Vikan - 26.01.1989, Page 43
og láta æ ofan í æ sem þau trúi því að nú
verði hlutirnir öðru vísi, hvað þeir vitan-
lega verða aidrei. Málin gera aldrei annað
en að versna.
EINANGRUNARREGLAN
Hin alkóhólíska fjölskylda er lokað kerfi
sem hefur ekki efni á að leyfa fólki utan
fjölskyldunnar að vita hvað er að gerast
innan hennar. Þess vegna eru sumar alkó-
hólískar fjölskyldur mikið á faraldsfæti, og
eftir því sem hin alkóhólíska hegðun verð-
ur ýktari, verður fjölskyldan einangraðri.
Þær fjölskyldur sem ekki flytja oft eru
þó alveg jafn einangraðar frá nágrönnum
sínum og hinar. Við fyrstu sýn virðist
manni að einangrun fjölskyldunnar ætti að
gera meðlimi hennar nánari hver öðrum.
En þó margar alkóhólískar fjölskyldur taki
þau-gegn-okkur afstöðuna, eru einstakl-
ingarnir innan hennar jafn einangraðir og
fjölskyldan er frá samfélaginu. Hver ein-
staklingur er einangraður frá hinum og
þegar börnin vaxa úr grasi munu þau
halda áffam að einangra sig frá öðru fólki.
Einmanaleiki þeirra á sér afar djúpar
rætur.
Það fólk sem elst upp við að mega ekki
ræða um það sem er á döfinni og að til-
flnningum og staðreyndum um hegðun er
afneitað, lærir að einangra sig frá öðru
fólki til þess að vernda sjálft sig og lifa af.
Það er því ekki að undra að FBA eigi í al-
varlegum vandræðum með náin og innileg
kynni. Öll heimssýn þeirra er andstæð því
að þróa með sér náin kynni. Börn alkóhól-
ista eru auk þess haldin yfirþyrmandi van-
máttarkennd af því að þeim tókst ekki að
koma í veg fýrir skaðleg áhrif alkóhólism-
ans á fjölskyldu sína. Þau eru síhrædd um
að missa stjórnina, um að lenda aftur í
glundroða hins drykkjusjúka heimilis, um
að verða enn á ný gagntekin dapurleik og
sorg yflr bernskuárunum.
FJÖLSKYLDUHLUTVERKIN
Á eðlilegu heimili bera börnin styrk for-
eldra sinna innra með sér. Börn sem alast
upp á heimili drykkjusjúkra búa við stöð-
ugt öryggisleysi og reyna oft að aðlaga sig
ringulreiðinni á heimilinu með því að taka
á sig viss hlutverk. í þessari hlutverkaskip-
an felst viss stöðugleiki auk þess sem þau
draga athyglina frá oft afkáralegri hegðun
fjölskyldunnar, að hegðun þess aðila sem
hlutverkið leikur.
Hvert hlutverk þjónar þeim tilgangi að
viðhalda óbreyttu ástandi. Eftir því sem
drykkjusýkin eykst, verða reglurnar og
hlutverkin stífari og ósveigjanlegri.
Einstakir fjölskyldumeðlimir geta líka
leikið hin ýmsu hlutverk á hinum ýmsu
tímum allt eftir þörfum fjölskyldunnar í
það og það skiptið. Nokkur algengustu
hlutverkin eru:
1. Hetjan: Reynir að láta fjölskylduna
líta vel út með velgengni sinni í skóla eða
vinnu.
2. Svarti sauðurinn: Dreifir athyglinni
frá fjölskyldunni með því að lenda einlægt
í vandræðum.
3. Týnda barnið: Felur sig, gætir þess að
láta ekkert fara fýrir sér, vekur einkum at-
hygli fyrir að vera ekki til staðar.
4. Trúðurinn: Dregur úr spennu innan
fjölskyldunnar með því að vera fýndinn og
skemmtilegur.
5. Friðarstillirinn: Reynir að draga úr
deilum innan fjölskyldunnar með því að
breiða yfir hlutina.
6. Hjálparhellan: Kemur í veg fýrir að
alkóhólistinn þurfi að taka afleiðingunum
af alkóhólískri hegðun sinni.
Hlutverkin hér að ofan eru einungis al-
gengustu útgáfur þeirra hlutverka sem sjá
má á heimilum drykkjusjúks fólks. Innan
fjölskyldunnar renna hlutverkin oft saman.
Það er ekki óalgengt að sjá Trúðinn og
Friðarstillinn í einni og sömu manngerð-
inni eða Hetjuna og Svarta sauðinn. Þó
hlutverkin hér að ofan séu algengust, þá
þarf hin alkóhólíska fjölskylda ekki að ein-
skorða sig við þau; ný hlutverk eru sköpuð
í takt við þarfir fjölskyldunnar.
Öll hlutverkin sem leikin eru
af hinni alkóhólísku
fjölskyldu hjólpa
alkóhólistanum að meira
eða minna leiti að halda
ófram að drekka og haga
sér ó þann hótt sem bœði
er skaðlegur honum sem
og öðrum meðlimum
fjölskyldunnar.
