Vikan


Vikan - 09.03.1989, Síða 44

Vikan - 09.03.1989, Síða 44
OGGI = í dag Fernando Romero segir að OGGI vör- urnar hafi náð ótrúlegri útbreiðslu og vin- sældum um allan heim eftir aðeins um tvö ár á markaðinum. „Oggi er ítalskt orð og þýðir ,í dag‘, enda má með sanni segja að OGGI bjóði hársnyrtivörur dagsins í dag. Þær eru á margan hátt ffábrugðnar öðrum slíkum vörum og það undirstrikum við með öðruvísi auglýsingum. Með þessum myndum af síðhærðum hálfnöktum stúlk- um erum við sannarlega ekki að höfða til hins kynferðislega heldur aðeins fegurðar og dulúðar, hins upprunalega. Þessar myndatökur hafa tekið allt upp í 14 klukkutíma og mikið verið vandað til hvers smáatriðis. Viðbrögð við myndun- um hafa heldur ekki látið á sér standa og yfirleitt eru þau mjög jákvæð. En margar konur hafa þó skrifað okkur og látið í Ijós ósk um að fá sambærilegar myndir af karl- mönnum. Og hver veit nema þær fái ósk sína um OGGI karlmann uppfyllta með tíð og tíma. Breytingin má ekki verða of rót- tæk en ég gæti hugsað mér hana þannig að það kæmi eins konar útlínumynd af karl- manni inn í mynd OGGI stúlkunnar, sem hennar draumsýn." Stjörnurnar og slúðursögurnar Hárgreiðslumeistarinn Fernando Rom- ero er fæddur í Mexíkó. Hann er mexí- kanskur í aðra ættina en ítalskur í hina. Hann byrjaði að læra arkitektúr í Kaliforn- íu ásamt bróður sínum en fannst fljótlega að nóg yrði að hafa einn slíkan í ættinni og 42 VIKAN 5. TBL. 1989

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.