Vikan - 04.02.1988, Blaðsíða 9
„Það eru mörg herr•
ans ár síðan vopna-
salar uppgötvuðu að
ýmsir íslenskir flug-
rekstraraðiiar hafa
verið tilbúnir til að
flytja hergögn, lög-
lega eða ólöglega
eftir atvikum, ef næg
greiðsla er í boði.“
menni varningur" var tæpast
ætlaður til almenningsnota þar
sem um var að ræða hergögn
þau sem sagt er firá hér að fram-
anverðu.
Þegar hér var komið sögu
höfðu flugmennirnir enga hug-
mynd um að þessi hergögn
væru ætluð Argentínumönnum í
stríði þeirra við Breta við Falk-
landseyjar. Samkvæmt frásögn
Páls Einarssonar aðstoðarflug-
stjóra voru þeir einungis ósáttir
við það að eiga að flytja her-
gögnin undir fölskum formerkj-
um þar sem slíkt væri brot á
ýmsum reglugerðum, þar á
meðal yfirflugsheimildum.
Páll hafði því orð á því við
yfirmann ísraelsmannanna, sem
hlóðu flugvélina, að ekki væri
hægt að kalla hergögn af þessu
tagi „Generai Cargo".
Fannst mönnum þetta greini-
lega nokkuð fyndið, samkvæmt
ffásögn Páls og fóru að grínast
með að í raun ætti að kalla
farminn: „Cargo for the Gener-
al“, sem hefði breytt allhressi-
lega merkingu farmbréfeins, en
slíkt heiti myndi leggjast út á ís-
lensku: Hershöfðingjavarningur.
Þessi merking á farmbréfinu
hefði átt vel við þar sem herfor-
ingjastjórnin illræmda sat ein-
mitt við stjórnvölinn í Argent-
ínu, með Galtieri hershöfðinga í
forsæti.
Mikil sprengihætta
Á leiðinni til Luxemburgar,
uppgötvaði aðstoðarflugstjór-
inn að einhverjir af eldsneytis-
tönkunum fyrir SKYHAWK orr-
ustuþoturnar voru löðrandi í
þotueldsneyti. Það þýddi að
veruleg hætta var á sprengingu,
ef eldur kæmist að farminum og
væri þá ekki að spyrja að leiks-
lokum fyrir vélina og áhöfn
hennar.
Þegar Boeing 747 flugvélin
lenti í Luxemburg eftir rúmlega
fjögurra stunda flug lét flug-
stjórinn ógert að tilkynna flug-
vallaryfirvöldum að vélin væri
A-4P SKYHAWK
orrustuþota úr
flugher Argentínu.
Til að ná til
Falkiandseyja frá
Argentínu
þurfitu SKYHAWK
vélarnar auka
eldsneytisgeyma
sem þær slepptu
síðan í haflð
áður en þær
hófú árásir.
voru orðnir uppiskroppa með
slíka sleppitanka fyrir
SKYHAWK þotur sínar og hefðu
þær því verið gagnslausar það
sem eftir var átakanna ef ekki
hefði komið til hjálp ísraels-
manna og flutningur Islending-
anna á þessum hergögnum.
íslendingar þekktir
í vopnasöluheiminum
Mörgum kemur það vafalaust
spánskt fýrir sjónir að íslending-
ar skyldu hafa verið óbeinir aðil-
ar að hinum blóðugu átökum
við Falklandseyjar og jafnvel átt
ákveðinn þátt í ótímabærum
dauða fjölda ungra Breta í loft-
árásunum sem fylgdu í kjölfar
afskipta hinna íslensku aðila.
