Vikan


Vikan - 09.03.1989, Side 13

Vikan - 09.03.1989, Side 13
Þorri blótaður í íslenska sendiráðinu í Bonn: ir óþarfa fleipur. Sagði Sigríður meðal ann- ars söguna af íslendingi einum sem kom til Luxemborgar. Hugðist hann fara á puttan- um til Þýskalands. Hann rakst fljótlega á mann í bíl. „Germany?" spurði okkar maður. „Yes,“ svaraði bílstjórinn. Þar með snaraði ferðalangurinn sér inn í bílinn. Síðan óku þeir steinþegjandi alla leið að þýsku landamærunum. Þar réttu þeir báðir fram íslenska passa! Seyddar sauðkindur Minni kvenna flutti sendiráðsskáldið Arinbjörn Vilhjálmsson, sem stundar nám í Stuttgart og er formaður íslendinga- félagsins þar. Nafnbótina göfugu, „sendi- ráðsskáld," hlaut hann á þorrablótinu, því þar var sunginn bragur eftir hann, sérlega saminn í tilefni dagsins. Undir laginu Öxar við ána var hann kyrjaður á þessa leið: Fram skulu reiddar sauðkindur seyddar sýrðar og reyktar og höggnar í spað. Allt það er seður, örvar og gleður, innbyrði gestirnir þegar í stað. Namm, namm, lostætið ljúfa, namm, namm, lundabaggi og svið. Úr trogi tormelt rengi tyggjum vei og lengi á tanngörðunum vinnum við. Geðprýðis legi lýðurinn teygi er lyfta upp öndinni á gleðinnar svið. Við neitt ei má dvelja úr nógu er að velja neytum því drykkjar að víkingasið. Skál, skál í bjór og brennivíni, skái, skál í vodka „Eldur-ís“. Höldum hátíð þorra að hætti feðra vorra og dönsum þar til dagur rís. Ekki fór það þó svo að dans væri stiginn í íslenska sendiráðinu í Bonn að þessu, sinni. Enda höfðu blótsgestir svo sannar- lega um nóg að spjalla. Það er alltaf fróð- legt að forvitnast um hagi landans, sem dvelur á ókunnum slóðum kannski svo árum og áratugum skiptir. Nú, og svo höfðu sumir fleiri og nýrri fréttir að heim- an en aðrir. Allt slíkt er ákaflega vel þegið þegar tveir eða fleiri hittast á erlendri grund. Og þetta með dansinn hefði hvort eð er verið útilokað mál, þótt gestafjöldi væri nógur, um 120 manns. Þau Björg og Páll Ásgeir veittu nefnilega svo vel, ekki bara t þorramat heldur og kaffi og gómsætum kökum á eftir, að menn voru ekki beinlínis til spretthlaupanna eftir átið. Það var því ansi vel haldinn hópur sem yfirgaf sendiráðið á ellefta tímanum eftir þetta káta laugardagskvöld á Gili. Sumir ætluðu að halda beint heim, en aðrir að gista, enda um langan veg komnir. Eitt áttu þó allir sameiginlegt, að vera pakksaddir og sælir eftir þetta afiturhvarf til uppruna síns. Þegar sá þorstláti stal öllu slátrinu Það var ýmislegt fleira en seyddar sauðkindur á borðum á þorrablótinu í íslenska sendiráðinu í Bonn. Þó fannst þar enginn lundabagginn, blóðmörinn né lifrarpylsan að þessu sinni, því einhver flngralangur hafði nappað kassanum með þessu góðgæti. - og nýtt sendiráðsskáld var vígt Það var heldur en ekki glatt á hjalla í íslenska sendi- ráðinu í Bonn í Vestur-Þýskalandi á dögunum. Þar var saman kominn stór hópur íslendinga, sem búsettir eru í Vestur-Þýskalandi, til að blóta þorra. TEXTI OG MYNDIR: HJALTI JÓN SVEINSSON Það voru heiðurshjónin Páll Ásgeir Tryggvason sendiherra og kona hans Björg Ásgeirsdóttir, sem buðu til þorra- fagnaðarins. Vart hafði klukkan slegið sex laugardaginn umrædda, þegar íslensku gestirnir tóku að streyma að sendiráðinu. Tilhlökkun mátti greina í hverju andliti og var greinilegt að fólk hafði hlakkað til þeirrar stundar þegar það fengi að mynn- ast við sviðakjammana og skola súrbragð- inu síðan niður með íslensku brennivíni. Veitingarnar ollu heldur engum von- brigðum þegar þær voru fram bornar. Að vísu kvaðst Páll Ásgeir í ræðu sem hann hélt, harma að enginn fyndist blóðmörinn, lundabagginn né liffarpylsan á þorraborð- inu að þessu sinni. Ástæðan væri sú að krásunum hefði verið pakkað i pappakassa undan áfengi heima á Fróni. Þegar verið var að bera þá úr bílnum inn í sendiráðið í Bonn, náði einhver þorstlátur að næla í einn þeirra sem skilinn hafði verið eftir á gangstéttinni eitt augnablik. „Ég hefði vilj- að sjá framan í kauða, þegar hann opnaði brennivínskassann og fann þar ekkert ann- að en slátur,“ sagði Páll Ásgeir og var greinilega ekki illa við tilhugsunina. Minni kvenna og karla voru að sjálf- sögðu flutt á blótinu, eins og lög gera ráð fyrir. Það var Sigríður Snævarr sendiráðu- nautur sem flutti minni karla. Gerði hún að yrkisefni þá staðreynd, að íslenskir karl- menn þættu ákaflega orðstilltir og lítið fýr- Gestir tóku hraustlega lagið, eins og sönnum íslendingum sæmir. Hér er það Steinn Logi Bjömsson t.v., forstöðumað- ur Flugleiða í Frankfurt, og Kristinn Blöndal frá Hamborg sem syngja (von- andi) sama lag af sama blaði. 5. TBL. 1989 VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.