Vikan - 19.04.1990, Síða 32
- AÐ
VERÐA
BORGAR-
FULLTRÚI
Ásgeir Hannes
með dótturina,
sem fæddist á
afmælisdegi
formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Asgeir Hannes Eiríksson,
þingmaöur Borgara-
L flokksins, er maöur
Vikunnar. Ásgeir hefur nýveriö
ákveöið að ganga til samstarfs
viö ný samtök Reykvíkinga,
Nýjan vettvang, og taka þátt í
prófkjöri fyrir borgarstjórnar-
kosningarnar í vor.
- Hvað er mest ögrandi
við starf þitt? (Hvaða draum
áttu varðandi starf þitt?)
Aö því getur lokið hve-
nær sem kjósendur kveða
upp sinn dóm. Ég á þann
draum aö draumar mínir
rætist.
- Hvað er mesta
afrek þitt til
þessa? (Hver
eru stærstu
mistökþín?)
Líklega er
mesta og
jafnvel eina
afrek mitt til
þessa aö hafa
næstum því náö aö
hemja mataræðið.
Mestu mistök
mín eru aö hafa ekki náð því
fyrr.
- Hvað vekur með þér
mesta ástríðu?
Völd og áhrif til að hrinda
hugmyndum mínum ( fram-
kvæmd og láta drauma
rætast.
- Hvað er það besta sem
henti þig á síðasta ári?
Þaö besta sem henti mig á
síðasta ári var aö eignast dótt-
ur þann 29. október, á afmæl-
isdegi Þorsteins Pálssonar,
vinnufélaga míns og bekkjar-
bróður.
- Hvað mynd-
irðu gera ef þú
þyrftir ekki að
vinna?
Leita mér aö
vinnu.
- Hvernig frí
viltu helstfara í?
Langt frá og launað.
- Langar þig að vera
frægur? (Ef svo er, fyrir
hvað?)
Já. Fyrir aö þoka einhverju
góðu máli áleiöis eöa jafnvel
koma því í höfn.
- Hvað myndirðu gera
við féð efþér væru gefn-
ar 100 milljónir á morg-
un?
Það hefur enginn
maður gott af pening-
um sem hann hefur ekki
svitnað fyrir sjálfur. Því
myndi ég nota hæfilega
fúlgu til aö losa mig und-
an hamrinum en skipta
bróðurpartinum á
milli góöra líknar-
félaga. Aö lokum
myndi ég sáldra
fáeinum hnefa-
fyllum yfir
þingheim eins
og Egill og sitja
álengdar og
hlusta á skakið.
- Hvernig var að
alast upp íþinni fjölskyldu?
Mér þótti gaman að alast
upp hvort sem þaö var innan
fjölskyldunnar eða utan.
- Hvaða kosti þína þakk-
arðu uppeldinu?
Kostirnir komu allir með
uppeldinu en lestina kom ég
með sjálfur.
- Hvernig samband viltu
við hitt kynið?
Alhliða samband og ekkert
múður.
- Ertu rómantískur? (Ef
svo er, hvernig?)
„Ennþá brennur mér í
muna, meira en nokkurn skyldi
gruna..."
- Hvernig finnst þér karl-
menn frábrugðnir konum?
^Karlmenn eru grófari en þó
veikari.
- Hvað gerir þig ánægð-
an?
Fleiri atkvæði.
- Hvað gerir þig dapran?
Færri atkvæði.
M A Ð U R
VIKUNNAR
- Sem barn, hvað ætlað-
irðu þá að verða þegar þú
yrðir stór?
Borgarfulltrúi í Reykjavík.
- Hvað telurðu að geri þig
frábrugðinn öðru fólki?
Auðu stólarnir í þingsalnum
þegar ég tek til máls.
- Trúirðu á Guð?
Ég trúi á Guð sem æðra
máttarvald og bið til hans oft á
dag til að halda sálarró. Reyni
aö skynja andann á bak við
textann í Biblíunni og Guð gefi
mér æðruleysi.
- Að hve miklu leyti
finnst þér gjörðir þínar sem
einstaklings geta haft áhrifá
þjóðfélagsbreytingar?
Með því að gleyma því sem
ég get ekki gert og einbeita
mér að því sem ég get gert,
því dropinn holar steininn.
- Hver finnst þér vera
þrjú mikilvægustu þjóð-
félagsmálin í dag?
Að raða verkefnum í þá röð
að sem flestir njóti góðs af
hverju verki en hvorki fáir eöa
jafnvel enginn.
Að draga svo úr vaxta-
okrinu í þjóðfélaginu að at-
vinnulífið og heimilin rétti
aftur úr kútnum, atvinnu-
leysi minnki og gjaldþrotum
fækki.
Að afnema matarskatt og
lækka verð á matvælum þann-
ig að þau séu ekki lengur mun-
aðarvara.
TEXÍI: ÞÓRDÍS BACHMANN