Vikan - 09.03.1989, Side 42
HÁR
OGGI - í DAG
og háril í lag!
Forsíðustúlkur Vikunnar sem og stúlkan á
myndinni hér fyrir neðan bjó hárgreiðslu-
og snyrtistofan Perma undir myndatöku hjá
Magnúsi Hjörleifssyni, en aðrar myndir tók
Gústaf Guömundsson fyrir þessa OGGI-um-
fjöllun. Þeim stúlkum greiddi Fernando Romero
og förðun hans stúlkna annaðist Irene Jóns-
dóttir.
Hér á eftir fer viðtal við Fernando um OGGI,
en ykkur lesendum til fróðleiks viljum viö hins
■'vegar segja að Perma er við Eiðistorg á Sel-
tjarnarnesi síðan í fyrra er hárgreiðslustofan
flutti úr Garðsenda. Einnig hefur Perma rekið
stofu við Hallveigarstíg í 15 ár, en á þessu ári
eru liðin 30 ár síðan Arnfríður (saksdóttir opn-
aði fyrstu stofuna undir þessu nafni. Hún er
enn að og hefur fengið dætur sínar, Björgu og
Láru, til aöstoðar. Raunar eru fimm úr fjölskyld-
unni að auki að störfum í faginu í dag.
Forsíðustúlkurnar eru með OGGI-perman-
ent, en hár stúlkunnar hér fyrir neðan var blásið
uppúr Rootlift frá OGGI.
TEXTI: GUÐRÚN ALFREÐSDÓTTIR
LJÓSM.: GÚSTAF GUÐMUNDSSON
og MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Hvað dettur þér í hug þegar þú
heyrir nafnið OGGI? Ekkert
sérstakt? Eða kemur kannski upp
í hugann óljós mynd af fagur-
limuðum nöktum kvenlíkama,
sveipuðum flaksandi hári niður á
fótleggi? Ef svo er þá ertu með á
nótunum. OGGI er hársnyrtivör-
ur sem komu á markað fyrir
u.þ.b. tveimur árum og eru á
góðri leið með að sigra heiminn.
Auglýsingamar, sem sýna hinar
mjög svo hárprúðu stúlkur, hafa
og vakið þá athygli sem til var
ætlast. Ekki síst fyrir „frumlegheit
í einfaldleika sínum“ eins og
hönnuður OGGI-línunnar, Fem-
ando Romero, segir, en hann á
einmitt heiðurinn af hárgreiðsl-
unni.
Vikan náði tali af Fernando á dögunum
er hann var hér staddur að kynna OGGI
hársnyrtivörurnar. Hann er bæði hönnuð-
ur hjá fyrirtækinu og framkvæmdastjóri
framleiðsludeildar en þar að auki hár-
greiðslumeistari kvikmyndastjarnanna í
Beverly HiHs. Að gömlum og góðum >s-
lenskum sið var fyrst spjallað um veðrið
og eftir vænan skammt af öfgafullum ís-
lenskum umhleypingum sagðist meistar-
inn hafa sannfærst endanlega um sérlegt
ágæti OGGI varanna hérlendis. Hann segir
þessa hársnyrtilínu, sem bæði er ætluð
konum og körlum, hafa að geyma allar þær
tegundir efna sem nauðsynleg eru til
verndar hári í rysjóttri veðráttu. OGGI-
línan samanstendur af þremur mismun-
andi sjampótegundum, ólíkum hárnæring-
um og rakagjöfum, hárlökkum, geli og
svonefndu „root lift“ sem gefur hárinu fyll-
ingu með því að úða því niður við hár-
svörðinn.
„Það hefur tekist mjög vel til með þess-
ar vörur,“ segir Fernando. „Þær eru ríkar af
vítamínum, hafa mildan ilm og skilja ekki
eftir nein afgangsefni eða flygsur í hárinu.
Þarna eru góð efhi sem byggja upp hárið,
mýkja það, gefa því aftur fallegan gljáa og
fyllingu. Mjög fljótlega kemur svo á mark-
aðinn ný OGGI tegund, en það er mjög
góð sólarvörn fýrir hárið.
Hönnuður OGGI hársnyrtj