Vikan - 09.03.1989, Síða 50
5IFJA5PELL
Siálfshjálp
og samhjálp
Síðan í janúar 1987 hafa
verið starfandi á vegum
Vinnuhóps gegn sifja-
spellum svokallaðir sjálfshjálp-
arhópar. Fram til þessa hafa 11
hópar lokið byrjunarstarfl. í
þessum hópum eru konur sem
orðið hafa fyrir einhvers konar
kynferðislegu ofbeldi í æsku af
hálfu nákomins einstaklings.
Starflnu er stjórnað af félags-
ráðgjafa og konu, sem sjálf hef-
ur slíka reynslu.
Venjulega eru 5—6 nýliðar í
hverjum hóp. Hópurinn hittist
í fyrstu tvisvar í viku en síðan
einu sinni í viku. Tólf sinnum
alls í byrjun. Að því loknu einu
sinni í mánuði í einhvern tíma,
allt að einu ári. Óski einhver
eftir aukafundi er alltaf orðið
við því. Að þessu byrjunar-
starfi loknu eiga konur kost á
að starfa í svokölluðum starfs-
hópum eða bakhópum.
Stjórnendur sjálfshjálpar-
hópanna ákveða hvaða um-
ræðuefni skal tekið fyrir
hverju sinni og það rætt frá
ýmsum sjónarmiðum. Þó er
það svo, að liggi einhverri eitt-
hvað þungt á hjarta er það lát-
ið ganga fyrir öllu öðru eíni.
Sumar konur sem koma í
þessa sjálfshjálparhópa hafa
þegar verið í meðferð hjá sál-
fræðingum og/eða geðlæknum
með misgóðum árangri. Flest-
ar eru vansælar þegar þær
koma. Sjálfsálit lítið og einnig
er sjálfsöryggið lítið sem
ekkert. Lengi hafa þær e.t.y.
einar barist við sára reynslu og
nagandi og niðurdrepandi ógn
þeirra minninga, sem þær bera
með sér. Dagleg kvöl, sífelld
mistök á ýmsum sviðum,
stöðug sjálfsásökun og sjálfs-
eyðingarhvöt kvelja þessar
konur.
Margar vænta sér einskis í
upphafl þessara funda. Þær
hafa þegar reynt margt til þess
að gera sér lífið bærilegra — en
ekkert dugað. Það sakar svo
sem ekki að reyna þetta líka.
En það undarlega gerist, að
þegar farið er að tala við kyn-
systur sínar og ekki síst að
hlusta á þeirra reynslu smá-
Haustiö 1986 voru stofnuð grasrótarsamtök
sem kusu sér heitið Vinnuhópur gegn sifja-
spellum. Það voru nokkrar konur sem komu
saman og ræddu málin, um hvað mætti betur
fara og best væri að gera. Þetta voru félags-
ráðgjafanemar, kennari þeirra og fleiri konur
sem höfðu áhuga á málunum. Þeim varð fyrst
fyrir að hafa opinn neyðarsíma tvo tíma á kvöldi
í viku. Tuttugu og sjö konur hringdu. Þær komu
síðar í viðtal og fyrsti sjálfshjálparhópurinn
byrjaði í janúar 1987. Og í febrúar 1988 opnaði
hópurinn skrifstofu að Vesturgötu 3 sem er
opin þrjá tíma á dag og lengur ef þörf krefur.
breytist kvölin og verður bæri-
legri. Svo undravert er að
heyra aðra konu lýsa tilfinn-
ingum sínum og sjá svo sem í
skuggsjá eigin þjáningu í henn-
ar augum. Þá verður eigin van-
sæld viðráðanlegri því samúð-
in og samkenndin með henni
verða sterkari og meiri. Smám
saman vex þessi styrkur og
manneskjan verður „vel
gróin“. Heil verður hún aldrei,
ekki fremur en brotinn limur,
en „vel gróin“ getur hún orðið.
Og hverri manneskju, sem
lengi hefur gengið um með
„brotna limi“ er mikill léttir og
lífshamingja að fá að ganga
áfram „vel gróin“.
Ekki er það síður mikilvægt
að hafa eignast „systur" og eiga
þær að. Vita það með vissu og
treysta því fullkomlega að eiga
þær alltaf að. Það eru ótrúleg
auðæfi.
Það er vitað mál að bæði hér
í Reykjavík og víða úti á landi
eru konur sem enn eru einar
með kvöl sína. Þær hugsa yfir-
leitt þannig að þetta sé ekki
fyrir þær. Þar kemur margt til:
Þeim finnst þær of gamlar, of
ættgöfiigar, of menntaðar, of
ríkar, of fátækar, of ungar, of
stoltar o.s.frv. En ekkert af
þessu skiptir máli. Það eina
sem máli skiptir er að vera
manneskja, sem hefur verið
svikin og svívirt og síðan borið
sligandi byrði gegnum lífið.
Þetta er besta leiðin til að
létta af sér okinu. í sjálfshjálp-
arhópnum eru allar jafnar og
deila öllu jafnt og bera allt
jafnt í fullum trúnaði og ævi-
langri þagmælsku. Það er eng-
in þörf á að þjást lengur vegna
misgjörða annarra. Það tekur
að vísu á að ganga í gegnum
starf í sjálfshjálparhóp - en
það er eins og meðganga og
barnsfæðing - erfitt og sárt -
en það fæðist ný manneskja og
sársaukinn gleymist. Nýtt líf
getur hafíst. Hikið ekki lengur.
Hringið í síma 21260 milli kl.
13 og 16 virka daga og talið
við Söru Karlsdóttur á skrif-
stofu samtakanna. Það er þess
virði. Kotia tir 10. hópnum.
48 VIKAN 5. TBL. 1989