Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 26
NAM ERLENDIS
TEXTI OG LJÓSM
Jóhanna Diðriksdóttir,
ferðamálafræði,
París, Frakklandi.
Fædd 6. apríl 1960.
Stúdent firá Menntaskólanum
við Hamrahlíð.
Jóhanna hefur lokið einu námsári af
tveimur í ferðamálafræði við „Ecole Super-
ieur de Tourisme" í París. Hún starfaði við
leiðsögumennsku síðastliðið sumar fyrir
Ferðaskrifstofu Austurlands. Skólinn er
einkaskóli og hefúr verið starfræktur í 25
ár. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf og
góð málakunnátta og þá sérstaklega góð
frönskukunnátta. Skólagjöld á ári eru
30.000 franskir frankar. Námið í skólanum
er skipulagt á þaxm hátt að á fyrra ári er
nám almennt og allir nemar læra sömu
fög, það er að segja frönsku, ensku, þýsku
og spænsku, landafræði, hagfræði, þá sér-
staklega ferðamálahagfræði, listasögu,
mannkynssögu, þjóðháttafræði, ferðaskrif-
stofútækni og rekstur, bókferslu, markaðs-
setningu og inngang að franskri lögfræði
og þá sérstaklega viðkomandi ferðamál-
um. Á seinna ári velja nemar sér námsbraut,
og valið snýst um þrjár deildir, en þær eru:
ferðaskrifstofúskipulag og vinna, svæða-
skipulagning fyrir ferðamenn og farar-
stjóra- og skoðunarferðalagskipulag en þá
deild valdi Jóhanna.
í þessari deild er lögð sérstaklega mikil
áhersla á listasögu, tungumál, sögu og
landafræði. Fyrirlestrar eru alla daga vik-
unnar og er skyldumæting á þá. Skólaárinu
er skipt í þrjár annir og eru próf í lok
hverrar annar. Verkefúavinna er ekki mikil
í skólanum en nemendur eru látnir hanna
ferðamannabæklinga nokkrum sinnum á
ári. Starfsþjálfun er hluti af náminu og er
ætlast til að nemendur öðlist hana yfir
sumartímann í lágmark 2 mánuði. Skólinn
útvegar nemum vinnu ef þess þarf en sú
vinna er þá ólaunuð.
Jóhanna fer leiðsögustarfið á íslandi
metið sem starfsþjálfún en annars segir
hún fólk vinna við mjög mismunandi störf,
svo sem upplýsingaþjónustu á flugvöllum,
ferðaskrifstofústörf, leiðsögn, umsjón á
ferðamannastöðum o.fl. Eftir tveggja ára
nám útskrifast nemendur með ríkispróf en
þá geta nemendur úr ferðaskrifstofúskipu-
lagsdeildinni bætt við sig einu ári í námi.
Ferðir eru skipulagðar af skólanum yfir
veturinn til ýmissa staða, en
yfirleitt aðeins yfir helgi og eru þær ferðir
algjörlega kostaðar af nemendunum
sjálfúm. Innganga í skólann er frekar auð-
veld vegna þess að skólinn er einkaskóli
en það er mjög erfitt að ljúka prófi þar
sem þau eru stöðluð fýrir allt Frakkland og
þeir sem ná prófúm útskrifast með ríkis-
diplom. Ástæðan fyrir því að prófin eru
höfð svona erfið er sú að ríkið vill reyna að
halda uppi miklum gæðum í ferðamála-
þjónustu landsins.
Jóhanna nefndi það að þar sem skólinn
væri einkaskóli, væri gróði hans oft látinn
sitja í fyrirrúmi fyrir velferð nemenda.
Vinnuaðstaða er mjög slæm, mikil þrengsli
og ekkert bókasafii. Kennarar skólans eru
hinsvegar mjög góðir sem er aðalkostur
skólans og gerir það að verkum að skólinn
er talinn einn af betri ferðamálaskólum
Parísar.
Jóhanna segir erfitt að lifa í París sem ís-
lenskur námsmaður á námslánum frá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna, þar sem þau
séu mjög lág þrátt fýrir mikla dýrtíð í
þessari höfuðborg Frakklands. Erlendir
námsmenn eiga við margskonar vandamál
að stríða í Frakklandi, til dæmis er land-
vistarleyfis krafist í mörgum skólum og til
þess að fá það frá lögreglunni eða útlend-
ingaeftirlitinu þarf heilan bunka af hinum
ýmsu pappírum, svo sem fæðingarvottorð,
rafmagnsreikning leigusala, leigukvittanir,
bréf frá lánasjóði o.fl. og alla pappíra þarf
að láta þýða af skjalaþýðanda yfir á
frönsku. Síðan er farið á útlendingaeftir-
litsskrifstofúna, sem er aðeins ein í allri
París fyrir erlent skólafólk, og þess vegna
er nauðsynlegt að fara í biðröð kl. 5 að
morgni til að reyna að fá afgreiðslu sinna
mála á einum degi, en það vill þó svo
ótrúlega til að þessi skrifstofa er opin alla
virka daga vikunnar.
Fyrir utan þessi mismunandi og marg-
víslegu vandamál í Frakklandi vildi Jó-
hanna láta það koma fram, að skólinn sem
hún nemur við er mjög staðbundinn í
kennslu og miðast við Frakkland, sem olli
henni töluverðum vonbrigðum, þar sem
hún bjóst við meiri alþjóðlegri fræðslu.
Þeir nemendur sem útskrifast úr ferða-
skrifstofudeildinni eru mjög vel búnir
undir hinn almenna ferðamálavinnu-
markað, einnig telur Jóhanna sig munu
standa ágætlega að vígi með þá kunnáttu
er hún mun öðlast úr fararstjóra- og ferða-
skipulagsdeild, sérstaklega vegna þeirrar
kunnáttu sem hún hefúr fengið hér á ís-
landi sem leiðsögumaður. Jóhanna sagði
að lokum að þeir sem hefðu starfað við
ferðamál á íslandi að einhverju leyti og
numið við ferðamálaskólann „Ecole Super-
ieur de Tourisme" væru ágætlega búnir
undir hinn almenna ferðamálavinnumark-
að.
26 VIKAN 3. TBL.1989
I