Vikan


Vikan - 09.02.1989, Side 25

Vikan - 09.02.1989, Side 25
Áhuginn ræður Ari Alexander sér um að hárið á rétt snyrtu fólkinu sé í fallegu formi og hvert hár á sínum stað. Ari er á fimmta ári hjá Báru Kemp í Hári og snyrt- ingu, en Bára er fyrir löngu landskunn fyrir sín handbrögð og Ari búinn að læra þar margt, enda þegar farinn að skapa sér nafii þó ungur sé. „Ég byrjaði hjá Báru strax eftir 9. bekk. Bára er æðislega hörð, en um leið mjög góð. Ég lít í raun á hana sem uppeldismóð- ur mína því ég er meira hjá henni en heima hjá mér. Það var eiginlega dálítið skrítið hvernig ég byrjaði hjá henni. Ég var lengi búinn að velta fyrir mér hvað mig langaði að gera og hárgreiðsla hefði kannski ekki átt að vera ofar- lega á lista því sjálfur fór ég ekki til rakara fyrr en ég var 13 ára. Mamma klippti mig alltaf. En í 9. bekk fór ég í starfskynn- ingu á hársnyrtistofu Dóra á Langholtsveginum og spurði hann þá hvort ég gæti komist að hjá honum í vinnu. Hann sagði já og ég fór heim sæll og glaður. Síðan fór ég og talaði við yfirkennarann yfir hár- snyrtideildinni í Iðnskólanum sem tók mér vel og sagði mér allt sem ég þurfti að vita um námið. Daginn eftir hringir hún svo til mín aftur og segir að Bára Kemp hafi hringt til sín og verið að spyrja hvort hún vissi um einhvern strák sem vildi verða nemi hjá sér og henni datt ég í hug. Mér fannst þetta mjög spennandi, en fannst ég ekki geta sagt já af því ég var búinn að tala við Dóra. Ég dreif mig þá til hans aftur til að sjá hvort allt væri ekki við það sama, en þá var ekki jafn gott í honum hljóðið og fyrr og hann var ekki viss um að hann gæti gefið mér vinnu. Þar með var það ákveð- ið að ég færi til Báru — þar sem ég hef verið síðan." Ari hefur margt um fagið sitt að segja. Hann segir að sér þyki mjög skemmtilegt að vinna við það, en um leið sé það rosalega krefjandi og erfitt, því bæði standi fólkið við vinnu sína mest allan dag- inn og noti auk þess mikið af sterkum efhum sem setjast í öndunarvegimi. Ari segist líta á hárgreiðslu sem list og finnst að flestir sem ekki starfa við fagið vanmeti þetta starf. Þetta fólk segi við sig með hálfgerðri fyrirlitningu: „Hvað, ertu bara rakari!“ Hróbjartur Lúðvíksson skrifar: Þvargad eg þvælt Það sýnist sitt hverjum | um pólitíkina. En um " eitt atriði eru þó skoðanir fólks á einn veg, að það þvargar alltof mik- ið þetta Alþingisfólk. Þetta fólk hefur þó tekið að sér að gefa stjómkerfi og stjórnarháttum örlítið virðulegra yfirbragð. Sá góði ásetningur hefur algjör- lega mistekist. Það fer ffam kostuleg um- ræða í landinu um þessar mundir. Stór pólitísk umræða að sjálfsögðu en hún er á held- ur lágu plani og hávaðinn er með eindæmum mikill. Þó að við gömlu og reyndu hreppsnefndarmennirnir hérna fyrir norðan höfum á löngum ferli oft fengið orð í eyra og þar af leiðandi látið ýmislegt fjúka í hita leiksins, þá finnst mér flest af því vera eins og helgibókartal miðað við það sem „stóru" karlarnir fyrir sunnan láta sér um munn fara um þessar mundir í fjöl- miðlum. Manni ofbýður yfir hverjum fféttatíma í sjónvarp- inu. Það eru þó aðallega þrír menn sem eru öðrum kjaftfor- ari, það eru þeir Ólafur Ragnar, Jón Baldvin og Sverrir Hermannsson sem stýrir þjóð- arbankanum, og svo er Stein- grímur Hermannsson talsvert yfirlýsingaglaður þó hann noti prúðari orðaforða. Það er engu líkara en þessir menn haldi að þeir sem hæsi tala muni njóta mestrar virðingar alþjóðar. Fjölmiðlarnir leika þarna stórt hlutverk og hossa þeim mest sem eru málglaðastir. Við dreifbýlismenn höfum