Vikan


Vikan - 09.02.1989, Side 40

Vikan - 09.02.1989, Side 40
TEXTI: BJÖRN HRÓARSSON JARÐFRÆÐINGUR UÓSM.: ERLINGUR ÓLAFSSON Fjölmargir íslendingar eiga jeppa- bifreiðar en fæstir nota þær þó sem slíkar. í mörgum tilfellum er jepp- inn eins konar stöðutákn. Hann fer vel á hlaði og er fínn til að skreppa á í sund og svo í Bláfjöll á veturna til að komast á skíði. í öllum þessum tilfellum dugar minniháttar fólksbíll. Á íslandi eru þó til menn sem nota jepp- ana sína sem jeppa. Nota þá þar sem ekki þýðir að koma á fólksbílum jafhvel þó þeir séu með drif á öllum hjólum. Þessir menn eiga með sér félagsskap er nefnist Ferða- klúbburinn 4x4. Klúbburinn var stoftiað- ur 10. mars árið 1983 og síðan hefúr fjöldi meðlima vaxið jafht og þétt og eru þeir nú rúmlega 300. Hér er um ferðafélag að ræða þar sem ferðast er um á einkabílum. Félagið var stofnað til að gæta hagsmuna jeppamanna, stuðla að bættum ferðamáta og góðri um- gengni við landið. íslenskur vetur með miklu af íslenskum 40 VIKAN 3. TBL. 1989 snjó er ein aðalforsenda notkunar á jeppum. Á sumrin er land of viðkvæmt til að nota jeppana utan vega og vegina kom- ast jú flestir bílar. Jeppana má því nota á jöklum á sumrin en alls staðar á veturna þar sem snjór er. Flestir jeppanna í Ferða- klúbbnum 4x4 eru með stór dekk og fljóta því vel ofan á snjónum. Bílarnir sökkva yfirleitt minna í snjóinn en gang- andi maður. Eitt stærsta baráttumál ferðaklúbbsins hefur verið að koma á „réttu“ hugarfari gagnvart þessum stærri dekkjum. Fyrst fengu menn ekki skoðun á bíla sína ef þeir voru mikið „upphækkaðir" og á mjög stór- um dekkjum. Fordómar gagnvart þessu hafa minnkað og starfsemi klúbbsins hefhr skilað þar góðum árangri. Jeppamenn og þar með meðlimir klúbbsins hafa lengi legið undir ámæli fyrir að skemma landið. Eitt öflugasta markmið klúbbsins er að koma algerlega í veg fyrir skemmdir á gróðri og hefúr þar mikið áunnist þó lengi leynist svartir sauðir irman um. Boð og bönn hafa löngum verið vinsæl aðferð stjórnvalda á íslandi við að hindra náttúruspjöll og ómenningu hvers konar í umgengni við landið. Þessi aðferð hefur skilað fremur litlum árangri en skilningur hins vegar farið vaxandi á nauðsyn þess að lfæða fólk um hversu viðkvæm náttúran er og fá það þannig á hennar band. Mikil gróska er innan ferðaklúbbsins og má þar nefha árshátíð, jeppasýningu, skála- byggingu og samstarf við Bifreiðaeftirlit og Náttúruvemdarráð. Reglulegir fundir eru einu sinni í mánuði þar sem vettvang- ur er til þess að rabba um tækniatriði, ferðalög, landsvæði og hvaðeina sem mönnum kann að liggja á hjarta sem teng- ist „sportinu". Löngu er ljóst að boð og bönn þjóna litl- um sem engum tilgangi í samskiptum stjómvalda við jeppamenn firekar en aðra ferðamenn. Hins vegar hefur tekist mjög vel að koma þeirri tilfinningu inn hjá félagsmönnum að það sé ekkert fínt að valda spjöllum á landinu okkar eða skilja eftir msl eða önnur miður falleg ummerki. Þarna er búið að byggja upp mjög traustan kjarna fólks sem leggur metnað sinn í að gera ekkert slíkt og síðan smitar þetta út ffá sér og svörtu sauðirnir fara að skamm- ast sín. Enda hefúr náttúruspjöllum af völdum jeppa fækkað mjög á síðustu ámm. □

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.