Vikan


Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 12

Vikan - 09.02.1989, Blaðsíða 12
skýrt.“ — Eitthvað á þessa leið var skoðun eins viðmælanda okkar, sem ekki hafði bein persónuleg kynni af Guðrúnu Helga- dóttur, en hefiir fylgst með henni um langt árabil, starfs síns vegna. Þessum viðmael- anda fannst stundum að Guðrún Helga- dóttir, rithöfundur, fráskilin fjögurra barna móðir, fyrrum rektorsritari, fyrrum upp- lýsingafulitrúi, fyrrum borgarfulltrúi, nú- verandi alþingismaður og forseti Samein- aðs Alþings, „væri allstaðar," eins og hann komst að orði. Verið að frumsýna verk eftir hana í Þjóðleikhúsinu Það eru orð að sönnu, að Guðrún kem- ur víða við. Um síðustu helgi var verið að frumsýna í Þjóðleikhúsinu leikverk hennar Óvitana og niður við Austurvöll í Alþingis- húsinu, sem sumir vilja líka kalla leikhús þjóðarinnar, er Guðrún Helgadóttir í óða önn við að halda uppi virðingu þingsins og hún ver heiður þess með kjafti og klóm. Skömmu fýrir jól beitti hún sér til dæmis fýrir því að Alþingi segði upp bílastæða- samningi við Reykjavíkurborg. Uppsögn þess samnings kom í kjölfar þess að ráð- herrar og forsetar þingsins fengu ekki iengur að leggja fyrir framan þinghúsið. Guðrún Helgadóttir í gervi forseta Sam- einaðs Alþingis brást hin versta við, skammaði yfirvöld borgarinnar og sagði upp samningi um stöðumæla sem borgin hafði á lóð í eigu Alþingis. Guðrún Helgadóttir var komin í pólitísk umbrot snemma á ferli sínum í stjórnmál- um. Hún steig í fyrsta skipti ffarn á sviðið fyrir borgarstjórnarkosningar árið 1966. Þá var hún í fjórða eða fimmta sæti á lista Aiþýðubandalagsins. Guðrún vakti þá strax athygli, þótti hress í tali og það ein- kenni hennar að tala þannig til fólks að það teldi sig skilja hana, kom strax í ljós. Við skulum nú staldra við í stjórnmála- sögu Guðrúnar Helgadóttur og heyra álit ónefnds Alþýðubandalagsmanns, sem hvorki getur talist til andstæðinga eða samherja hennar innan flokksins. Er stórpólitískt númer I eigin sjálfsmynd Hann segir: „Pólitísk sjálfsmynd Guð- rúnar er sú að hún sé stórpólitískt númer. Um það eru hins vegar ekki allir sammála, sem reyndar kom best í ljós við ráðherra- val flokksins í haust. Þá varð sú skoðun ofan á í þingflokki Alþýðubandalagsins, að Guðrún yrði ekki ráðherra. Nú má svo sem hafa á því nokkrar skoðanir, hvað hafi valdið þessari ákvörðun meirihluta þing- flokksins, sem síðan formaður flokksins Ólafur Ragnar beygði sig undir. Skoðanir eru heldur ekki samhljóða um það hver raunveruleg afstaða formannsins var til ráðherradóms Guðrúnar," segir heimildar- maður okkar úr röðum Alþýðubanda- lagsmanna. Allt of mikil pólitísk áhætta að setja hana í ráðherrastól „Ég tel reyndar," segir heimildarmaður- inn, „að það hafl verið skoðun meirihluta þingflokksins og jafnvel líka Ólafs Ragnars, formanns Alþýðubandalagsins, að ráð- herradómur til Guðrúnar Helgadóttur hefði verið of mikil pólitísk áhætta til þess að réttlætanlegt væri að taka hana. Aðrir hafa reyndar á þessu aðrar skoðanir," segir heimildarmaðurinn. „Sjálf heldur Guðrún því fram að þarna hafi hún goldið kynferð- is síns. Aðrir segja, að Ólafur Ragnar hafi orðið að taka landsbyggðarmann inn í ríkisstjórnina eftir að vera búinn að setja sjálfan sig og Svavar Gestsson, báða af höfuðborgarsvæðinu, inn í ríkisstjórn. Ég tel þetta hvort tveggja fyrirslátt, í það minnsta hvað varðar það ef valið hefur staðið á milli Guðrúnar Helgadóttur og annarra þingmanna í ráðherrasæti. Það var einfaldlega talinn of mikil pólitísk áhætta, að setja undir hana ráðherrasæti," segir þessi heimildarmaður okkar. „Auk þess,“ heldur okkar maður áffam, „þá kom Guðrún heldur ekki til greina sem ráðherra að þessu sinni vegna þess, að eins og margir vita þá átti Ólafur Ragnar ekki marga stuðningsmenn í hópi þing- manna Alþýðubandalagsins, þegar hann bauð sig ffarn til formanns