Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 9
Gíslasyni. Ég var talsvert hjá
Gylfa eftir lát föður míns og
samskiptin við hann urðu til
að styrkja enn ffekar trú mína
á málstað jafhaðarstefnunnar.
Og það fer ekki milli máfa að
ástandið í landbúnaðarmálum
væri allt annað og betra núna
ef farið hefði verið að
tillögum Gylfa um þau mál á
sínum tíma. Hann vildi láta
draga úr framleiðslunni og
varð fyrir árásum úr öllum
áttum fyrir bragðið. Bændur
voru hvattir til að framleiða
meira og meira. Nú vita allir
hvert sú stefha hefur leitt
okkur. En spillingin er orðin
svo mikil allt um kring í
þjóðfélaginu að hún ruglar
fólk í ríminu. Það er fámennur
hópur sem ræður örlögum
fjöldans. Tökum dæmi: Jó-
hannes Nordal seðlabanka-
stjóri, hinn mætasti maður á
margan hátt, tilkynnir hækkun
á dráttarvöxtum
sem jafhgildir 54% vöxtum á
ári. Sömu daga er Jóhannes
Nordal formaður Landsvirkj-
unar að semja við erlenda
banka fyrir hönd Landsvirkjun-
ar um skuldbreytingar á
lánum sem lækka vextina
niður í ca 5%., Hvað með al-
menning sem er að kikna undan
vaxtabyrðinni? Af hverju má
ekki leyfa öllum að sitja við
sama borð? Ég er viss um að
háir vextir eru mesti verð-
bólguhvati sem til er. Og af
hverju eiga vextir að vera 14%
umffam verðbólgu? Hvers
konar vitleysa er þetta?
Reksturskostnaður bankanna
er gífurlegur og þjónustugjöld
og vextir í hámarki til að
standa undir honum. Innfluttar
hagfræðikenningar ganga ekki
upp óbreyttar hérlendis.
Erlendis ríkja allt aðrar
aðstæður þar sem jafnvægi
ríkir i þjóðartekjum.
Hér eru gífúrlegar sveiflur og
það hafa verið tekin alltof stór
skref í markaðshyggju. Þeir
sem hafa ráðið hafa heldur
ekki fært okkur erlend kerfl í
heild, til dæmis með því að
heimila erlendum bönkum að
starfa hérlendis og setja reglur
um starfsemi verðbréfasjóða
og setja þá undir bindiskyldu
eins og bankana."
Jarðýtum mokað inn
Nú er Árni kominn á slíkt
skrið að það er ekki viðlit að
skjóta inn orði og brátt er ég
kominn með krampa í höndina
en skrifa áfram niður sem
óður maður:
.Auðvitað eigum við að
skattleggja fjármagnstekjur.
Hvers vegna ættum við að
ganga lengra en Bandaríkja-
menn í skattffelsi á þessar
tekjur? Þeir skattleggja fjár-
magnstekjur upp í 40%. Það
vantar Iög um starfsemi
kaupleigufyrirtækja, til dæmis
þess efhis að þau megi aðeins
taka veð í þeim vélum og
tækjum sem þau selja. Nú eru
þau farin að heimta veð í
eignum manna. Og á sama
tíma og ríkið reynir að draga
úr erlendum lántökum þá
spila þessi fyrirtæki frítt. Fyrir
örfáum árum voru starfandi
hér þrjú hraðframköllunarfyr-
irtæki. í dag eru þau 43, þar af
eru 40 í eigu kaupleigufyrir-
tækja. Nú er mokað inn í
landið jarðýtum í stórum stíl á
kaupleigukjörum. Það voru
nógu margar ýtur fýrir í
landinu og gott betur. Nú eru
þessi fyrirtæki að taka bíla af
fólki sem hefur keypt þá á
kaupleigukjörum en getur svo
ekki staðið í skilum. Við erum
alltaf ginnkeypt fyrir öllum
svona gylliboðum og hugsum
sem svo að allt hljóti þetta að
bjargast.
Stórfelldasta breytingin
varð þegar vextir voru gefnir
ffjálsir. Munur á inn- og
útlánsvöxtum hefur orðið
ffam úr öllu hófi. Auðvitað
kemur þetta niður á öllum.
Líttu á Kringluna, þetta
glæsilega verslunarhúsnæði.
