Vikan


Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 37

Vikan - 29.09.1988, Blaðsíða 37
VIÐHALD Á PERSNESKUM Fær aldar- gömul teppi til viðgerðar TEXTI: SIGRÚN HARÐARDÓTTIR MYNDIR: KRISTINN INGVARSSON Anna Jóna Halldórsdóttir rekur versl- un á Hrísateig 47 þar sem hún selur aust- urlensk teppi. Anna Jóna lærði um aust- urlensk teppi hjá írönskum bræðrum í London og þekkir uppruna, handbragð og gildi teppanna mætavel. Hún tekur jafnframt að sér að gera við austurlensk teppi, sem gat hefur komið á eða eru að rakna upp og kögrið orðið sjúskað. Það er einnig hægt að láta austurlensku tepp- in sfn í hreinsun hjá henni, en hún notar sérstaka aðferð, sem hún lærði, sem ger- ir teppin fallegri og viðheldur þeim rétt. Verslunin á Hrísateignum er opin firá kl. 13 virka daga. „Ég fæ teppi sem eru misjafnlega á sig komin. Þau eru líka allt frá því að vera nokkurra ára gömul upp í hundrað ára. Teppin hafa misjafna áferð eftir því hvort þau hafa fengið kemískan þvott eða ekki. Við kemískan þvott verða lit- irnir daufari og teppin fá síður á sig þennan fallega gljáa, sem kemur á þau með aldrinum. Hér er eitt sem er stinnt °g matt í stað þess að vera mjúkt og glansandi. Ofan á liggur teppi, sem ég er nýbúin að hreinsa, og hefur fallega glansáferð. Austurlensk teppi þurfa að fara í rétta hreinsun á 7 til 10 ára fresti. Þá skerpast litirnir í stað þess að deyfast. TEPPUM Bankið teppin Þó að teppin séu ryksuguð vill setjast sandur í þau. Þá er um að gera að banka þau almennilega á röngunni. Það er ágætt að leggja þau yfir grindverk eða snúru á meðan. Ef það er ekki gert nýr sandurinn þræði uppistöðunnar í sundur. Það getur þó tekið allt að 30 árum. Þar sem þessi teppi geta orðið mjög gömul og verða fallegri með tímanum borgar sig að koma í veg fyrir skemmdir að völdum sands. Ég þarf oft að hreinsa teppi sem ég fæ til viðgerðar, annað hvort með sérstakri aðferð sem ég kann, eða þá að ég banka þau rækilega. Ef teppin eru hrist verður of mikið álag á jöðrunum þar sem haldið er í þau og þá kemur fyrir að þau rakna upp með tímanum. Mismunandi kantar Ég fæ teppi til viðgerðar þar sem kant- arnir eru að rakna upp. Þá skoða ég uppistöðu teppisins. Uppistöður eru annað tveggja úr baðmull eða ull. Ullin þarf ekki að vera viðkvæmari. Það fer al- veg eftir frágangi vefarans á köntum og endum. Stundum er ekki nógu vel geng- ið frá endunum. Þar sem kanturinn hef- ur losnað frá verð ég að fara ofan í lykkj- urnar í uppistöðunni til þess að koma í veg fyrir að teppið rakni upp meira, og síðan að sauma kant sem dugar. Kögur Þar sem kögrið er illa farið leysi ég hnútana, og hnýti aftur og betur. Að öðrum kosti neyðist ég til að rekja eilítið upp af munstrinu, a.m.k. nægilega til þess að geta hnýtt uppistöðuna og stöðva skemmdirnar. Þetta getur verið mjög fínleg nákvæmnisvinna, því ég vil hlífa munstrinu sem mest,“ segir Anna Jóna að lokum og við kveðjum því mörg teppi bíða meðhöndlunar og hreinsunar. VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.