gekk ég með þriðja barnið mitt og fékk skipunarbréf- ið á sængina. Sama dag var leikrit Valgarðs, Dags hríðar spor, frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. Enn á ný kom upp þessi staða í lífi mínu að allt gerðist samtímis, fyrst biðtíminn, þegar ég var að bíða eftir barninu og hvort ég fengi stöðuna og leikritið í æfingu. Síðan small allt saman samtímis. Heintilislækningar eru mjög ánægjulegt en krefjandi starf. Þarna myndast sérstakt sam- band milli læknis og sjúklings - vinátta sem er allt öðruvísi en rnaður kynnist á sjúkrahús- um þar sem sjúklingar konta og fara. Þetta verður fólkið manns. Maður sér börn fæðast og vaxa úr grasi og fylgist með gamla fólkinu sínu i þrengingum þess, veikindum oggleði. í janúar 1982 gerðist það svo að Olafur B. Thors hringdi til mín og spurði hvort ég væri fáanleg til að vera i baráttusætinu á lista Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórnarkosning- ununt um vorið, en það var ellefta sætið. Áður hafði farið frant prófkjör en ég var sem sagt sótt. Ég hugsaði mig vel unt og ráðfærði mig við fjölskylduna en tók svo ákvörðun um að vera með. Ég held að kornið hefði að því að ég færi að skipta ntér af pólitík fyrr eða síðar en ég hafði verið svo upptekin í öðru eftir að ég kom heim að þetta hafði orðið útundan. Kosningarnar voru í maí. Frant- bjóðendahópurinn fór saman i Borgarnes þar sent farið var yfir alla þætti og stefnan mót- uð. Það var mjög góður andi þarna og hópurinn hristist santan. Ég tel að það hafi skipt miklu í kosningabaráttunni hvað þarna tókst vel til. Það hefur verið bæði lærdómsríkt og skemmtilegt að sitja í borgarstjórn með sarn- hentum hópi og af því að við höfum verið í meirihluta hefur ntaður komið sínum málum fram. Minn vinahópur er ntjög dreifður póli- tískt séð. Mér finnst það víkka sjóndeildar- hringinn að geta notið samvista við fólk með mjög mismunandi skoðanir. Ég hugsa að ég geti ekki kallað mig harðlínupólitíkus. Ég hef verið meira í menningar- og mannúðarmálum, umferðar- og heilbrigðismálum. í borgarráði. sem ég hef nú setið í í tæpt ár, er ég hins veg- ar nær upplýsingum, praktískum verkefnum óg ákvarðanatöku. Það hefur verið ntjög gagnlegt. Pólitík er merkilegt fyrirbrigði og menn njóta ekki alltaf sannmælis. Ef ég mætti velja mér eftirmæli vildi ég helst að sagt yrði unt mig að ég hefði verið heiðarleg, hefði séð fleiri en eina hlið á málum og fylgt málum eftir. Svo þætti mér ekki lakara að hægt væri að segja að ég hefði verið skemmtileg. Það er líka mjög ánægjulegt að vera fulltrúi stjórnmálaafls eins og Sjálfstæðisflokkurinn er. Innan hans þrífast ólíkar skoðanir en menn standa alltaf saman um meginhugsjón- ir. Það er þetta frjálslyndi sem gerir hann að svona sterku stjórnmálaafli og svo auðvitað staðfesta hans í utanríkismálum, varðandi samstöðu vestrænna ríkja og Nato. Ég hef vcrið hlynnt friðarhreyfingum al- ntennings sem ég tel að séu að meginhluta byggðar upp af alvarlega meinandi fólki, þótt þær hafi verið misnotaðar. Og mér mislíkar fyrirlitningartónninn þegar sagt er „þessar friðarhreyfingarl!" og ntálið þar með afgreitt. Mér finnst ekki rétt að gera lítið úr ótta fólks. En ég styð eindregið utanríkisstefnu míns llokks, sem jafnframt er utanríkisstefna þjóð- arinnar. Ég er mjög bjartsýn vegna komandi kosn- inga. Mér finnst við hafa byrinn í bakið og almenningsálitið vera að sveiflast aftur frá krötunum. Rósirnar fölna nefnilega. Katrin Fjeldsted meö yngsta son sinn, Einar Stein Valgarðsson. 11. TBL VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.