Vikan


Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 65

Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 65
RAUPAÐ OG RISSAÐ Andleg og líkamleg heilsubót / tfJÓM-OG MMZEPPM/ Æe OJJZM /OD///JN S£M PÚrTJJp.- Co& M4DC/Z/NN £/0*01 SEGJ/f E/TT ST'/GGPJZ- YZD/, £b //£///// /J/S - tjk/st). Goifið er að verða einhver vin- sælasta fjölskylduíþrótt sem stunduð er hér á landi. Golfið hefur það meðal annars sér til ágætis, að það geta leikið saman ungir og aldnir, snillingar og slarkfærir, konur og karlar. Sá sem byrjar að leika golf fær svokall- aða forgjöf, þ.e.a.s. hann fær ákveðna tölu í forgjöf, en tala þessi miðast við getu hans. Sem dæmi má nefna, að kylfingur sem hef- ur 18 í forgjöf og leikur við annan sem hef- ur 0 í forgjöf hefur eitt högg á þann síðar- nefnda á hverja holu vallarins, en golf- völlurinn er einmitt 18 holur. Þessu mætti líkja við að stórmeistarinn í skák gæfi þeim slarkfæra drottninguna í forgjöf og jafnaði þar með stöðuna strax í upphafi. Þeir sem leika golf eru á íslensku kallað- ir kylfingar. Kylfingar eru að sjálfsögðu úti- vistarfólk og láta sér fátt fyrir brjósti brenna hvað veður varðar. Sjá má kylfinga berjast um á hæl og hnakka úti á golfvelli í svo til hvaða veðri sem er. Flestir golf- vellir eru yfir 5000 metrar að lengd og má gera ráð fyrir að þeir sem leika allar 18 holurnar gangi ekki skemmra en sex til sex og hálfan kílómetra. Og þetta gera margir þeirra daglega frá golfvertíðarbyrj- un til loka. Það segir sig sjálft, að slíkum gönguferðum fylgir mikil hreyfing og þar af leiðandi heilsubót. En það er ekki einungis líkamlega heilsubót að fá við iðkun golfíþróttarinnar. Margir telja hana hina mestu sálar- og geðbót. Eftir strangan vinnudag, eril og streitu, finnst mörgum sem þeir séu komnir í annan og geðugri heim þegar á golfvöllinn er komið. Þar finnur fólk þann frið sem ekki er að finna í annríki dagsins. Þar hittist fólk af ýmsum stéttum og úr ólíkum stigum þjóðfélagsins, blandar geði og skiptist á skoðunum. Kylfinga skortir aldrei umræðuefni þeg- ar sest er inn í golfskálann að loknum Ieik. Þeir hafa ffá mörgu að segja, ekki síst frá því sem átti sér stað í nýloknum leik. Kylf- ingurinn hefúr líka að ýmsum markmiðum að keppa. Hann er til dæmis sífellt að glíma við völlinn sjálfan, bæta sitt eigið skor og síðast en ekki síst er hann að glíma við meðleikendur sína. Þessu raupi um golfíþróttina (sem eng- an veginn er tæmandi), fylgja nokkrar teikningar til uppfyllingar. '/ EFTIR RAGNAR LÁR VIKAN 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.