Vikan - 26.01.1989, Blaðsíða 23
Glaðvaer og skrautlegur bama-
hópur á leikskólanum við Síðusel
á Akureyri. Bömin læra söngva
vikuna fyrir öskudag og £ara síðan
syngjandi í einum hóp í miðbæinn
þar sem kötturinn er sleginn úr
tunnunni.
hvar þau eru að ganga. Öskudagur er lengi
í minnum hafður í hugum þeirra yngstu,"
sagði Halla Steingrímsdóttir um ærslin á
öskudaginn á Akureyri. Hún er forstöðu-
maður bamaheimilisins Síðusels og fer
með tugi barna í litríkum búningum þar
sem hasarinn er mestur. í miðbæinn.
Ærsladagurinn
var dagur iðrunar
„Krakkar á Akureyri taka virkan þátt í
öskudeginum fram undir fermingu og það
er alltaf mikill metingur um hverjir hala
mest inn af gjöfúm. Þau taka sig saman og
mynda oft stóra hópa sem vaða um allan
bæ á milli fyrirtækja og sníkja góðgæti
með því að syngja nokkur lög. Fólk hefur
þá birgt sig upp af sætindum eða gefur
peninga. Á barnaheimilunum málum við
börnin, en foreldrar hafa yfirleitt klætt þau
í einhverja búninga heima. Við kennum
þeim að syngja tvö eða þrjú lög nokkrum
dögum áður, m.a. Allir hlæja á öskudaginn.
Síðan fer öll hersingin niður í sælgætis-
verksmiðjuna Lindu og fær þar gott í poka.
Eftir að hafa fylgst með í miðbænum,
gengið og sungið höldum við eins konar
grímuball eftir hádegi á barnaheimilun-
um,“ sagði Halla.
Fyrr á öldum var öskudagur dagur iðr-
unar, ekki gleði. Kaþólskir prestar tóku
leifar af pálmum sem voru vígðir á pálma-
sunnudag og brenndu þá til ösku. Síðan
gerðu þeir krossmark með öskunni á enni
þeirra sem sóttu kirkju á öskudag til iðrun-
ar og yfirbóta synda þeirra. Þetta lagðist
síðan af í flestum löndum eftir siðabreyt-
inguna á sextándu öld. Smám saman
breyttist öskudagurinn í dag ærsla í beinu
framhaldi af kjötkveðjuhátíðunum sem við
þekkjum erlendis ffá. Hérlendis standa
bolludagurinn og sprengidagurinn fyrir
því sama. En askan sem prestarnir út-
deildu hefúr lifað á annan hátt. í formi
öskupoka.
Austurlensk böm?
Ekki aldeilis heldur
íburðarmiklir ösku-
dagsgallar, sem mikil
vinna hafði verið lögð í.
Stundum hittast norð-
lenskar konur kvöld
eftir kvöld til að sauma
saman búningana og
skapa stemmningu fyrir
öskudeginum.
Sú sætasta.
Þessi indíána-
hnáta var forviða yfir
öllu tilstandinu í
kringum öskudag-
inn en ánægð með
sælgætispokann.
2. tbl. 1989 VIKAN 23