flokksins. Guð- rún var hins vegar harður stuðningsmaður Ólafs Ragnars og því kom hún líka af þess- ari ástæðu ekki til greina sem ráðherra í það minnsta að þessu sinni." Allir taka afstöðu til hennar — með eða á móti Er Guðrún Helgadóttir allsstaðar? Varla, þó svo pólitískum áhugamanni þeim sem við vitnuðum áður í, hafi fúndist það. Guðrún er hins vegar slík, að flestir taka af- stöðu til hennar, með henni eða á móti. Afstaðan til Guðrúnar innan eigin stjórn- málaflokks, Alþýðubandalagsins er til dæmis ótrúlega tvískipt. í Alþýðubanda- laginu virðast menn að vísu skiptast í fjöl- margar fýlkingar, sem ekki er ætlunin að fara út í hér en þar skiptast menn meðal annars í fýlgismenn Guðrúnar Helgadóttur eða andstæðinga hennar. í þessum efnum taka flokkssystkini hennar gjarnan mjög ákveðna afstöðu — óvenju ákveðna. Menn eru jafhvel gallharðir andstæðingar Guð- rúnar annars vegar og þá aðdáendur, — pólitískir aðdáendur — hennar hins vegar. Áður en við vitnum í fylgismenn og andstæðinga Guðrúnar Helgadóttur í hennar eigin flokki.er rétt að athuga þá fullyrðingu,að ráðherradómur til handa henni hefði verið of mikil stjórnmálaleg áhætta fyrir Alþýðubandalagið til þess að hana mætti taka. Við vitnum enn í ónefndan heimildar- mann innan Alþýðubandalagsins en reynd- ar eru bæði samherjar og andstæðingar Guðrúnar sammála mörgu því, sem hann segir. Verjandi heiðurs „karla- klúbbsins“ við Austurvöll „Guðrún Helgadóttir er í þeirri undar- legu aðstöðu um þessar mundir, sam- kvæmt eigin vali og ótilneydd, að verja helsta og elsta „karlaklúbb" landsins, Al- þingi. Án þess að hafa sjálf viðurkennt leikreglurnar. - Leikreglurnar, sem gilda í þessum „karlaklúbbi", sem konur eru reyndar gengnar í eins og aðra karla- klúbba. Guðrún talar ekki til kjósenda eins og aðrir alþingismenn. Hún lætur auk þess ýmislegt flakka í orðum, sem fer í taugarn- ar á öðrum alþingismönnum. Hér fyrir ffaman var minnst á orð Guðrúnar um dagpeninga þingmanna. Svoleiðis talsmáti er engan vegin í samræmi við óskráðar reglur „karlaklúbbsins" við Austurvöll. Það þykja heldur ekki góðir siðir, samkvæmt reglum klúbbsins, að segja að margir þing- menn séu svo dauðhræddir við kjósendur sína, að þeir þori aldrei að opna munninn um eigin starfsaðstöðu. Þetta síðastnefnda sagði Guðrún í viðtali í Þjóðviljanum nýverið. Vinsælli meðal almennra flokksmanna en ráðamanna Vegna þessa er ekki hægt að segja að innrás Guðrúnar Helgadóttur í karlaklúbb- inn við Austurvöll hafi tekist nema að hálfu. Hún hefur að vísu tryggt sér inn- göngu á eigin vinsældum, sem ekki ná inn- fyrir valdaraðir eigin flokks. Þar er hins vegar tekin ákvörðun um það hvort menn verði ráðherrar eða ekki. Á meðan Guðrún Helgadóttir er ekki búin að ná árangri í vinsældakeppninni innan valdahópsins, þess hóps sem velur ráðherra Alþýðu- bandalagsins, þá verður hún ekki ráðherra. Litlar vonir eru sagðar til þess, að Guð- rún Helgadóttir láti af ýmsu því sem ráða- menn í karlaklúbbnum við Austurvöll telja vera slæma hegðan. Þrátt fyrir þá stað- reynd að hún sé af flestum talin vera kjörkuð, greind, metnaðargjörn, ffek og hinn mesti jafhréttissinni þá hefur Guðrún Helgadóttir einn djöful að draga og það er skapið. Hún er það skapstór og jafhffamt fljótfær, þegar hún reiðist, að litlar vonir eru taldar til þess að upphlaup, öðru hvoru, vegna einhvers, sem hún lætur út úr sér, verði annað en framtíðarböl Al- þýðubandalagsins á meðan Guðrún er þar í þingsæti. Upphlaup hennar fara í þær fínustu hjá ráðamönnum í flokknum Þessi upphlaup Guðrúnar hafa að vísu hingað til ekki skaðað hana meðal kjós- enda hennar. Upphlaup hennar hafa jafn- vel styrkt hana meðal almennra kjósenda Alþýðubandalagsins. Þessi upphlaup hafa hins vegar ávallt farið mjög í fínu taugarn- ar á mörgum samþingmönnum hennar og 1 2 VIKAN 3. TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.