Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 12
I'
stendur viö. Einnig eru keyptir
skólabílar og unglingaskólar
styrktir af uppbyggingarfénu.
Stefna barnaþorpanna er
einföld og byggist eins og áöur
segir á því að munaðarlaus
börn þurfi ekki að fara inn á
hæli eða verði gefin til annarra
landa heldur búi við sitt tungu-
mál, sína siði og sína trú.
SOS-samtökin eru algerlega
óháð öllum stjórnmálastefnum
og eru líknarstofnun en ekki
rekin á vegum neins trúfélags.
SOS á íslandi
Þaö var í árslok 1987 að þrír
fulltrúar SOS-barnaþorpanna í
Danmörku komu hingað til að
reyna að hrinda íslenskum
landssamtökum úr vör. Þó
skrifstofan í Vínarborg hefði
lengi haft áhuga á að stofna
SOS-samtök á íslandi var þaö
ekki fyrr en þessir þrír dönsku
frændur okkar gerðu sér ferð
hingað að af stofnun Islands-
samtaka varð. Einn þeirra er
þekktur danskur sjónvarps-
fréttamaður og fyrrverandi
fréttastjóri danska sjónvarps-
ins, Preben Dich, en hann
þekkti hér fólk eftir 20 ára
samskipti við (slendinga.
Danirnir vissu að hér var
mikið velferðarþjóðfélag og að
íslendingar væru ávallt mjög
rausnarlegir þegar um viðvar-
andi vandamál vanþróaðra
þjóða væri að ræða. Ferð
þeirra lyktaði með því að Ulla
Ulla Magnússon formaöur
landssamtaka SOS-barnaþorp-
anna á fslandi.
Magnússon var kjörin formaö-
ur landssamtaka SOS-barna-
þorpanna á fslandi. Ulla er af
dönsku bergi brotin, á danska
móður og íslenskan föður.
Hún fæddist í Danmörku og
ólst þar upp til ellefu ára aldurs
þegar hún fluttist til fslands
ásamt fjölskyldu sinni.
Ullu var síðan boðið til Dan-
merkur til að kynna sér stefnu
samtakanna og hvernig Danir
meðhöndla málin. Danska
deildin hefur einnig lagt okkur
til ýmis gögn en eins og aðrar
þjóðir, sem aðild eiga að sam-
tökunum, eru Danir með í
ákvarðanatöku um hvar þörf
er á aukinni uppbyggingu.
Ulla segir í viðtali við Vikuna
aö vissulega hafi það verið sér
gagnlegt í uppbyggingarstarf-
inu að vera jafnvel heima í
danskri tungu og raun ber
vitni. f nefndinni eru auk for-
manns Páll Sigurjónsson
verkfræðingur, Torfi Ólafsson,
Þórdís Bachmann, Þórður
Harðarson læknir, Garðar Ing-
varsson hagfræðingur og Ás-
geir Jóhannesson forstjóri.
barnaþorpinu í Tehuacan í
Mexíkó mjög rausnarlegar
gjafir og gaf nú síðast 27 þús-
und Bandaríkjadali. Hann vildi
með gjöfinni lýsa yfir stuðningi
sínum við stefnu SOS-sam-
takanna og samstöðu sinni við
hjálparþurfi börn. Þetta barna-
þorp var byggt eftir jarðskjálft-
ana í Mexíkó og þar búa nú 46
börn. Enn er verið aö byggja
við þorpið og reiknað er með
að þegar það verður fullbúið
eftir nokkur ár rúmi það um eitt
hundrað börn á tólf heimilum.
Þau eru hamingjusöm brúðhjónin á þessari mynd. Hún á
foreldra í Evrópu sem hún skrifast á við.
„Sá sem heldur sjálfs-
virðingunni á sér
framtíð“
Danir fögnuðu 25 ára
afmæli dönsku samtakanna í
fyrra en núna styrkja Danir tíu
þúsund börn. Danir hafa styrkt
SOS-samtökin mjög rausnar-
lega og í Danmörku eru rúm-
lega 130.000 styrktaraðilar.
Danir hafa byggt upp heilu
þorpin en meðal danskra
þorpa eru þorp í Mussoorie á
Indlandi og Rwanda í Afríku. í
ræðu, sem Uffe Ellemann
Jensen hélt á 25 ára afmæli
dönsku samtakanna, sagði
hann meðal annars að aðals-
merki SOS-samtakanna væri
sá boðskapur að „sá sem
héldi sjálfsvirðingu sinni ætti
sér framtíð“.
