Vikan - 26.01.1989, Blaðsíða 25
Þrír keppendanna í fyrra máta föt í verslun JMJ á Akureyri fyrir keppnisdaginn og bregða á leik með starfsmönnum þar.
Þeir Stefán Pétursson, Hlynur Jónsson og Einar Karlsson eru hér mældir í bak og fyrir. UÓSM.: GUNNLAUGUR RöGNVALDSSON
Leit haffin að
Herra ísland 1989
Sam-útgáfan tekur þátt í keppnishaldinu
„Það er til fullt af myndarlegum kari-
mönnum hérlendis, við vorum bara
prófsteinn á svona fegurðarsam-
keppni. Ég er viss um að keppnin á
eftir að verða miklu umfangsmeiri,“
sagði Reykvíkingurinn Amór Diego
eftir að hafa hlotið nafnbótina Herra
ísland í samnefndri keppni í fyrra.
Hann hafði á réttu að standa því keppn-
in í ár verður enn veglegri og lokakeppnin
mun fara fram á Hótel fslandi í apríl. Sam-
útgáfan, með tímaritin Samúel og Vikuna í
fararbroddi, mun aðstoða við skipulag
hennar og kynna keppendur, en nokkrir
vaskir Akureyringar bera hita og þunga af
skipulaginu eins og í fyrra.
„Við vorum virkilega ánægðir með mót-
tökurnar í fyrra. Það voru fáir jákvæðir
gagnvart keppninni í byrjun, en það rætt-
ist úr öllu og áhuginn sem skapaðist sýnir
að svona keppni á rétt á sér ekki síður en
fegurðarsamkeppni kvenna. Við búumst
við miklum áhuga í ár,“ sagði Sveinn
Rafhsson, sem er einn skipuleggjenda
keppninnar.
Það var mikil stemmning í kringum
keppnina í fyrra í skemmtistaðnum Zebra
á Akureyri og húsfylfir af áhorfendum og
komust ferri að en vildu. Því verður
keppnin nú haldin á Hótel íslandi og ekk-
ert til sparað. Góð verðlaun verða í boði
fyrir sigurvegarann, sem verða kynnt nán-
ar síðar. Þegar er farið að taka við ábend-
ingum varðandi keppendur. Þeir sem hafa
áhuga á að keppa eða vita um vænlega
keppendur geta haft samband við Svein
hjá Stjörnusól á Akureyri í síma 96-25856.
Herra ísland 1988 Amór Diego og Anna
Margrét Jónsdóttir sem var Ungfrú ísland
þegar Amór var valinn.
2. tbl. 1989 VIKAN 25