Þeir sem þar byggðu tóku
mikil lán og þegar þeir þurfa
að mæta þessum gífúrlega
fjármagnskostnaði þá er
óhjákvæmilegt að það hafi í
för með sér hækkun á vöru-
verði.
Svo er lánskjaravísitalan
enn einn hryllingurinn. Ég er
sammála Jóni Sigurðssyni um
það, að það ætti að miða
lánskjaravísitöluna við gengi.
Núna er þessi vísitala farin að
hækka sig sjálf, það er að segja
þáttur fjármagnskostnaðar
eigin húsnæðis er það
sem lánskjaravísitalan er að
hluta til byggð á. Þegar hún
hækkar þá hækka þessir liðir
sem hafa svo aftur í för með
sér hækkun lánskjaravísitölu.
Þessu verður að breyta en við
þurfum hins vegar að halda
verðtryggingunni. En það er
svo margt sem við þurfum að
breyta. Ég kom áðan inn á
verðbréfabraskið. Er nokkurt
vit í því að maður sem getur
sett 50 milljónir króna í
verðbréfafyrirtæki skuli þéna
átta til níu milljónir króna
skattfrjálst á ári meðan fisk-
verkunarkona á skítakaupi er
skattlögð upp í topp. Ég neita
að taka þátt í þessu.“
Refarœktin skelfileg
Við ræðum áffam um þessi
mál, en þar sem Árni Gunnars-
son er þingmaður fyrir
Norðurlandskjördæmi eystra
vík ég talinu að málefhum
dreifbýlisins. í kjördæmi Árna
eru rekin öflug iðnfyrirtæki,
útgerð, fiskvinnsla og landbún-
aður svo það er í mörg horn
að líta. En er það rétt að það
sé að magnast úlfúð milli
landsbyggðarinnar og höfúð-
borgarinnar?
„Það er að nokkru leyti rétt.
Fólk úti á landi býr við
einhæff atvinnulíf og lands-
byggðarmenn velta því nú
fyrir sér hvað muni gerast ef
þeir neita að láta það fjármagn
sem þeir skapa halda áfram að
streyma til Reykjavíkur þar
sem spekúlantar nota það til
að braska með og auðgast á.
En það verður að koma á
sáttum milli dreifbýlis og
þéttbýlis því báðir þurfa á
hinum að halda. Nýju frysti-
togararnir eiga eftir að skipta
sköpum hvað varðar
atvinnulífið því nú skiptir
heimahöfn ekki lengur máli
þegar aflinn er unninn um
borð. Það er auðvitað glóru-
laust að halda öllum landbún-
aðinum uppi, en við verðum
að athuga að hann er bakhjarl
fyrir alls konar þjónustu og
atvinnu á þéttbýlisstöðunum.
En við verðum með öllum
ráðum að draga úr þeim
sársauka sem óhjákvæmilegur
samdráttur hefur í för með
sér. Það er hins vegar ekki
sama hvernig það er gert. Það
gerir sér enginn að leik að
reka „fallítt" búskap. Við
skulum láta okkur það verða
víti til varnaðar þegar menn
óðu fýrirhyggjulaust út í
refarækt án þess að vita
nokkuð hvað þeir voru að
gera og fengu allt upp í 110%
stoftikostnaðar í formi fyrir-
greiðslu. Afleiðingarnar voru
skelfilegar og þjóðin tapar
hundruðum milljóna króna á
þessu ævintýri.“
- En hvað með þennan
gífurlega laxabúskap, er ekki
hœtta á að þar verði refa-
œvintýrið endurtekið?
„Við verðum að gæta
alvarlega á því að laxaræktin
verði ekki enn einn skellurinn.
Nú eru til dæmis Sovétríkin
og ríki í Suður-Ameríku að
hefja laxarækt í stórum stíl
og þar eru mun betri skilyrði
en hér og vinnuafl ódýrara.
Svo voru Norðmenn komnir
vel áleiðis í laxarækt þegar við
byrjuðum og það eitt
hefði átt að verða
'\'/Spillingin
orðin mikil
x? Stuðningi
mínum við
ríkisstjórnina
lokið ef...
/?'Töpum
hundruðum
milljóna
ó refa-
œvintýrinu
'/ Mesta
skelfing
mannkyns
er
framundan
y Pólitískt
bull veður
uppi í fjöl-
miðlum
/? Sjónvarp-
ið liggur
hundflatt fyrir
Stöð 2
x/Ég hef
stundum
gert Jón
Baldvin
reiðan
VIKAN 9