Fyrir utan einstaklingsfram-
lög hafa dönsk fyrirtæki og
starfsmannafélög tekið sig
saman um að styrkja börn og
meðal annars byggði Dan-
marks Radio og TV heilt hús í
Afríku. Síðastliðið ár komu 38
börn úr barnaþorpinu í Vihanti
í Norður-Finnlandi í átta daga
heimsókn til Danmerkur og er
óhætt að segja aö þau hafi
komið, séð og sigrað margt
danskt hjartaö.
Á gullnum vœngjum
söngsins
Hinn heimsfrægi tenór Plac-
ido Domingo hefur gefið
Hver einasta króna
hefur skilað sér“
„Þetta hefur gengið alveg
yfirmáta vel,“ segir Ulla. „Þó
við höfum ekki eytt neinum
peningum í að auglýsa sam-
tökin hér á landi eru þegar
komnir 150 foreldrar á íslandi
og það þó við höfum ekki einu
sinni verið í símaskrá. Einn
maður sem hringdi átti sjálfur
sex börn og tólf barnabörn en
hann vildi samt fá tvö börn.
Foreldrar eru strax farnir að fá
bréf og myndir af „sínum"
börnum og það er mjög
ánægjulegt. Þau fá líka að vita
hvers vegna barnið er komið í
þorpið ef sú vitneskja er fyrir
hendi. Fólk er alla jafna himin-
lifandi yfir því að geta orðið að
liði en þess má geta að litið er
svo á að þau börn sem komast
inn í SOS-barnaþorp séu
raunverulega hólpin. Allir sem
starfa aö þessu máli hér gera
það í sjálfboðavinnu. Strax
fyrsta árið sem við störfuðum
fengum við tækifæri til og gát-
um komið inn í byggingu
læknastöðvar f Eþíópíu en þar
lögðum við fram um 250 þús-
und krónur. Byggingu þessar-
ar læknastöðvar hafa Svíar og
Danir styrkt, auk okkar. Þetta
eru í dag stór og sterk al-
heimssamtök og mjög virt og
hver einasta króna af framlag-
inu með börnunum hefur skil-
að sér óskert til viðkomandi
þorps."
Forsetinn er líka
SOS-barn
Hermann Gmeiner var sjálf-
ur yfirmaður samtakanna í
aðalbækistöðvunum í Austur-
ríki allt til dauðadags í apríl
1986. Hann valdi sjálfur arf-
taka sinn sem reyndar er
SOS-barn og heitir Helmut
Kutin. Hann missti móður sína
tólf ára gamall og kom þá inn á
heimilið í Imst í Austurríki.
Hann ólst þar upp og fór síðan
í viðskiptafræði og hóf störf
innan ferðaþjónustu en þegar
opna átti fyrsta þorpið í Víet-
nam árið 1967 kallaði Her-
mann Gmeiner hann þangaö
til aðstoðar við sig. Helmut
Kutin skipulagði síðan upp-
byggingu barnaþorps f Víet-
nam og vfðar í Asíu og var
valinn forseti alþjóðasamtaka
SOS-barnaþorpanna árið
1986.
Böm sem komast í
barnaþorp eru
raunverulega hólpin
Uppbyggingu barnaþorp-
anna er þannig fyrirkomið að
milli tíu og tuttugu hús eru
byggö í þyrpingu í útjaðri lítils
þorps. Þessi húsaklasi myndar
barnaþorpið og í hverju húsi
eru frá sex og upp í tíu börn.
Börnin eru undir umsjón einn-
ar „móður“ en sett er sem skil-
yrði að sú kona eigi engin börn
sjálf. Konan þiggur laun fyrir
starf sitt og námskeið í barna-
uppeldi eru haldin af sam-
tökunum sem að barnaþorp-
unum standa. Börnin koma
síðan til konunnar á ýmsum
aldri, svipað og ef um systkini
væri að ræða. Konan þarf því
aldrei að taka ábyrgð á fimm
nýfæddum börnum samtímis
svo dæmi sé tekið. Eldri börn-
in hjálpa til við heimilisstörfin
og móðirin tekur síðan við
þeim lífeyri sem börnunum er
sendur og kvittar fyrir hann.
12 VIKAN 13. TBL. 1990