Vikan


Vikan - 09.02.1989, Side 58

Vikan - 09.02.1989, Side 58
íslensk böm í Stokkhólmi tróðu upp sem íslensku jólasveinamir 13 og Grýla og Leppalúði, í heljarmiklu jólaboði sem Sigrún sá um - og vöktu þau að vonum mikla lukku, sem og laufabrauðið og íslensku pönnukökurnar. „Aðalatriðið er að fá útrás á réttan hátt, þannig að það sœri ekki aðra" Frh. af bls. 9 má þá er ég gift. Allir þessir menn mínir eru úrvals menn og þar sem ég er í eðli mínu mjög þægilega gleymin þá get ég sagt að þeir séu hver öðrum betri. Samt sem áður þá vildi það til að þegar ég var að skreyta hökulinn þoldi ég ekki þennan núverandi mann minn. Aumingja maður- inn talaði ekki einu sinni við mig. Hann er kannski sá eini sem skilur þetta hugar- ástand mitt. Ég fann að sökin var algjörlega mín, hvað átti ég nú að gera? Ég bý á þess- ari eyju í miðjum Stokkhólmi en þarf að taka smábát til að komast þangað. Það gerði ég og keypti mér málaraléreft og strengdi á ramma. Ég vinn mest á nóttunni og er mjög kvöldsvæf, sofha t.d. oft á mannamótum og hvar sem er á kvöldin, vakna síðan um klukkan 2-4 um nóttina. Ég skammaðist mín fyrir illskuna við manninn minn og þetta lét mig ekki í firiði. Ég fann að ég gat ekki byrjað reglulega að vinna að hugmynd minni að höklinum fyrr en ég hafði útrýmt illskunni. Fyrstu nóttina, nánar tiltekið klukkan 2, byrjaði ég að mála mynd af manninum mínum. Ég hafði mest af gulum og bláum lit og útkoman varð sú að hann varð grænn. Þegar ég fór að þvo mér eftir mjög mislukkað starf, sá ég að það var aðaUega ég sem var græn... svona getur þetta verið. Ég gafst ekki upp. Næstu nótt bætti ég svörtum lit við og hætti við þann gula, en þá tók ekki betra við því hann varð svartur. Ég keypti nú fleiri liti og notaði þvínæst mest þann rauða. Ég varð næstum hrædd þegar ég sá augun í fjarlægð — þau voru miklu hættulegri en hjá Picasso. Allt- af læsti ég málverkið inni í skáp á daginn. Jæja, litirnir urðu mildari og mildari - og sömuleiðis ég, þetta var eins og gott veður eftir storm. Þegar Torsten fékk loks að sjá málverkið varð hann svo glaður að nú 58 VIKAN 3.TBL.1989 hangir það í upplýstum gylltum ramma í bókastofunni hans!“ Ætla mætti af þessu uppátæki Sigrúnar að myndlist geti komið til bjargar í hjóna- böndum — en hvemig fer þá með hina sem ekki geta málað? „Ekki veit ég nú það. Aðalatriðið er að fá útrás á réttan hátt, ég meina þannig að það særi ekki aðra. Með þessum hætti hef ég fúndið að sökin er eiginlega alltaf mín og sína eigin sök ætti að vera léttast að leið- rétta, ef viljinn er fyrir hendi. Hvort allir geti málað er kannski annað mál, en allir geta lært. Þegar hæfileikamir em með- fæddir þá gengur þetta auðveldar, hafi maður þá ekki þá lærir maður og lærir um leið að bera virðingu fyrir þessu formi og hvemig þetta fer firam. Ég hef t.d. gert það að gamni mínu að fara á alls konar nám- skeið og þar á meðal í trésmíði. Það eina sem ég gerði á námskeiðinu var að gera munstur, en það mesta sem ég lærði var að bera virðingu fyrir trésmíðinni! Þarna kynntist ég öllu því tæknilega sem tré- smiðir kunna og sem mér var hulið áður. Ég held það myndi bæta samskipti manna á milli ef fólk skildi betur það sem aðrir em að gera.