Fjölskyldumeðlimirnir
hjólpa alkóhólistanum að
halda ófram
sjólfseyðingarbrautina...
Einnig er algengt að fjölskyldumeðlim-
ur í „stöðluðu" hlutverki fari smám saman
yfir í annað hlutverk eða samsetningu
hlutverka. Svarti sauðurinn getur orðið að
Hetjunni; Týnda barnið að Svarta sauðn-
um. Þó þessar breytingar verði yfirleitt við
hægfara þróun, geta skyndilegar breyting-
ar innan fjölskyldunnar valdið snöggbreyt-
ingum á hlutverkunum; svo sem dauði,
skilnaður eða samruni við aðra alkóhólíska
fjölskyldu.
ÖIl hlutverkin sem leikin eru af hinni
alkóhólísku fjölskyldu hjálpa alkó-
hólistanum að meira eða minna leyti að
halda áffam að drekka og haga sér á hátt
sem bæði er skaðlegur honum/henni, svo
og öðrum meðlimum fjölskyldunnar. Fjöl-
skyldumeðlimir hjálpa alkóhólistanum að
halda áfram sjálfseyðileggingarbrautina
með því að aðlaga sig að hegðun hans/
hennar í stað þess að bjóða henni byrginn.
Ríkharður, FBA, kom með hjálparhellu-
hegðun sína í hnotskurn þegar hann sagði,
„Ég leit aldrei á sjálfan mig sem hjálpar-
hellu föður míns við drykkjuna. Ég sé
núna að þögn mín varðandi það sem ég sá
og það sem mér fannst um drykkju hans
hjálpaði honum í rauninni að halda áffam
að drekka. Þó ég væri orðinn fullorðinn
maður, var ég ennþá hjálparhellan hans
með afneitun minni og þögn.“
Það er vert að hafa í huga, að þau fjöl-
skylduhlutverk sem börn alkóhólista
ganga sjálfviljug inní, eru viðbrögð við
reglum hins drykkjusjúka heimilis og að
reglum heimilisins og að reglurnar eru
viðbrögð við sjúkdómnum alkóhólisma. Sá
sjúkdómur lamar náin samskipti og skaðar
hæfileikann til að elska og treysta. Ekkert
tryggir betur stöðuga hnignun alkóhólist-
ans en stuðningur fjölskyldu sem tekur
þátt í öllum blekkingunum.
Hin afekræmda sjálfsímynd og takmark-
aða mynd af því sem Iífið býður uppá er
arfleifð barna alkóhólistans. Sérstök þörf
þeirra er í því fólgin að skapa sér nýja
sjálfemynd sem byggir á því að vera metin
og elskuð. Með því að viðurkenna og
ganga til móts við berskjaldað barnið sem
fullorðin börn alkóhólista dylja innra með
sér byrja þau að græða saman brotin úr
splundruðum persónuleika og verða heil-
steyptar manneskjur sem eru færar um að
starfa í heiminum með sjálfstrausti og
ábyrgðartilfinningu. Þau verða að læra að
elska sín (ófullkomnu) sjálf og öðlast
þannig ffelsi til að elska aðra og leyfa þeim
að elska sig á nýjan og heilbrigðan hátt.
Að losna er ekki að dæma, heldur að
leyfa öðrum að vera mannlegum.
ALGENG SKAPGERDAR-
EINKENNI FULLORÐINNA
BARNA ALKÓHÓLISTA:
1. Þau giska á hvað sé eðlilegt.
2. Þau eiga erfitt með að ljúka þeim
verkefnum sem þau byrja á.
3. Þau ljúga þegar jafn auðvelt væri að
segja satt.
4. Þau dæma sjálf sig miskunnarlaust.
5. Þau eiga erfitt með að skemmta sér.
6. Þau taka sig mjög alvarlega.
7. Þau eiga erfitt með náin samskipti.
8. Þau bregðast á öfgafullan hátt við
breytingum sem þau hafa enga stjórn
á.
9. Þau sækjast stöðugt eftir hrósi og
viðurkenningu.
10. Þeim finnst þau vera öðruvísi en ann-
að fólk.
11. Þau eru annaðhvort ffam úr hófi
ábyrg eða óábyrg.
12. Þau eru afar trygglynd, jafnvel þegar
augljóst er að tryggð þeirra er ekki
verðskulduð.
13. Þau leita tafarlausrar umbunar.
14. Þau lokast inni í hegðunarmynstri án
þess að íhuga aðrar Ieiðir eða hugsan-
legar afleiðingar.
15. Þau sækjast eftir spennu og vandamál-
um og kvarta síðan yfir afleiðingun-
um.
16. Þau forðast átök eða auka á þau, takast
sjaldan á við þau.
17. Þau óttast höfnun og aðskilnað en
hafna samt öðrum.
18. Þau óttast mistök en eyðileggja samt
allan sinn árangur.
19. Þau óttast gagnrýni og dóma en gagn-
rýna þó og dæma aðra.
20. Þau eiga erfitt með að skipuleggja
tíma sinn og setja ekki verkefni í for-
gangsröð.
2. tbl. 1989 VIKAN 43