Vikan


Vikan - 09.03.1989, Page 22

Vikan - 09.03.1989, Page 22
KVIKMYNDIR kennarinn hennar Dunu, sem er Kanada- maður búsettur í Englandi, tók erindinu vel, eins og við var að búast eftir jafnlang- an undirbúningstíma, og skrifaði kvik- myndahandritið. Hann er þekktur hand- ritahöfundur úti í hinum stóra heimi og hefur skrifað mörg handrit að myndum Charles Bronson. Duna fúllvissaði okkur þó um að honum hefði ekki tekist að lauma neinum Bronson atriðum inn í Kristnihaldið. En hvað með Halldór Lax- ness sjálfan? Vildi hann ekki hafa einhver afskipti af handritsskrifunum? ,Áður en við byrjuðum héldum við fúnd með honum til að vera viss um að enginn misskilningur væri á ferðinni, en síðan höfðum við frjálsar hendur," segir Duna. „Hann hefur nú líklega treyst dóttur sinni betur fyrir þessu en einhverjum ókunnugum og Ieyft henni meira," bætir Halldór við og Duna samsinnir. Gerald skrifaði síðan sína útgáfu og Duna sína og skiptust síðan á skoðunum. „Þar kom Fax maskínan sér aldeilis vel,“ segir Duna. „Og það kom í ljós að við vorum að mestu sam- mála um aðaláherslurnar í verkinu og við höfúm gætt sögunnar og varast að bæta inn í. Það eina sem við breyttum er að við setjum ramma utan um söguna þannig að myndin hefst á því að í Dómkirkjunni í Reykjavík hittast trúarleiðtogar nokkurra landa og eru að tala um vandamál varð- andi trúna í sínum heimalöndum. íslenski biskupinn segir þá ffá miklum vanda sem hann á við að glíma á Snæfellsnesi og síðan hefst sagan. Margir hafa misskilið þetta verk og talið það flókið og torskilið, en í rauninni er það sáraeinfalt. Þarna er verið að segja ffá mjög sérstöku fólki og þótt bókin hafl verið skrifúð 1967 er þarna lýst karakter- um sem við þekkjum og sjáum í dag. Það er þarna til dæmis einn sem mér finnst minna mikið á þekktan íslenskan kvik- myndagerðarmann... En það sem verkið snýst aðallega um er annars vegar maður sem elskar lífíð og allt sem lifandi er. Hann unir glaður við sitt og vill hlúa að og gera gott öllu sem lifir — þetta er Jón Prímus. Hins vegar er það Goodman sem er alltaf að hugsa um dauðann og það sem honum fylgir. Hann langar mikið til að öðlast eilíft líf, en hann hefur áhyggjur því hann hefur samviskubit yfir því sem hann hefur gert í lífinu — það hefur Jón Prímus hins vegar ekki. Jarðarfarir eru hápunkturinn hjá Goodman, Jón lítur aftur á móti á látinn mann sem einhvern sem er búinn og að honum megi henda. Þarna er því á ferð- inni annars vegar trúin á lífið og það sem er lifandi og hins vegar trúin þar sem dauðinn er í aðalhlutverki og líf eftir dauð- ann.“ Færum ekki að skilja út aff einni kvikmynd... íslenskir kvenkvikmyndaleikstjórar eru ekki margir, en Duna er ein þeirra og leik- stýrði hún Kristnihaldsmyndinni og að- stoðarleikstjórinn var einnig kona, Kristín Pálsdóttir kvikmyndagerðarmaður. Þær tvær og Halldór stjórnuðu verkinu en Halldór var framkvæmdastjórinn og fékk þar með opinbert leyfi til að segja konu sinni og öðrum fyrir verkum og til synd- anna. Eins og fyrr segir lifði hjónaband þeirra dvölina við Jökulinn af: „Við færum nú ekki að skilja út af kvikmynd," segir Halldór. En vinnan við myndina hefúr ver- ið mikil og erfið. Hópurinn sem þau þurftu að halda utanum var mjög stór því auk alls tæknifólks og annarra sem unnu við mynd- ina voru yfir 20 atvinnuleikarar sem léku í mvndinni og fjöldi fólks kom þar fram í aukahlutverkum. „Við réðum tökumann frá Þýskalandi, aðallega vegna þess að hér heima var eng- an að fá,“ segir Duna. „Ég hringdi til for- manns tökumanna í Þýskalandi og spurði hann hvort hann vissi ekki um einhvern ungan og hressan sem vildi koma og vinna á íslandi um sumarið. Og hann svarðaði: ,Jú. Mig.“ Hann kom svo með aðstoðar- manni sínum. Þetta er maður um fimm- tugt og þar að auki Prússi, þannig að stundum bar aðeins á kynslóðabili. Auk þess sem hann hafði aldrei vanist vinnu- brögðum eins og hjá okkur. Hann gerði ekki annað en það sem honum bar og skildi ekkert í því hvað Dóri ffamkvæmda- stjóri væri að meina með því að vera að ýta „dollý“ eða ég og Stína að bjástra við hesta sem nota átti í tökunni. Hann kenndi þeim sem voru að vinna þarna mjög margt, en hann lærði líka af okkur og hann var alveg hissa á hversu miklir atvinnu- menn íslensku leikararnir eru. Á því hafði hann ekki átti von.