“ Allar lopapeysur á heimilinu teknar I vinninga Sigrún hefúr gaman af að hafa skemmti- legt fólk í kringum sig og finnst gaman að halda veislur, ekki síst ef um íslandskynn- ingu er að ræða um leið, þó segir hún að jólahádegismatur sem hún hélt í desemb- er 1987 hafi næstum verið of viðamikill til að henni hafi verið skemmt. „Ég er í sam- tökum í Stokkhólmi sem heita Intemation- al Women’s Group. Þetta er mjög fjöl- mennur klúbbur, 5—600 konur. Flestar út- lendar giftar Svíum og allar sendiráðskon- ur em sjálfskrifaðir meðlimir, einnig Silvía drottning og Lillian prensessa. Aðalhátíð ársins er jólahádegismaturinn og þá er eitt land valið til að sjá um hann. Árið 1987 varð ísland fyrir valinu og eftir því sem ég best veit þá er þetta í fyrsta sinn sem ís- land er valið. Það var hringt til mín 17. ág- úst út af þessu og ég fór heim þann 18. Það er venja að sendiráð hvers lands hafi að mestu veg og vanda af þessari veislu, sem er auðvitað geysimikil land- kynning, en einmitt um þetta leyti vom sendiherraskipti hér í Svíþjóð. Ég sneri mér því til menntamálaráðherra, sem tók málinu vel og leiðbeindi mér hvert ég ætti að snúa mér. Á mánaðarlegum hádeg- isverðarfundum klúbbsins er alltaf happ- drætti þar sem ágóðinn er látinn renna til ákveðinnar hjálparstofúunar. Happdrætti jólahádegisverðarboðsins er þó alltaf mikilvægast, enda má segja að það hafi tvenns konar hlutverk: annars vegar að safúa fé til góðgerðarstarfa og hins vegar er þetta mikil viðskiptaauglýsing fyrir það land sem heldur veisluna. Ég sneri mér fyrst til útflutningsráðs iðnaðarins. Það gekk fljótt fyrir sig að fá að vita að um 60 fyrirtæki myndu senda gjafir í happdrætt- ið. Síðan fór ég til dóttur minnar í Washing- ton og sagði frá þessum stórkostlega við- burði í íslensku kvennaboði þar. Ég fékk að vita það á eftir að sumum kvennanna þama fannst ég nokkuð bláeyg og barnsleg að trúa á þetta. Síðan leið að veislu og þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir til að fá staðfest skriflega hvaða gjafir kæmu frá hverju fyrirtæki — að ósk JWC — þá kom vantraust ekki í huga minn. Þegar maður hefur búið svona lengi í útlöndum og stolt íslands er manni efst í huga, þá heldur maður að allir heima hugsi eins. Ég hafði ákveðið að fara til Stokkhólms á þriðju- dagsmorgni, þriðjudaginn viku síðar átti veislan að vera. Á mánudagsmorgninum var ekkert farið að bóla á gjöfúnum frá ís- landi! Þá fékk ég að vita að ekki hafði gefist tími til að safúa þeim saman. Reyndar höfðu tveir menn komið með tvo kassa til mín upp á fjórðu hæð á Skólavörðustígn- um, en lögðu þá þannig frá sér að keram- ikið sem í þeim var brotnaði að mestu — ég geymi meira að segja enn brotin í kassa! Nú voru góð ráð dýr!!! Það fyrsta sem ég gerði var að fa veislunni seinkað fram á fimmtudag og fór síðan til íslands. Á þriðjudeginum var ég í símanum allan daginn og hringdi í ótal fyrirtæki í Reykja- vík og Hafúarfirði, aðallega bókaforlög þó, og sníkti. Á miðvikudeginum keyrði ég milli fyrirtækja í ausandi rigningu og þáði þessar dýrmætu gjafir. Hjálpseminni og því góða viðmóti sem ég mætti hjá þessu fólki mun ég aldrei gleyma og ég veit að JWC er búið að skrifa og þakka fyrir en ég vil bæta þar við þökkum frá mér. Vinir mínir höfðu einnig útvegað mér dýrmætar ullarvörur og ég hafði fengið dálítið af prjónaafgöngum og á einni nóttu saumaði ég úr þeim buxur og treyjur á íslensku jólasveinana, einnig Grýlu og Leppalúða. Mér hafði verið gefið íslenskt súkkulaði til að leggja við hvern disk, með því lagði ég lítil glös með íslenska fánanum og litla flösku af svartadauða sem ég hafði keypt.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.