Vikan


Vikan - 26.01.1989, Side 41

Vikan - 26.01.1989, Side 41
Hvemig eru fullordin böm ulkóhólista? ÞÝÐING: ÞÓRDIS BACHMANN Börn alkóhólista bera innra með sér foreldra sem voru fullir heiftar og sjálfshaturs og yflrfærðu þær til- finningar á börn sín. Þau eru í tvöföldum hlekkjum; flnna til öryggisleysis og ótta yflr að hafa hafnað sjálfum sér og að vera hafnað af öðrum. í upphafi lagði íjölskyldan reglurnar fyrir hegðun og hlutverkaskipan meðlima sinna svo hún gæti aðlagast því að vera með alkóhólista innanborðs. Reglurnar og hlutverkin voru aðferðir til að lifa af, og þó fjölskyldan lifði af, voru þau hegðunar- mynstur sem hún kom á, óheilbrigð. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að reglurnar og hlutverkaskipanin inn- an hinnar alkóhólísku íjölskyldu urðu ekki til fyrir tilviljun; þetta voru viðbrögð við og aðferð til að ráða við það að vera með drykkjusjúkling í fjölskyldunni. Reglurnar og hlutverkin eru tilraun til að fá reglu og stöðugleika inn í skipulagslaust og óstöð- ugt líferni. Fjórar höfuðreglur eru að verki í hinni alkóhólísku fjölskyldu. Þessar regl- ur eru: 1. Stífhireglan 2. Þagnarreglan 3. Afneitunarreglan 4. Einangrunarreglan Þessar reglur eiga að meira eða minna Ieyti við allar alkóhólískar fjölskyldur (og aðrar samskiptalamaðar fjölskyldur). Þess- ar reglur verða því hluti af viðbrögðum þeirra barna sem alast upp á heimilum drykkjusjúkra. Þegar þessi börn vaxa úr grasi hafa þau tilhneigingu til að leita uppi fólk sem fylgir þessum sömu reglum. Þeim líður vel með fólki sem lifir samkvæmt þessum reglum. Þess vegna fara svo mörg fullorðin börn alkóhólista í sambönd við drykkjufólk eða aðra eiturlyfjaneytendur eða við fólk sem einnig er úr alkóhólískum fjölskyldum. Það er algengt að heyra FBA segja, „Ég skil ekki af hverju ég virðist alltaf fara út í sambönd við sams konar fólk.“ Þetta gerist vegna þess að þau leita uppi fólk sem fylgir sömu hegðunarregl- um, þó skynsemin segi þeim að þetta sam- band muni enda með ósköpum, svipað og hin. 2. tbl. 1989 VIKAN 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.