Vikan - 09.02.1989, Qupperneq 44
Hún naut þess. Sumar konur vilja vera
heima og þeim á ekki að finnast að þær séu
einskis verðar ef þær vinna ekki úti.“
Mel er svo óöruggur
En ef bæði hjónin vinna úti finnst Anne
mikilvægt að þau geri sér áffam grein fyrir
þörfum hvors annars. í gegnum árin hefur
hún lært að hjálpa eiginmanni sinum að
ráða við „óstjórnlegan kvíða“ sem sækir á
hann þegar hann byrjar á kvikmynd. „Mel
er alltaf svo óöruggur þegar hann hefet
handa. Þegar hann byrjaði á Spaceballs var
hann íullur vantrúar á sjálfum sér. Á henni
þrífst kvíðinn og þegar honum líður illa
líður mér illa. En þá verður að gera eitt-
hvað — styðja við bakið hvort á öðru.“ Svo
þegar Mel gerir kvikmynd reynir Anne að
fara á tökustaðinn að minnsta kosti einu
sinni í viku, til þess að vera með honum og
róa hann.
Og eiginmaður hennar er henni til halds
og trausts. Það var hann sem hvatti hana til
að skrifa og leikstýra kvikmyndinni Fatso
áriðl979. Þegar hún var óánægð með
leikferil sinn. Og það var fyrirtæki hans
sem studdi hennar nýjasta leikverkefhi, 84
Charing Cross Road. „Það hjálpar alltaf að
sofa hjá ffamleiðandanum," segir Anne og
hlær háum, smitandi hlátri.
Að sjálfeögðu hefur Bancroft sannað
hæfileika sína á eigin spýtur. Reyndar var
hún orðin nafnkunn leikkona löngu áður
en hún hitti Mel. Anna Maria Louise Ita-
liano fæddist í Bronx-hverfinu í New York
og hefur aldrei gleymt fátæklegum upp-
runa sínum. „Faðir minn var mótasmiður.
Hann er nú kominn á eftirlaun. Móðir mín
vann á símaborðinu hjá Macy’s, en hún átti
sér drauma um mig. Ég átti mért líka
drauma. Mig dreymdi um að verða leik-
kona,“ segir Anne.
Anne var nítján ára þegar hún skrifaði
undir fyrsta kvikmyndasamninginn, en
hann færði henni ekki þá fullnægju sem
hún hafði vænst. Kvikmyndaverið stjórn-
aði lífi hennar, neyddi hana til að skipta
um nafn og að leika í léttvægum myndum
eins og The Girl in the Black Stockings og
The Gorilla at Large. Einmana, óörugg og
hrædd urðu henni einnig á þau mistök að
giffast kaupsýslumanni frá Texas, Marty
May.
„Ég vissi á þremur dögum að því væri
lokið," segir Anne, „en það liðu þrjú ár
áður en ég sleit því.“ Niðurbrotin hélt hún
aftur til New York, en þó ákveðin í að
komast í þau leikhlutverk á Broadway sem
hún þráði svo heitt. Henni voru veitt Tony
44 VIKAN 3. TBL. 1989
verðlaunin fýrir ffumraun sína á Broadway
árið 1958, þar sem hún lék á móti Henry
Fonda í Two for the Seesaw. Tveimur
árum síðar, þegar hún var aftur á fjölunum
í The Miracle Worker (sem færði henni
önnur Tony-verðlaun) kynnti vinur henn-
ar hana fýrir Brooks. Hann var að kljást við
að skrifa gamanleiki og „frekar blankur,"
rifjar Anne upp. „Fimm næstu daga hitt-
umst við, ég rakst á Mel alls staðar. Hann
lést alltaf verða mjög hissa. Hann var þá
þegar góður leikari."
Á fimmta degi gaf hannhenni gjöf, gam-
anleikinn The 2000-Year-01d Man. Hún
„Ég er mjög heppinn að
við, jafnframt því að vera
vinir, skulum enn vera
ástfangin,“ segir Mel. „Auk
þess sparar hún mér
álitlega summu í viku
hverri, sem ég þyrfti að
borga sálkönnuði.
