Vikan


Vikan - 09.03.1989, Síða 68

Vikan - 09.03.1989, Síða 68
5TJ0RMUMERKI SÍÐARI HLUTI: Þannig eru fískarnir Fæturnir skipta máli Fæturnir eru mjög mikil- vægir í huga fiskanna. Þeir eru annað hvort mjög nettir og fal- legir — ef um stúlkur er að ræða — eða þvert á móti — al- gjör hryllingur. Fiskar hugsa ótrúlega mikið um skóna sína, sem annað hvort verða að vera einstaklega vandaðir og falleg- ir eða þeir ganga um í ein- hverjum rosabullum. Þeir hafa áhyggjur af heilsufari sínu og oftast að ástæðulausu. Þeir ættu að gæta sín þegar lyf eru annars vegar, jafnvel þótt læknar hafi mælt fyrir um notkun þeirra. Þeim hættir til að hafa ofnæmi fyrir lyfjum og þyrftu því að láta kanna hvort þeir þola ákveðin lyf áður en þeir fara að nota þau. Óhreint vatn og fiskeitrun getur verið þeim hættuleg. Annars er stærsta vandamál fiskanna lík- lega hvað þeir eru veikgeðja og komi eitthvað fyrir þá eru þeir fljótir að komast að þeirri niðurstöðu að einhver skúrkur hafi farið illa með þá. Sálrænt innsæi Náttúrulegt innsæi er þýð- ingarmikið fyrir fiskana, en samt verða þeir að reyna að stjórna þessum eiginleika svo óraunsæið nái ekki yfirhend- inni. Þeim hættir til að segja: Já, ég veit að þetta passar ekki, en mér finnst samt að ... Rökræna og skynsemi hafa ekkert með ákvarðanatöku fiskanna að gera. Þeir geta ekki tengt saman A og B og komist að niðurstöðu C. En það merkilega er að þrátt fyrir allt komast fiskarnir að réttri niðurstöðu efitir að hafa farið í kringum vandann eins og kött- ur í kringum heitan graut. Fiskar og vinátta Þegar fiskarnir eiga erfitt munu vinir þeirra fá að vita af því og hjálpin sem veitt er verður margendurgoldin því fiskarnir gleyma ekki því sem fyrir þá er gert. Það er auðvelt að umgangast þá nema þeir séu undir miklu tilfinninga- legu álagi. Þeir eru þó heldur óstundvísir og þeir stundvísu verða að gera sér þetta ljóst til þess að allt gangi vel. Fiskar eru ekki árásargjarnir en þeir verða að vera meðvitaðir um að þeim hættir til að láta nota sig. Fiskarnir og ástin Þegar fiskur verður ástfang- inn fylgir því fullkomin alvara. Þeir eru mjög rómantískir og sá eða sú útvalda á án efa eftir að verða hrifin af öllum þeim dýrlegu gjöfúm, blómum, ilm- vötnum sem berast og svo kvöldunum úti, hvort heldur sem er á veitingastöðum eða skemmtistöðum. Fiskamir elska lífið og finnst gaman að skemmta sér og því má vænta smámálsverða á notalegum veitingastöðum af og til. Fisk- arnir eiga eftir að sveiflast upp á efstu tinda og niður í hyldýpi örvæntingarinnar á meðan á ástarævintýrinu stendur vegna þess hve tilfinninganæmir þeir eru. Ástarævintýri með fiski er ekkert venjulegt ástarævintýri og þeir sem í því lenda eiga eftir að minnast þess lengi og af ýmsum ástæðum. Fiskar og hjónaband í hjónabandi verða fiskarnir að gæta þess að láta ekki til- finningarnar hlaupa með sig í gönur. Þeir eru mjög dóm- harðir í hjónabandinu og fjasa yfir einskisverðum smámun- um en sjá eftir því sem þeir hafa sagt um leið og það er gert. Þeim hættir til þess að lenda í ástarævintýrum utan hjónabandsins en hafa um leið meiri hæfileika en aðrir til þess að halda lífi í ástareldinum inn- an þess. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Þú ert vannærður á ein- hverju sviði og verður að fá útrás á einhvern hátt. Notaðu skynsemina og farðu að öllu með gát. Þú munt hafa heppnina með þér í ákveðnu máli sem fæst úr skorið seinni hluta vikunnar. Nautið YJ 20. apríl - 20. mái Fjölskylda þín mun eink- um njóta þessara daga. Þú verð- ur nokkuð mikið út á við og sérð margt og heyrir sem vekur áhug- ann. Vertu ekki of bráðlátur og taktu ekki þátt í neinum fram- kvæmdum. Heillatölur eru 4, 13 og 26. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Þú hættir við ákveðið ferðalag vegna fjölskyldu þinnar. Það gæti farið svo að þú yrðir um stundarsakir að taka á þig vinnu annarrar persónu. Þú færð góða heimsókn gamalla kunningja, frá unglingsárunum. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Tækifæri til að láta Ijósið skína kemur alveg óvænt en þú munt ná glæsilegum árangri og hækka í áliti meðal kunningj- anna. Á miðvikudag gerist at- burður sem þú getur ekki fundið meininguna í. Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Þú hefur mikinn tíma til að sinna eigin málum. Einhverju af honum skaltu verja til að endurgjalda heimsókn og greiða- semi kunningja þíns. Þú ættir að fylgjast betur með högum ákveð- ins skyldmennis þíns. Meyjan 24. ágúst - 23. sept. Þú hefur verið með hug- ann bundinn við eitthvað ákveðið undanfarið en visst atvik verður til þess að þú missir áhugann í bili. Vinur þinn verður fyrir tilfinn- anlegu óhappi, þú ættir að gera þitt til að létta undir með honum. Vogin 23. sept. - 23. okt. Þú gerir eitthvað sem þú verður mjög hreykinn af, og þú munt fá hrós fyrir. Dagarnir verða hver öðrum líkir, en kvöldin hafa tilhneigingu til að verða dálítið óþjál. Amor kemur við sögu. Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þú kemst að einhverju ráðabruggi sem gerir þig mjög spenntan. Varastu samt að láta bendla þig við það. Margt ber á góma og eru eftirmiðdagarnir fjörugastir. Þú lendir ( skemmti- legu heimboði. Bogmaðurinn 22. nóv. — 21. des. Þú hefur tekið á herðar þér allmikið verkefni og stendur með undraverðum ágætum í skil- um á því. Helgin verður mjög skemmtileg og tilvalin til smá ferðalags. Láttu ekki ákveðin mál dragast á langinn. Steingeitin 22. des. - 19. janúar Þú hefur gerst of frekur og ráðríkur með ákveðinn hlut og kann það ekki góðri lukku að stýra. Varastu að treysta ákveðn- um aðila - honum er ekki sjálf- rátt í bili. Það er skynsamlegt að vera sem mest heima. Vatnsberinn 20. janúar - 18. febrúar Þú verður fyrir einhverju happi en þú mátt ekki eyðileggja hluta af því með galgopahætti og kæruleysi. Haltu fast um þitt. Þú hefur allmikil samskipti við ákveðinn kunningjahóp. Happa- litur er blátt. Fiskar 19. febrúar - 20. mars Þú virðist mjög vinsæll og eftirsóknarverður þessa dagana en þú færð þig fljótt fullsaddan á því. Þú þarft að vera ákveðnari og kunna að bíta frá þér á kurteislegan hátt. Þú verður að heiman um helgina. 66 VIKAN 5. TBL.1989 5TJORMU5PA

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.