Vikan


Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 16

Vikan - 29.09.1988, Qupperneq 16
Guðni Þórðarson hafði ferðast talsvert um Spán sem blaðamaður og hrifist sérstaklega af Mallorka. Því var það að um páskana 1958 gekkst hann fyrir hópferð héðan frá íslandi til þessarar perlu Spánar. stöðin á Akureyri, en núver- andi flugstöð á Mallorka er sú þriðja sem þar hefúr verið byggð. Um tildrög þess að Mallorka varð fyrir valinu er það að segja að ég hafði ferðast tals- vert um Spán sem blaðamaður og hreifst mjög af Mallorka. Þar er mikil náttúrufegurð, íbúarnir eru öðruvísi á margan hátt en á meginlandinu, ekki eins blandaðir, veðráttan með eindæmum góð og strendurn- ar ffábærar. Nú, það voru allir ánægðir sem tóku þátt í þess- ari fyrstu ferð og páskaferð til Mallorka varð árviss atburður. Danir voru þá að byrja leigu- flug þangað og næstu sumur fórum við með hópa til Mall- orka á þann hátt að flogið var til Kaupmannahafnar og síðan slegist í.för með Dönum áfram. Svo voru teknar upp beinar leiguflugferðir héðan á sumrin og þetta hélt stöðugt áfram að aukast og náði hámarki sumar- ið 1975. Þá fór að draga úr ferðalögum okkar til Mallorka en svo hefur verið stöðug aukning á nýjan leik síðustu árin. Mallorka er langvinsæl- asti ferðamannastaðurinn á Spáni og þangað koma nú um sjö milljónir ferðamanna á ári, en Costa del Sol er í öðru sæti. Það er mun minna um glæpi á Mallorka heldur en á megin- Iandinu og hryðjuverk óþekkt. Ég er ekki hissa þótt íslending- ar haldi áfram að streyma til Mallorka", sagði Guðni Þórðar- son. Cala d’Or í nokkurra daga ferð til Mallorka bjó ég á tveimur stöðum. Fyrst í Santa Ponsa við Palmaflóann og síðan í Cala d’Or — Gullna víkin — sem er á austurströnd eyjarinnar. Ég kunni vel við mig í Santa Ponsa, fallegt umhverfl, ný- byggð íbúðahótel og öll að- staða eins og best verður á kosið. En ég kunni enn betur við mig í Cala d’Or. Þar fannst mér ég kynnast nýrri hlið á eynni. Það eru ekki nema fáein ár síðan ferðamenn fóru að sækja þennan stað. Ný hótel og íbúðir hafa risið en þess gætt að fella byggingarnar að lands- laginu. Veðursæld er með ein- dæmum, sjórinn hreinn og öll aðstaða til að stunda sól- og sjóböð ffamúrskarandi. Hótel- ið Playa Ferrera býður uppá góðar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum, stofú, baði, eldhúsi og góðum svölum. Tveir matsölustaðir eru í hótelinu og við það eru sundlaugar og ýmis leiktæki fyrir börn. Ekki er langt inn í miðbæ þorpsins Cala d’Or þar sem er gott úrval verslana og veitingastaða. En það sem hreif mig mest var umhverfið. Mjög ffiðsælt og rólegt, strandlengjan alsett smávíkum og vogum. Þarna var ákaflega auðvelt að gleyma sér við að sulla í sjónum, dorma í sólinni og rölta í flæð- armálinu. Vegalengdir eru ekki miklar á Mallorka og auðvelt að rúlla um næsta nágrenni, heimsækja lítil þorp og bæi þar sem ferðamenn sjást ekki, setj- ast þar niður á gangstéttarveit- ingahúsi og virða fyrir sér ró- lyndislega umferð heima- manna. Það var þarna í Cala d’Or sem ég fann greinilega fýrir þessum töffum sem Mallorka býr yfir. Það er óþarfi að láta aðra ferðamenn troða sér um tær á Mallorka. Það er eins og allir sem vilja geti ver- ið útaf fyrir sig. „Vinsœlasti staðurinn” Það er ferðaskrifstofan Sam- vinnuferðir-Landsýn sem hef- ur gert samning um dvöl í Cala d’Or. Ferðaskrifstofúrnar Úrval, Atlantik og Pólaris hafa lengi haldið uppi ferðum til Mallorka, Úrval til fjölda ára. En það var ekki fyrr en árið 1986 sem Samvinnuferðir byrjuðu á Mallorkaferðum. Hvers vegna var ákveðið að byrja ferðir þangað og hvernig hefur gengið? Helgi Jóhanns- son, forstjóri SL, svarar því: „Það var mikið um fyrir- spurnir varðandi ferðir til Spánar og við fórum að kanna málið. Eftir að hafa skoðað ýmsa ferðamannastaði varð Mallorka fyrir valinu því okkur þótti sem þar væri mest uppá að bjóða. Enda hefúr reynslan sýnt að þangað vill fólkið fara. Á þessu ári förum við með á fimmta þúsund íslendinga til Mallorka og þetta er sá staður sem flestir sækja af öllum þeim stöðum sem við bjóðum uppá. Fólk sem hefur farið með okk- ur í sumar og hefur ekki komið til Mallorka í tíu ár eða svo segir að eyjan sé mun hreinni og fegurri en fyrr, öfúgt við það sem er á flestum fjölsótt- um ferðamannastöðum. Þetta er vinsælasti staðurinn, það fer ekki milli mála. Og ég skal játa það, að í upphafi hafði ég eng- an sérstakan áhuga á Mallorka, svona persónulega, en nú hef- ur eyjan náð að heilla mig,“ sagði Helgi Jóhannsson. Þess má að lokum geta að gera má ráð fyrir að nær 10 þúsund íslendingar hafi lagt leið sína til Mallorka á þessu ári. □ Mallorka er langvinscelasti ferða- mannastaðurinn ó Spóni og þangað koma sjö milljónir ferðamanna ó óri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.