Vikan


Vikan - 19.04.1990, Qupperneq 46

Vikan - 19.04.1990, Qupperneq 46
UÓSM.: ARNAR STEINN VALDIMARSSON Hann var hress, unglingaskiptahópur CISV 1989. Hér eru alllrsaman í gönguferð á Seltjarnarnesl. CISV-SAMTÖKIN Frh. af bls. 31 FORELDRARNIR SKEMMTA SÉR LÍKA ClSV-samtökin gerðu það því ekki aðeins að verkum aö unglingarnir kynntust, heldur einnig fullorðna fólkið og enn betur síðar þegar allir fóru saman í skoðunar- ferð með þýsku krakkana að Gullfossi, Geysi og Þingvöllum þar sem nesti var snætt úti undir berum himni rétt á meðan stytti upp. Auk þessa fóru nokkrar fjölskyldur saman I útilegu á Snæfellsnesi. Krakkarnir gerðu síðan heil- margt saman með fararstjórunum og án þess að foreldrar væru þar með. Rétt áður en allir krakkarnir fóru til Þýskalands var haldin kveðjuveisla þar sem allir hittust einu sinni enn - og það var ekki laust við að þeir fullorönu yrðu heldur daprir á kveðjustundinni því þeir vissu að þar með væri komið að síðustu skemmtilegu samverustund hinna fullorðnu sem höfðu ekki síður en krakkarnir skemmt sér mjög vel saman þetta sumar. Án efa hefur það sama veriö uppi á teningn- um hjá þeim fullorðnu í Þýskalandi því þar hitt- ust líka allir reglulega og fóru í útilegu saman. Islensku krakkarnir fóru til Luneborgar þar sem þau fengu loksins að sjá sólina þetta sumar og þótti meira að segja allt of heitt stundum. Eins og ætlunin var kynntust þau þarna ólíkum sið- um og venjum miðað við það sem þau voru vön og fannst sumt skrítið en flest skemmti- legt. Þau ferðuðust heilmikið og upplifðu margt en skemmtilegast fannst þeim þó að vera sam- an sem þau hefðu varla haft tækifæri til nema með því að taka þátt í ClSV-starfinu. STARFSEMI SUMARSINS í FULLUM UNDIRBÚNINGI f sumartaka íslensk börn eins og endranær þátt í unglingaskiptum og sumarbúðum CISV, auk annarrar starfsemi sem til dæmis getur verið að vera aðstoðarmaður fararstjóra sé maður á aldrinum 16-18 ára og fara í vinnu- búðir þar sem unnið er að þvi að auka þekk- ingu á starfsemi samtakanna. íslandsdeild ClSV-samtakanna var formlega stofnuð 1981, þó fyrsti hópurinn frá íslandi færi í sumarbúðir árið 1951. Þegar þetta er skrifað er undirbún- ingur fyrir starfsemina næsta sumar kominn á fullt skriö en hvort búið er að fullskipa í öll sæti er ekki vitað. Þeir sem vilja fá upplýsingar um það og frekari upplýsingar um starfsemi sam- takanna geta skrifað til þeirra og stílað bréfið á CISV - ísland, Box 86, 210 Garðabæ og þó það komi í Ijós að ekki sé hægt að komast með þetta árið er hægt að leggja inn umsókn strax fyrir það næsta því á hverju ári er alltaf eitt- hvaö spennandi og skemmtilegt aö gerast hjá CISV - fyrir börn, unglinga og síðast en ekki síst þá fullorðnu. mdSSQdn Frh. af bls. 45 manninum og tveimur lyftustrákum upp stig- ana. Hún beiö í um það bil þrjár mínútur en hélt síðan aftur upp á þriðju hæö. Dyrnar á her- bergi hennar stóðu opnar og það heyrðust hróp og köll og hark og dynkir að innan. Tíma- áætlun hennar hafði staðist fullkomlega. Hún brosti með sjálfri sér þegar hún hugsaði til þess hversu snilldarlega hún hafði getið sér til um ætlunarverk McGraths. Hún gekk inn í her- bergiö og rak upp óp. „Nú er allt í lagi, frú,“ sagði leynilög- reglumaöurinn. „Við náðum honum. Hann hef- ur brotist inn í herbergið. Þér voruð heppnar að sleppa lifandi úr klónum á honum." „Ian,“ hrópaöi frú Beauvais og reyndi að sýnast undrandi. „Þú'“ lan McGrath neitaði harðlega þeirri ásökun að hann hefði gert tilraun til að myrða einn eða neinn, síst af öllu þessa gömlu norn. En lög- reglumaðurinn hlustaði ekki á hann heldur tók fyrir munn hans og sneri upp á handlegginn á honum. Eftir nákvæma leit í fötum McGraths lýsti leynilögreglumaðurinn því yfir að hann hefði ekki verið búinn að stela neinu. „Ó, lan,“ sagöi frú Beauvais. „Þú reyndir aö stela frá mér. Og ég sem ætlaði að gefa þér þá peninga sem þú þarfnaðist." Leynilögreglumaðurinn leiddi McGrath nauðugan á brott með aðstoð lyftudrengjanna. Dyrnar lokuðust og frú Beauvais gekk rólega inn í baðherbergiö og opnaði tannburstann sinn. Hún tók skartgripina upp úr handtösku sinni og setti þá inn í tannburstann. Hún skrúf- aði lokið á og brosti enn einu sinni með sjálfri sér sigri hrósandi yfir því hversu vel þetta hefði gengið allt saman. Hún þurfti aldeilis að gera sér glaðan dag í tilefni af því. Hún fór niður og inn á barinn. Hún dreypti á pernodglasi og virti fyrir sér karlmennina sem sátu við barinn. Enginn þeirra var af sömu manngerð og