Vikan


Vikan - 04.02.1988, Side 51

Vikan - 04.02.1988, Side 51
Stefna útvarpsins er summan af þeim sem standa að útsendingum Nýlega tók ný útvarpsstöð til starfa hér á landi, útvarp Rót. Segja má að þetta nýja útvarp hafi algera sérstöðu á mark- aðnum þar sem allt rekstrar- og útsendingarfyrirkomulag er mjög frábrugðið hinum stöðv- unum. Rót er hlutafélag i eigu fjölda einstaklinga og félaga- samtaka en hlutafjáreign fylgir aðeins atkvæðisréttur á aðal- fundi. Þá er fyrirkomulagið þannig að engu skiptir hve mörg hlutabréf einn aðili á, hann getur aldrei fengið meira en 4% atkvæða. Af þessu leiðir að enginn aðili getur náð meirihluta atkvæða í sínar hendur, heldur verður lýðræðis- leg samstaða að nást um allar stefnumarkandi aðgerðir. Besta hlustunin Vikan brá sér niður í Rót í fyrstu útsendingarvikunni og tók útvarpsstjórann, Þórodd Bjarna- son, tali. Þegar Þóroddur var spurður að því hvort útvarpsstöð- in tæki pólitíska afstöðu svaraði hann því til að útsendingarefnið kæmi svo víða frá, bæði frá ein- staklingum og félagasamtökum að stefna stöðvarinnar væri eigin- lega summa þeirra sem leggja til efnið. „Dagskráin hjá okkur er þess eðlis að hún hentar ekki sem bak- grunnur við störf eða annað. Maður verður að hlusta á hana til þess að hlusta. Þess vegna held ég að við höfum bestu hlustunina þó aðrar stöðvar hafi meiri „hlustun". Efnið er krefjandi og mjög mikið í marga þættina lagt.“ - Er kostnaður við svona stöð ekki gífurlegur? „Ég held að við höfum komið mjög vel út úr þessu. Okkur tókst það sem allir sögðu að væri úti- lokað, að halda stofnkostnaðin- um niðri í þremur og hálfri milljón króna. Til dæmis hætti Menningar og fræðslusamband alþýðu við þátttöku í stöðinni vegna þess að þeir töldu ómögulegt að starta þessu fyrir minna en tólf milljónir króna. Við reynum líka að halda yfir- byggingunni i lágmarki. Það eru ekki nema þrjú og hálft stöðugildi við stöðina, þar af tveir tækni- menn. Að auki fáum við allt efni ókeypis þar sem félög og ein- Þóroddur Bjarnason útvarpsstjóri hefur hér fyrstu útsendinguna undir vökulu augnaráði tækni- mannsins. meðal þeirra má nefna Samtök herstöðvaandstæðinga, Esper- antósambandið, Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins, Mið-Ame- ríkunefndin, námsmannasamtök- in SINE, BÍSN og Stúdentaráð, Búseti, Samtök kvenna á vinnu- markaði, Alþýðubandalagið, Borgaraflokkurinn, Krýsuvíkur- samtökin og Samband ungra jafnaðarmanna. Eins og sést á þessari upptaln- ingu má búast við fjölbreyttu efni frá jafn mismunandi samtökum og hér eru á ferðinni. Að auki leggja svo einstaklingar til efni eins og áður sagði. Meðal fastra liða má nefna lestur Sögunnar eftir Eyvind Eiríksson, barnaefni og leikrit." Útsendingartími Rótar er frá klukkan 11.30 til 23.15 daglega, én stefnt er að því að lengja hann þegarfrálíður. Útsendingartíðnin er 106.8 og stöðin ætti að nást um allt suð-vestanvert landið. AE. Unnið að gerð þáttar í aðalhljóðstofu útvarps Rótar. staklingar leggja það til. Auglýs- ingar eiga svo að standa undir rekstrarkostnaðinum." 500 kr. á klukkustund Útvarp Rót er opið hverjum sem er og þurfa menn aðeins að hafa samband við útvarpið og segja frá hugmyndum sinum um þátt og panta útsendingartíma. Útvarpið leggur síðan til tækni- mann og tækjabúnað en þátta- gerðarmaðurinn þarf að greiða fimm hundruð krónur fyrir klukk- ustundina í spólugjald. Þetta hlýt- ur að vera ódýrasti stúdíótíminn sem um getur og ætti því fjár- skortur ekki að hamla mönnum við að koma hugðarefnum sínum á framfæri. Enda sýnir það sig þegar dag- skráin er skoðuð að þar kennir ýmissa grasa. Hin margvísleg- ustu samtök eru búin að tryggja sér fastan útsendingartíma og VIKAN 51

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.