Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 65
RAUPAÐ OG RISSAÐ
Andleg og líkamleg heilsubót
/ tfJÓM-OG MMZEPPM/
Æe OJJZM /OD///JN
S£M PÚrTJJp.-
Co& M4DC/Z/NN £/0*01
SEGJ/f E/TT ST'/GGPJZ-
YZD/, £b //£///// /J/S -
tjk/st).
Goifið er að verða einhver vin-
sælasta fjölskylduíþrótt sem
stunduð er hér á landi. Golfið
hefur það meðal annars sér til
ágætis, að það geta leikið saman ungir og
aldnir, snillingar og slarkfærir, konur og
karlar.
Sá sem byrjar að leika golf fær svokall-
aða forgjöf, þ.e.a.s. hann fær ákveðna tölu í
forgjöf, en tala þessi miðast við getu hans.
Sem dæmi má nefna, að kylfingur sem hef-
ur 18 í forgjöf og leikur við annan sem hef-
ur 0 í forgjöf hefur eitt högg á þann síðar-
nefnda á hverja holu vallarins, en golf-
völlurinn er einmitt 18 holur. Þessu mætti
líkja við að stórmeistarinn í skák gæfi þeim
slarkfæra drottninguna í forgjöf og jafnaði
þar með stöðuna strax í upphafi.
Þeir sem leika golf eru á íslensku kallað-
ir kylfingar. Kylfingar eru að sjálfsögðu úti-
vistarfólk og láta sér fátt fyrir brjósti
brenna hvað veður varðar. Sjá má kylfinga
berjast um á hæl og hnakka úti á golfvelli
í svo til hvaða veðri sem er. Flestir golf-
vellir eru yfir 5000 metrar að lengd og má
gera ráð fyrir að þeir sem leika allar 18
holurnar gangi ekki skemmra en sex til
sex og hálfan kílómetra. Og þetta gera
margir þeirra daglega frá golfvertíðarbyrj-
un til loka. Það segir sig sjálft, að slíkum
gönguferðum fylgir mikil hreyfing og þar
af leiðandi heilsubót.
En það er ekki einungis líkamlega
heilsubót að fá við iðkun golfíþróttarinnar.
Margir telja hana hina mestu sálar- og
geðbót. Eftir strangan vinnudag, eril og
streitu, finnst mörgum sem þeir séu
komnir í annan og geðugri heim þegar á
golfvöllinn er komið. Þar finnur fólk þann
frið sem ekki er að finna í annríki dagsins.
Þar hittist fólk af ýmsum stéttum og úr
ólíkum stigum þjóðfélagsins, blandar geði
og skiptist á skoðunum.
Kylfinga skortir aldrei umræðuefni þeg-
ar sest er inn í golfskálann að loknum Ieik.
Þeir hafa ffá mörgu að segja, ekki síst frá
því sem átti sér stað í nýloknum leik. Kylf-
ingurinn hefúr líka að ýmsum markmiðum
að keppa. Hann er til dæmis sífellt að
glíma við völlinn sjálfan, bæta sitt eigið
skor og síðast en ekki síst er hann að glíma
við meðleikendur sína.
Þessu raupi um golfíþróttina (sem eng-
an veginn er tæmandi), fylgja nokkrar
teikningar til uppfyllingar. '/
EFTIR RAGNAR LÁR
VIKAN 65