Ég segi henni allt og hún
segir mér hvað ég
á að gera.“
fór að hlæja og varð samstundis ástfangin
af honum. „Ég man að ég sagði við sál-
könnuðinn minn: Ég er búin að finna
manninn sem ég vil giftast, svo við skulum
drífa þetta af. Mér verður að batna fljótt.“
Við erum svo heppin
að vera ástfangin
Anne telur að það sé mikið eigin-
manninum að þakka hve hjónabandið hef-
ur gengið vel. Persónuleiki Brooks heima
fyrir, segir hún, er ólíkur þeim sem birtist
almenningi. „Það er ekki svo auðvelt að
kynnast honum,“ viðurkennir hún. „Hann
er oft í fjölmiðlum. Hann er fyndinn,
snöggur upp á lagið og talar mikið. En það
er bara yfirborðið. Mel er einrænni en ég.
Hann er mjög viðkvæmur og hann er
tuttugu sinnum fyndnari í einkalífinu og
þúsund sinnum indælli."
Mel er snöggur að gjalda gullhamranna.
„Ég er mjög, mjög heppinn að við, jafn-
framt því að vera vinir, skulum enn vera
ástfangin," segir hann. „Auk þess sparar
hún mér álitlega summu í viku hverri, sem
ég þyrfti að borga sálkönnuði. Ég segi
henni allt og hún segir mér hvað ég á að
gera.“
Þessi yfirlýsing þýðir auðvitað ekki að
Anne sé gallalaus. „Enginn er fullkominn,"
segir hún. ,Allt kostar sitt. Það þarf aðeins
að gæta þess að gjalda það með vinsemd."
En í hjónabandi með Mel Brooks er
alltaf mögulegt að vera vinsamlegur.
„Kraftur hans fýllir húsið — og sama á við
um son minn,“ segir Anne. „Stundum er
ekki mikið rúm fyrir mína orku. Svo ég bið
um það sem ég þarf á að halda, og ef ég fæ
það ekki, öskra ég. Þá fæ ég það.“ Anne
hlær hjartanlega en verður svo alvarleg
aftur.
„Það er í starfi þínu sem þú fórnar þér í
raun og veru,“ segir hún blíðlega, „með
því að vera ekki hjá fjölskyldu þinni, þegar
þú finnur að þau þarfiiast þín og þú bregst
þeim.“ Hún þagnar og hlær hátt. „Auðvitað
kemstu að því að þau komast vel af án þín,
það ert þú sem þarfnast þeirra. Við höfúm
öll okkar vandamál og við verðum að læra
að glíma við þau. Við eigum okkur eink-
unnarorð í fjölskyldunni: Fet fyrir fet lífið
er létt. En þú lýist fljótt ef þú tekur sprett.
Ég segi þetta við manninn minn í hvert
sinn sem hann byrjar á kvikmynd. Ég segi
þetta við son minn fýrir hvert próf. Núna
vildi ég óska að einhver segði þetta við
mig.“
Tamalabaka önnu Bancroft
Undirbúningur: 20 mínútur
Bökunartími: 25 mínútur
2 tnsk srnjör
H2 bolli saxaður laukur
1/3 bolli saxaður grœnn pipar
1 dós (19 oz.) linsubaunir, hreinsaðar og
þurrkaðar
1 dós (8 oz.) tómatsósa
2 tsk. chililduft
1/2 tsk. oregano
1/2 tsk. kúmen
1 bolli maísmjöl
2 tsk. sykur
1/2 tsk. salt
1/2 tsk. nýmalaður pipar
1 hrœrt egg
1/3 bolli mjólk
2 msk. brœtt smjör
1 pakki (10 oz.) frosinn maís, þíddur
1/2 bolli rifinn ostur
Hitið ofninn í 175°C. Bræðið smjör á
pönnu við miðlungshita. Bætið í lauk og
grænum pipar; steikið þar til það er meyrt,
10 mínútur. Takið af plötunni og hrærið í
baunir, tómatsósu, chiliduft, oregano og
kúmen. Setjið svo til hliðar.
Blandið saman maísmjöli, sykri, salti og
pipar. Hrærið saman við egginu, mjólk,
smjöri og maís. Þrýstið deiginu í smurt
formið. Látið baunablönduna í skelina.
Bakið í 20 mínútur. Takið úr ofhinum og
stráið osti yfir.Bakið í 5 mín. í viðbót eða
þar til osturinn er bráðnaður. Látið síðan
standa í 5 mín. Berið ffarn með grænmeti.
Þetta eru 6 skammtar, 370 kaloríur hver.