McGrath. Hún vissi þaö því að hún hafði kynnst náungum eins og honum um allt landið, sérstaklega þó i New York. Hún þekkti þá um leið og hún sá þá. Sumir hófu svik sín á því að tala um hlutabréf; um öll þau reiðinnar ósköp af peningum sem mætti græða á einhverjum olíunámum - ef aðeins fengist fé til að nýta þær og hefja fram- kvæmdir. Aörir voru ekki eins stórtækir né hug- myndaríkir, litlir karlar eins og þessi McGrath. Þeir reyndu aö opna skartgripaskrín gamalla kvenna meö persónutöfrum sínum. En hún - sjálft fórnarlambið - hafði skotið þeim öllum ref fyrir rass! Þetta var áhættusamt líferni og oft þurfti að tefla á tæpasta vað en það var spenn- andi og ævintýralegt og hún naut þess að bjarga sér á síðustu stundu með því að nota hið frjóa ímyndunarafl sitt. Celine Beauvais, hugsaði hún og saup á glasinu. Þau voru orðin mörg nöfnin sem hún hafði borið og sömuleiðis sögurnar sem hún hafði spunnið upp. Hún var hreykin af því sem henni hafði dotti í hug í þetta sinn - sögunni um Ijónin tíu. Hún hafði nýlega lesið þetta spakmæli eftir Coolidge og allt í einu hafði því skotið upp í huga hennar. Og þetta spakmæli hafði heldur betur sannast á vesalings McGrath. Hún hafði í rauninni aðvarað hann þegar hún sagði honum að tíunda Ijónið kæmi ævinlega á óvart, eins og þruma úr heiðskíru lofti. En hann hafði ekki skilið við hvað hún átti. Hún borgaði þjóninum, fór út úr barnum með þetta indæla pernodbragð á tungunni. Við af- greiðsluborðið sagði hún skrifstofumanninum að hún færi af hótelinu eftir klukkutíma. Hún sagði honum hreinskilnislega að hún ætlaði að skipta um hótel - fara á betra og virðulegra hótel, þar sem gamlar konur gætu verið í friði og búið við fullkomið öryggi. Hún heimtaði að fá endurgreitt það sem hún hafði greitt fyrir- fram. Hann kinkaði kolli, tautaði nokkur af- sökunarorð og reyndi að brosa. Þegar hún hafði lokið við að pakka niður dót- inu sínu hringdi hún í afgreiðsluna og bað þá um að senda Jerry upp til þess að bera farang- urinn. Hún gerði sér Ijóst að hún mundi sakna þess glaölega stráks sem hafði verið svo hændur að henni og látið sér svo annt um vel- ferð hennar. Hún viðurkenndi fyrir sjálfri sér að hún þarfnaðist einmitt þess konar umhyggju og verndar sem Jerry hafði sýnt henni. Að sjálfsögðu var hann alltof ungur en eldri maður, sem hefði til að bera sömu kosti og hann, mundi hæfa henni vel. Ef hún hitti slíkan mann gæti hún hætt að leika sér að óþokkum eins og köttur að mús. Hún hafði að vísu gam- an af því en gerði þaö fyrst og fremst til að geta haft nóg fé handa á milli og lifað því lífi sem hún var vön. Hún hrökk upp úr hugleiðingum sínum, lyfti brúnum og sagði við tómt herberg- ið: „En svona er lífið. Því verður víst ekki breytt." Hún var nýkomin inn á baðherbergið og var í þann veginn að fara aö pakka niður snyrtidót- inu sínu þegar barið var að dyrum. Hún þaut fram og opnaði dyrnar upp á gátt og ætlaði að fagna Jerry innilega. En þaö var ekki Jerry sem stóð þarna í dyrunum. Það var gamall karlfauskur, sennilega um sjötugt. „Ég sagöi þeim að senda Jerry upp til mín,“ sagði hún vonsvikin. „Það er því miður ekki hægt,“ sagði gamli maðurinn. „Hann er bölvaöur flautaþyrill, strákurinn; sennilega einn af þeim sem tollir hvergi. Hann sagði upp og fór fyrir klukkutima. Sagði bara bless og var farinn; engin skýring og ekki neitt;“ „Hvað segið þér?“ „Eina sem hann skildi eftir voru skilaboö til yðar. Eruð þér ekki frú Beauvais?" „JÚ.“ „Gjörið þér svo vel.“ Hann fékk henni lítinn pakka með brúnum umbúðapappír og teygju utan um. Henni hlýnaði um hjartaræturnar. Hvað þetta var fallega gert af honum! Gjöf frá Jerry aö skilnaði! Hún opnaði pakkann og varð undr- andi, þegar hún sá innihald hans: Tannbursti! „Ég skil þetta ekki,“ tautaði hún en á samri stundu skildi hún hvernig í öllu lá. Hún hljóp inn í baöherbergið. Allt var á sínum staö: naglalakkið, púöurdósin, hárlakkið...allt nema eitt. Það vantaði tannburstann! Hún hélt að hún mundi falla I öngvit. Góða stund stóð hún hreyfingarlaus þar til hún heyrði rödd sem henni fannst hljóma ein- hvers staðar langt í burtu. Það var rödd gamla mannsins: „Það fylgir miði með pakkanum, frú Beauva- is.“ Hún gekk út úr baðherberginu eins og í svefni og greip miðann úr höndum karlsins. Á hann var skrifað meö stórkarlalegu letri: „McGarth vissi ekki hvar hann átti að leita. Þegar þið voruð öll farin leitaði ég - og fann. Bless! Jerry." □ 46 VIKAN 8. TBL. 1990

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.