“ Hópurinn vann alveg ótrúlega vel sam- an og var mjög samvinnuþýður," segir Halldór. „Við bjuggum vel að leikurunum, létum þá hafa skásta húsið og bíl til um- ráða. Við hin sem unnum að myndinni vorum öll á sömu launum þannig að launatal var þar með alveg úr sögunni. Við urðum fyrir miklum skaða þegar risastór leikmynd fauk eins og hún lagði sig í óveðri. Það hafði tekið margar vikur að byggja hana, en fólkið sagði þetta tekur 48 tíma og það stóðst, enda tóku allir til hendinni hvort sem þeir hétu leikarar eða smiðir.“ Kreppti hnefann og sló... En hvernig gekk að sameina hjónaband- ið og samstarfið? „í svona stórmáli er hjónabandinu hreinlega hent,“ svarar Halldór. „Það er erfitt að vera giftur kon- unni sem eyðir peningunum sem verið er að reyna að spara. Ég fékk til dæmis gæsa- húð þegar ég heyrði Dunu nefna orðið „æfingu", því það þýddi peningatap." Duna flýtir sér að grípa fram í: „Stína klippti myndina og hún hjálpaði mér líka að eyða. Dóri var líka svo leiðinlegur, hann var allt- af að tala um hvað ég eyddi mikilli filmu, mældi næstum með tommustokk hvern sentimetra sem tekinn hafði verið yfir daginn." Þau líta hvort á annað og segja svo: „Eigum við ekki bara að láta það vaða. Fólk þorir aldrei að segja neitt í viðtölum: Það var búið að eyða svo mikilli filmu, búið að vera óveður og allt ómögulegt. Dóri var að röfla yfir filmunum. Ég kreppti þá hnefann og kýldi Dóra. Hann fékk þetta svaka glóðarauga." „Ég varð mest hissa,“ segir Halldór. „En ég sýndi alla vega enga tilburði til að slá á móti. Við settumst svo niður með sátta- semjaranum Stínu Páls og leystum þetta og það meira að segja svo vel að á eftir náðum við upp fjögurra daga tíma og pen- ingatapi." Bæði íslendingar og útlendingar unnu við myndina, en 10 milljóna króna styrk til að gera hana fékk Umbi ffá Kvikmynda- sjóði íslands í janúar í fyrra og 3 milljónir í ár. ísland er í tísku í Þýskalandi og telja Þjóðverjar peningum vel varið ef þeir styrkja íslensk verk, þannig fékk Umbi 11,8 milljónir til verksins frá SDR í Þýska- landi. Heildarkostnaður er áætlaður 38 milljónir þannig að til að dæmið gangi upp þarf um 42.000 áhorfendur. En Duna, Halldór og Kristín vildu ekki spara, til þess var þetta alltof mikilvæg kvikmynd. Hall- dór sagði að það hefði verið frumskilyrði að gera góða leikmynd og að hún ein og búningar hefðu kostað þau 6 milljónir. Stella í orlofí er mynd sem Umbi gerði og var hún einhver vinsælasta íslenska myndin sem sýnd hefur verið, enda varð af henni nokkur gróði. Umbamenn settu peningana í banka og ætluðu að eiga til að grípa til þegar þau legðu í næstu mynd, en skatturi nn heimtaði sitt og tók 51%. Það sem eftir var nægði þó til að fá handrita- smiðinn góða sem fýrr er getið og til að fleyta þeim yfir það helsta á meðan verið var að leita eftir fjármagni erlendis. „Ég var alveg á því að gefast upp segir Duna, en Dóri ýtti á mig og hélt stöðugt áfram að leita eftir fjármagni." Kristnihald undir Jökli er bók sem margir kunna nærri utan- bókar, eru þau ekkert hrædd við saman- burðinn? „Leikaramir voru í upphafi dálítið áhyggjufúllir afþví karakterarnir í sögunni eru svo þekktir. Ég sagði þeim að reyna að leika þetta mjög blátt áfram og ekki ofgera neitt, en ég er alveg viðbúin því að ein- hverjir segi að þetta sé ekki sú Úa eða sá Umbi sem búist var við. Að mörgu leyti var mjög erfitt fyrir leikarana að leika hlut- verk sín, því öll útiatriði voru tekin á Arn- arstapa og inniatriði í Mosfellssveit. Þann- ig að þegar þeir stigu inn um dyr á Arnar- stapa var það í raun ekki fyrr en mánuði seinna í Mosfellssveit sem þau voru komin inn og þurftu þá að muna hvernig stemn- ingin var mánuði áður.“ Þegar Vikan kemur út verður ffumsýn- ingin afstaðin og margir búnir að sjá myndina, en viðtalið átti sér stað tveim dögum fýrir frumsýningu og hvernig leið þeim Dunu og Halldóri þá? „Óskaplegur kvíði yfir því að manni hafi ekki tekist nógu vel upp, en um leið tilhlökkunarefni að nú er barnið fætt,“ segir Duna. „Nú á bara eftir að athuga hvort allt sé í lagi með barnið,“ segir Halldór. „Annars er ég svo jarðbundinn að ég er að hugsa um húsið okkar sem er veðsett upp í topp .. 22 VIKAN 5. TBL. 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.