Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 66
spyrja...
VIKAN, Pósturinn, Háaleitisbraut 1. Pósthólf 5344,105 Reykjavík
Mamma lagar bara til,
pabbi vinnur og
vinkonan er svo vinsœl
Kæri Póstur,
Ég er 17 ára stelpa sem á við vandamál
að stríða. Það er eins og hvorugt foreldra
minna skilji mína réttu skapgerð. Mamma
er þannig persóna að það er ekki hægt að
leita til hennar þurfi maður ráð. Það eina
sem hún gerir allan daginn er að taka til og
skamma börnin sín. Stundum þegar það
hefúr gerst að ég ætla að fara eitthvað með
vinum mínum og hef kannski misst af
strætó og bið hana að keyra mig, þá er
svarið sem ég fæ að ég skuli þá bara hætta
við að fara, ég þurfi þess ekki, og að hún
nenni ekki að keyra mig! Oft skammar hún
mig líka, eins og ég hafl leikið mér að því
að missa af strætó.
Pabbi hefur alltaf svo mikið að gera í
vinnunni að hann er aldrei heima. Bróðir
minn sem er þremur árum yngri en ég,
ber enga virðingu fyrir mér eða öðrum í
fjölskyldunni, nema pabba, því hann er
strangastur í fjölskyldunni og ræður öllu á
heimilinu. Hann bróðir minn kallar mig
mellu og hóru og blótar manni í sand og
ösku. Hann tekur ekkert tillit til þess ef
ég þarf að læra eða gera eitthvað og hefur
þungarokkið stillt á hæsta inni hjá sér, all-
an daginn.
Ég á vinkonu sem öllum finnst æðisleg
og alltaf þegar við erum saman með öðr-
um krökkum þá er hún alltaf númer eitt.
Allir tala við hana og ég stend úti í horni
og læt mér leiðast. Hún er líka miklu opn-
ari en ég. Mér finnst ég aldrei geta talað
um mín vandamál því ég held að það verði
bara hlegið að mér. Hún virðist aftur á
móti vera alveg fullkomin og ekki eiga við
nein vandamál að stríða.
Mér líður svo hræðilega illa út af þessu
öllu saman og vona að Pósturinn geti
hjálpað mér. Sara.
Póstinum finnst leitt að heyra hvað þér
líður illa, Sara. Póstinum sýnist sem aðal
vandamálið sé heima fyrir því þegar for-
eldrar hafa engan tíma til að sinna bötn-
um sínutn og finna ekki þegarþeim líður
illa þá er mikið að. Aftur á móti eru alltaf
tvœr hliðar á öllum tnálum og á meðan
við höfum bara þítia hlið á ástandinu þá
er eifitt að kotna með lausn.
Pú segir að matntna þín eyði öllum deg-
inum í að laga til og skamma ykkur böm-
in - og netmi síðan ekki að ke)ra ykkur
þangað sem þið þurfið að fara. Hvemig er
það - hjálþið þið henni ekkert að laga til
þannig að hún hefði kannski meiri tíma til
að vera með og tala viðykkur? Kannski er
hún þreytt á því að gera allt á heimilinu
ein ogfinnst því engin ástceða til að bœta
bílstjórastörfum ofan á öll hin. Efástandið
er þannig þá getur þú alla vega bœtt þar
úr og þegar þið mamtna þín emð búnar
að gera það sem þarf, sestu þá niður með
mömmu þinni og segðu henni að þér líði
illa. Því það er alveg sama hvemig „þer-
sónur" mömmur eru, þeim þykir öllum
vænt urn bömin sín þó þœr sýni það
kannski alltof sjaldan.
Pósturinn er viss um að utn leið og þú
ncerð góðu satnbandi við mömmu þína
þá munu flest önnur vandamál batna.
Hún cetti að geta komið á samkomulagi
milli þín og bróður þíns - og þú verður
auðvitað að kotna til tnóts við hann, kall-
ar þú hann t.d. aldrei neinum Ijótum
nöfnum? — vcentanlega talar mamma þín
um þín mál við þabba þinn og ef þið legg-
ið ykkur ÖLL fram þá cetti ástandið á
heimilinu að verða betra.
Vinkonu þinni líður vœntanlega betur
heima en þér hefur gert og því er hún í
góðu jafnvcegi. Þegar þér fer að líða vel
heitna þá cettir þú líka að kornast í betra
jafnvœgi og þá áttu án efa miklu betra
með að blanda þér í samrceðumar ánþess
að vera alltaf að bera þig satnan við vin-
konu þína. Mundu að allir hafa eitthvað
gott til að bera og þú kannski eitthvað allt
annað en vinkona þína.
Efekkert batnar hjá þér þá geturðu allt-
af hring í Rauðakrosshúsið, í bama- og
unglingasímann sími 62 22 60. Þar er
alltaf einiwer við sem tilbúinn er til að tala
við þig - og aðra — utn hvaða vandamál
sem er. Best er að hringja á auglýstum
símatímum sem em milli ki. 3 og 6 á
mánudögum, tniðvikudögum og föstu-
dögum, en ef þú þarft að hringja á öðmtn
tímum þá er þér alltaf svarað.
Aðdáendaklúbbur
Pet Shop Boys
Kæri póstur!
Ég er mikill aðdáandi Pet Shop Boys og
mig langar mikið til að vita hvort þeir eru
með aðdáendaklúbb.
Bestu þakkir,
Pet Shop Boys aðdáandi
Pet Shoþ Boys
do EMl Records
20 Manchester Square
London W.l
England
Útsölustaðir: Nœsta Apótek, helstu snyrtiuöruverslanir og betri snyrtistofur.
Heildsölubirgðir. íslensk - Danska. S-91-79250
66 VIKAN