Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 32
EÐA MÍN?
Mann hlýtur aö vera
æðislegur. Þiö eruð
nýbúin aö kynnast,
hafiö jafnvel ekki kysst hvort
annað góða nótt, samt hefur
þú ákveðiö aö bjóöa honum í
mat. Þetta er þýðingarmikið
skref þar sem þú hitar ekki
ofninn þinn fyrir hvaða mann
sem er. Þú ert öruglega ekki
sú fyrsta. Fortíð hans er mjög
líklega stráð konum með góð-
an vilja en þær hafa dregið
hann á tálar þar sem maturinn
þeirra olli ósjaldan margvís-
legum óþægindum. Þú veist
að hann er í góðum höndum
hjá þér - en veit hann þaö?
Verður hann skelfingu lostinn
þegar þú berð upp boðið?
Brestur hann i grát? Ekki ef þú
fylgir eftirfarandi ráðum.
ÞANNIG Á AÐ
BJÓÐA HONUM
Ófáir karlmenn verða kvíðnir
(táknar þetta einhverja skuld-
bindingu?) þegar þeim er boð-
ið í mat, sérstaklega ef þeir
hafa orðið fyrir tilræði til að
snúast alfarið yfir í grænmetis-
fæði (kvöldverðargestur kval-
inn af of stórum skammti af
laufgrænmeti). Hér koma þrjár
„getur ekki staðist" boðsað-
ferðir:
1. í eigin persónu. Vertu
ofursannfærandi þegar þú
leyfir honum að finna lyktina af
eplakökunni sem þú varst að
taka út úr ofninum. Horfðu á
hann segja já.
2. Símleiðis. Ginntu hann
með hljóðum úr eldhúsinu.
Mest tælandi hljóðin eru brak-
ið í frönskum kartöflum, sax-
aður hvítlaukur og páfagaukur
sem segir „Namm“.
3. Bréflega. Sendu honum
boðskort sem angar af humar-
súpunni þinni.
HVAÐ Á AÐ ELDA?
Allir karlmenn, nema græn-
metisætur og tyrkneskir guð-
spekinemar, eru alætur, fúsir
til að borða hvað sem er svo
lengi sem það ekki (a) hristist
eða (b) ógnar sáðgöngunum.
Þú vilt hins vegar vekja hrifn-
ingu. Nokkrar ráðleggingar:
1. Öruggast. Veldu eitthvað
af grunnfæðutegundunum,
eitthvaö sem hann ber kennsl
á og hann belgist ekki út af.
Það auðveldasta og síst
hræðandi: Steik og salat með
fylltum sveppahöttum. Auð-
velt og jafnvel alveg skot-
helt er fallega skreyttur, þó
frumstæður, tælandi ostborg-
ari.
2. Öruggara. Rétturinn sem
aldrei hefur mistekist. Allar
konur eiga á góðum stað
uppskrift að einum slíkum
rétti. Ef rétturinn er hins vegar
framandi er betra að geyma
hann til betri tíma.
3. Öruggt. Eitthvað sem
reynir á sköpunargleðina og
hugmyndaflugið hjá þér en er
innan skynsamlegra marka.
Ertu viss um að þú ráðir
við önd í piparsósu? Hvernig
var með Creola-rækjuréttinn
sem þig hefur lengi langað til
að reyna með manni sem
kann að meta jalapeno-pipar?
(Aðvörun: Fáir karlmenn eru
ásjálegir með tunguna á kafi í
ísbaði.)
4. Ekki öruggt. Stóra til-
raunin: Réttir úr uppskriftabók-
inni frá Borneo eða öðrum
framandi löndum eru aðeins
viðeigandi ef þú lítur á herrann
sem mús á tilraunastofu en
ekki sem tilvonandi elskhuga.
Frh. á næstu sfðu