íslendingur, sem hefur starfað
lengi hjá Cargolux flugfélaginu,
segir það enga nýlundu að ís-
lenskir aðilar taki að sér vopna-
flutninga úti í heimi. „Það á nú
víst að vera leyndarmál en við
fluttum vopn til Idi Amin í Ug-
anda á sínum tíma. Vopn sem
við sóttum til Frakklands þegar
allir vissu að hann var hinn
versti glæpahundur og enginn
vildi við hann kannast á vestur-
löndum," sagði þessi starfemað-
ur Cargolux í samtali við Vik-
una.
„Það eru mörg herrans ár síð-
an vopnasalar uppgötvuðu að
ýmsir íslenskir flugrekstraraðil-
ar hafa verið tilbúnir til að flytja
hergögn, löglega eða ólöglega
eftir atvikum, ef næg greiðsla er
í boði. Það hefur spurst út með-
al þessara sölumanna dauðans
að Islendingar eru áreiðanlegir í
vopnaflutningum og skila varn-
ingnum í réttar hendur. Þeir
vita að þegar við eigum að flytja
vopn til Irans þá læðumst við
ekki til að selja þau í Irak. Þess
eru í raun mörg dæmi úr þess-
um bransa. Það er ákveðið orð-
tak í þessum sambandi sem
vopnasalarnir nota sín á milli:
The Icelanders deliver — fs-
lendingarnir skila vörunni,"
sagði lslendingurinn í Luxem-
burg. □
Boeing 747 vélinni og hinum
hættulega farmi hennar. Sam-
kvæmt heimildum Vikunnar í
Luxemburg var Ragnar Kvaran
flugstjóri í þeirri ferð. Allir
áhafnarmeðlimir voru íslenskir
utan einn sem var innfæddur
Luxemburgari.
Frá Luxemburg hélt vélin til
Sevilla á Spáni þar sem hún
millilenti til að fá eldsneyti. Eftir
það var haldið viðstöðulaust á-
fram til Perú í Suður-Ameríku.
Eins og fýrr segir biðu flutn-
ingaflugvélar Argentínuhers eft-
ir Boeing vélinni og hergögnin
voru flutt á mettíma á milli vél-
anna sem flugu síðan heim til
Argentínu eigi síðar en klukku-
stundu eftir að Cargoluxvélin
lenti.
Árásir SKYHAWK véla Arg-
entínumanna á breska flotann
fylgdu síðan í kjölfarið af mikl-
um krafti.
Flugþol SKYHAWK orrustu-
flugvéla er það takmarkað að
þær gátu ekki flogið til árása frá
Argentínu til Falklandseyja
nema með hjálp auka eldsneyt-
isgeyma, sem þær síðan sleppa
áður en þær hefja árás. Vegna
fjölda loftárása Argentínumanna
á breska flotann fyrstu daga
stríðsins var greinilegt að þeir
„Cargo for the General.“ Galt-
ieri hershöfðingi, leiðtogi
herforingjastjómar Argentínu
í Falklandseyjastríðinu. Hann
misreiknaði sig herfilega og
vanmat baráttuvilja járnfrúar-
innar Thatcher og herstyrk
breska ljónsins, og var neydd-
ur til að segja af sér.
(Myndbirting með leyfi bókaútg. Þjóðsögu.)
hlaðin hættulegum varningi,
sem þó er skylda samkvæmt
reglugerðum. Páll Einarsson
segir að áhöfn vélarinnar hafi
ekki verið í vafa um að allir yrðu
reknir ffá flugfélaginu ef þeir
létu vita af farmi vélarinnar eða
gerðu nokkurt uppistand vegna
hinna ólöglegu flutninga. Stuttu
áður hafði breskur starfsmaður
Cargolux, Neale Millett, verið
rekinn þegar hann gerði athuga-
semdir við aðra vopnaflutninga,
vopnaflutninga félagsins' til Ur-
uguai. Millett þennan hafði
grunað að vopnin væru ætluð
Argentínumönnum sem áttu í
stríði við hans eigin þjóð.
Árásir SKYHAWK
orrustuþotna
t Luxemburg tók ný áhöfh við
VIKAN 9