Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 59
Glæfraleg brú í Moon Valley. Ekki var
laust við að sumir fengju öran hjartslátt á
leið sinni yflr því brúin var ansi hrörleg.
ráðhúsið. Hermennirnir áttu það til að
kalla eitthvað á eftir okkur sem við skild-
um ekki. Það voru bara tveir í hópnum
sem skildu spænsku. Þetta var nokkuð sem
ég gat aldrei vanist þann tíma sem ég ferð-
aðist í S-Ameríku.
Daginn eftir var farið að skoða safn sem
heitir Oro del Lima, en þar er rakin saga
landsins með ýmsum munum, klæðum og
beinagrindum. Safn þetta er hið áhuga-
verðasta og þeir sem leggja leið sína til
Lima ættu endilega að skoða þetta merki-
lega safn.
Um kvöldið var farið á Pena, en Pena er
samnefnari fyrir skemmtistaði þar sem
innfæddir spila þjóðlega músik og klæðast
gjarnan hefðbundnum klæðnaði frá sínum
héruðum. Einnig eru þar oft dansarar sem
sýna marga algengustu dansana frá ýmsum
héruðum. Öllu næturlífi lýkur snemma í
Lima, því þar er útgöngubann frá klukkan
1 til 5 allar nætur.
Uros-eyjar. Maðurinn firemst á myndinni er að binda saman reyr í bát.
Spreningar algengar
Á leiðinni heim heyrðum við gríðarlega
sprengingu. Tveir úr hópnum þustu af
stað, en urðu einskis varir. Leiðsögumað-
urinn sagði okkur að sprengingar-væru
töluvert algengar, en yfirleitt væru opin-
berar byggingar sprengdar upp, svo og
bankar. Það væri ætíð gert eftir lokun, svo
dauðsföll væru fá.
Morguninn eftir var haldið af stað með
Séð yfir Macchu Picchu, þann dulúðuga stað,
VIKAN 59