Vikan


Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 43

Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 43
Montessori bendir á mikilvægi þess að þroska skyn-hreyfifæmina með því að með- höndla hluti á sem fjölbreyttastan hátt. Hér má sjá Baldur handleika hluti með bund- ið fyrir augun og Katrínu soga vatn upp í spraut. Vettvangsferðir Farið er með börnin á ýmsa staði í borg- inni til að þau öðlist innsýn í þjóðfélagið. Þau hafa til dæmis farið á elliheimili þar sem þau syngja og gefa gamla fólkinu kökur. Bæði börn og öldungar hafa ánægju af slíkum samskiptum. Börn geta líka lært margt af gamla fólkinu um menningu okk- ar og tungu. Kennarar sem fyrirmynd Til að börn geti orðið góðir og nýtir þegnar verða þeir sem ala önn íýrir þeim að ganga á undan með góðu fordæmi. Þess vegna leggur Sælukot áherslu á að kennar- ar séu sér meðvitaðir um áhrif framkomu sinnar á börnin og komi ávallt fram sem góð fyrirmynd, en viðurkenni samt íýrir sjálfum sér og börnunum að þeir eru ekki fullkomnir og geti gert mistök. Katri (ffá Finnlandi) sem er gamalreynd fóstra og hefur starfað á mörgum barna- heimilum, segir að á Sælukoti reyni ffekar á ábyrgð, samheldni, sjálfstæði og úrræða- semi starfsfólks þar sem um minni fjár- hagslegan stuðning og aðhald sé að ræða frá borginni en á öðrum heimilum. Hún segir að áherslan á kennarann sem fyrir- mynd hafi ennfremur virkað hvetjandi á starfsfólkið. Montessoriaðferðin „Áhrlf Montessoriaðferðarinnar kemur fram í áherslu á að láta barnið vinna sjálf- stætt við verkefhi sem þroska hug og f Sælukoti eru 40 böm á aldrinum 2ja til 6 ára. Á siðasta ári færði Sælukot svo út kvíamar og kom á fót forskóla fyrir 6 ára gömul böm. hönd,“ segir Supriya Rathwell sem er Montessorikennari. „Hér er ekki eingöngu átt við föndur og barnaleiki heldur líka raunveruleg störf úr daglega líflnu. Það geta verið venjuleg heimilisstörf eins og að þurrka af og þvo upp en með áhöldum sem hæfa stærð barnanna. Einnig fá þau stundum að baka og hjálpa til við elda- mennskuna.“ Montessori bendir á mikilvægi þess að þroska skyn-hreyfifærnina með því að meðhöndla hluti á sem fjölbreyttastan hátt. Þetta sé forsenda fyrir þroskun óhlut- bundinnar og afstæðrar hugsunar sem öll ■ Börnum er eiginlegt að hafa ást á öllu lífi og má rœkta þessa tilfinn- ingu á margvíslegan hátt. Ein leið til þess er þagnarstund með hugleiðslu. ■ Almennt séð gerir hugleiðsla einstakling nœmari á eigin þarfir og umhverfi sitt og kemur í veg fyrir streitu- sjúkdóma. síðari skólaganga byggir á. Þau eru t.d. lát- in hella vatni eða moka hrísgrjónum í lítil ílát og halda á þeim án þess að missa niður, til að þjálfa samhæfingu hugar og handa. Þreifa á stöfum úr mismunandi grófúm sandpappír, finna út heiti hluta með lokuð augun út frá lögun þeirra, raða mismunandi stórum trésívalningum í rétta hólka, heyra mun á tónum, telja taktinn o.s.frv. Á skólaaldri er sömu aðferðum beitt við kennslu í lestri, skrift og reikningi og til skilnings á flóknum og óhlutstæðum hugtökum - eins og orsök og afleiðingu, stigmögnun, tíma og rúmi, að hlutir haldi sama magni og þyngd þótt þeir breyti um lögun og fleira í þessum dúr. Öll slík verkefni krefjast skipulegra og einbeittra hreyfinga. Skyn-hreyfifærni ger- ir barninu fært að stjórna sjálfú sér og skilja betur lögmál heimsins sem það lifir og hrærist í. Mikilvægt er að barnið fái sjálft að velja sem flest af þeim verkefnum sem það tek- ur sér fýrir hendur, því að innri hvöt segir þeim hvernig þau fái best nýtt hæfileika sína. Því má leiðbeinandinn ekki skipta sér of mikið af barninu utan að sjá fýrir fjöl- breytilegum og þroskavænlegum aðstæð- um og svara spurningum barnsins eftir þörfum. Forskóli Á síðasta ári færði Sælukot út kvíarnar því að settur var á fót forskóli fyrir 6 ára gömul börn, í litlu húsi við hliðina á Sælu- koti. Þar eru kennd undirstöðuatriði í lestri, reikningi og skrift auk þess sem börnin stunda reglulega hugleiðslu tvisvar á dag. Skólinn, sem er undir stjórn Guðríð- ar Pétursdóttur sérkennara, lofar góðu því vinalegur fjölskylduandi hefur myndast þar sem börnin geta tjáð sig og þroskað persónuleika sinn á óþvingaðan hátt. Að fenginni reynslu er fyrirhugað að stækka hann svo að hann rúmi fleiri börn á aldrin- um 5—7 ára, auk skóladagheimilis sem mikil þörf er fyrir í Skerjafirði. Starfsfólk á Sælukoti stendur því í svipuðum sporum og fyrir 4 árum, því að af einurð og stór- hug ætlar það að byggja nýjan skóla með dyggum stuðningi foreldra. VIKAN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.