áhyggjur af þróun mála fyrir sunnan. Það virðist vera komin slagsíða á alla stjórnsemi og at- hafhasemi. Nú ríkir algjört úrræðaleysi hjá þeim sem stjórna peninga- málunum og bitnar það ekki síst á þeim sem eru að þrjósk- ast við að þjóna hinni fögru, en líklega úreltu hugsjón, jafn- vægi í byggð landsins. Það eina sem menn eru sam- mála um er að athafnalíf sé á horriminni og til ráðstafana þurfi að grípa. En hverra ráð- stafana? Þá eru menn ekki lengur sammála. Það eru gerð- ar kröfur um eyðslu og fram- kvæmdir, og svo er rifist um hvemig skal afla tekna til að mæta bruðlinu. Það er rifist um skatta og vexti. Á sama tíma kemur upp á yfirborðið vitneskja um allskonar auka- tekjur og sporslur ráðherra, Alþingismanna og bankastjóra. Ferðafríðindi og biðlaun og hvað það heitir allt saman. Okkur skítblönkum dreif- býliskörlum ofbýður. Mér verður olf hugsað til þess með hvaða hugarfari menn gefa kost á sér til stjórmálaforystu. Telur þetta fólk sig vera snjall- ara umífam aðra? Em það hug- sjónirnar? Hefur almenningur virkilega trú á því hjá þessu ffamboðsfólki til að láta gott af sér leiða og þá í þágu almenn- ings? Það má líta á þá stað- reynd að mjög fáir sem eru í virkilega arðbæmm störfum gefa kost á sér til stjórnmála- baráttu. Það má miklu ffemur telja að þeir sem leggja fyrir sig pólitík séu að bæta hag sinn, beint eða óbeint, af því að þeir fengu ekkert annað arðbærara að starfa. Nema að það sé metnaðurinn? Metnaður manna er flókið fyrirbæri og vafalaust erfitt að skilgreina hann. Fæstir okkar „hæstvirtu" kjósenda höfum lengur trú á hugsjónalofgjörð- um og hástemmdum yfirlýs- ingum um bætta hagi. Ráðleysi og of mörg svikin loforð ffam- bjóðenda í öllum flokkum sanna okkur hve orðaflaumur- inn er innantómur, nú sem oft áður. Eitt stórkostlegasta uppá- tæki í íslenskri pólitík að undanförnu eru fundahöld AA- foringjanna um landið undir kjörorðinu ,Á rauðu ljósi“. Herferð þessi átti að verða svo áhrifarík að í lok hvers fundar skyldi skotið rauðum blysum á loft. Eitthvað varð þó minna úr þessum rauðu rakettusýning- um en til stóð, því hingað til hafa það helst verið skipbrots- menn sem skjóta slíkum blys- um á Ioft. Óviðeigandi er að kenna fundahöld Ó.R.G. og J.B.H. við skipbrot. Þegar umræðan um risnuna, ferðakostnaðinn og biðlaunin stóð sem hæst fyrir nokkru, þá gekk Guðrún Helgadóttir for- seti sarrieinaðs þings fram fyrir skjöldri og taldi að vart væri fært að skera niður risnu Al- þingismanna á ferðalögum, þeir væru engir venjulegir kontóristar. Guðrún talaði einnig um húsnæði Alþingismanna og óviðunandi aðstöðu og þrengsli. Ekki getum við búist við sparnaði af hálfu Guðrúnar ef hún fær að ráða. Þetta kom til umræðu hjá okkur fyrir norðan að loknum síðasta hreppsnefndarfundi. Við tökum nefhilega oft upp frjálsara hjal að loknum fundum. Það kom í ljós að þessi ummæli Guðrúnar höfðu vakið nokkra athygli. Merki- legt nokk að þó við værum ósammála um flest á hrepps- nefndarfundinum, þá vorum við sammála, hvar í flokki sem við stóðum, um hvernig hægt væri að spara í stjórnsýslu ríksins. Það þarf að fækka Al- þingismönnum niður í 41 — segi og skrifa fjörutíu og einn. Þá mun rýmkast verulega um starfsemi Alþingis svo að ekki þarf að byggja í bráð og rekstr- arkostnaður hlýtur að snar- lækka. Þetta væri gott skref til sparnaðar auk þess sem nöldrið, þvargið og þvælan hlyti að minnka hlutfallslega. Mér verður oft hugsað til þess með hvaða hugarfari menn gefa kost ó sér til stjórnmólaforystu.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.