Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 11
PALLADOMUR
Guðrún Helgadóttir, forseti Sameinaðs Alþingis:
ítalskur skaphiti Guðrúnar
og „mama mia## pólitíksóma
sér vel í Norðurlandaráði
TEXTI: ÓLAFUR GEIRSSON
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
Enn einu sinni hóf Guðrún
Helgadóttir upp raust sína
og nú vegna dagpeninga
þingmanna. Sumir tóku
andköf og aðrir glottu við tönn.
Forseti Sameinaðs Alþingis, Guðrún
Helgadóttir, var þarna að upplýsa al-
þjóð um það, að fólk ætti að skilja að
„við þingmenn erum engir venjuleg-
ir kontóristar," eins og eftir henni
var haft í DV fyrir nokkru. Guðrún
sagði líka, að þingmenn ættu ekki
að búa í neinum kytrum á ferðum
sínum erlendis, né að borða á pylsu-
börum. Ástæða viðtalsins við Guð-
rúnu Helgdóttur var sú, að fjármála-
ráðherrann og formaður Alþýðu-
bandaiagsins hafði deginum áður
upplýst það, að þingmenn hefðu
helmingi hærri dagpeninga á ferðum
sínum erlendis heldur en aðrir opin-
berir starfsmenn. - Ekki er þörf á að
rekja þetta mál nánar, þar sem það
er nýskeð en viðbrögð Guðrúnar
Helgadóttur, sem þarna svaraði fyrir
sem forseti Alþingis þykja að mörgu
leiti dæmigerð fyrir hana. Um það
eru bæði stuðningsmenn hennar og
andstæðingar sammála.
Tókst að móðga meginhluta
kontórista þessa lands
Með þessu tilsvari um dagpeninga
þingmanna tókst Guðrúnu Helgadóttur
að móðga á einu breti ótiltekinn fjölda
„kontórista" þessa lands. Henni tókst einn-
ig enn einu sinni að sanna það fyrir and-
stæðingum sínum innan og utan Alþýðu-
bandalags að hún væri ómögulegur stjórn-
málamaður og henni tókst að sýna það, að
hún talar enn það mál sem venjulegt fólk
skilur, þó svo það sé ekki endilega sam-
mála henni.
„Það er eins og hún sé ávallt inni í um-
ræðunni. Ef ekki hún sjálf persónulega, þá
eitthvert málefni, sem hún hefur skoðun á
og lætur þá skoðun sína í ljósi bæði hátt og
3.TBL.1989 VIKAN 11