Vikan - 23.06.1988, Page 34
VIKAN/FRAMANDI
Áttu allar jDessar
uppskriftir?
í hverri Viku birtast tvær nýjar
uppskriftir sem þú getur rifiö út
og sett í möppu af stærðinni A5,
en slíkar möppur fást í flestum
ritfangaverslunum og kosta að-
eins um 60 krónur. Með tíman-
um eignast þú þannig safn sem
engin matreiðslubók fær
skákað.
Gott fyrir
laxveiði-
mennina
Nú eru laxveiðarnar á
fullu og margir búnir að
fylla frystikisturnar af laxi
og einnig látið reykja
heilmikið. Uppskriftir með
reyktum laxi eru því ef-
laust vel þegnar núna og
auðvitað hafa kokkarnir í
Framanda hugsað fyrir
því.
Örn Garðarsson, sem
starfar á Lækjarbrekku,
útbjó „quiche'1, eða böku
eins og við köllum hana,
með reyktum laxi. Bökur
eins og þessi eiga rætur
að rekja til Frakklands,
þar sem þær eru mjög
vinsælar sem smáréttur
og margir fá sér sneið af
böku í hádeginu. Bökurn-
ar geta verið með alls
konar fyllingum, t.d.
skinku, beikoni, lauk eða
reyktum laxi eins og hér
og þær eru mjög góðar.
Af því bakan er ekkert
þung eða matarmikil þá
ætti að vera óhætt að fá
sér ábætinn á eftir... því
hver getur staðist svona
ferskan ananas.
34 VIKAN