Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 16
Fólk þarf aö gæta vel aö gleðinni og barninu í
sálinni. Maöur þarf aö geta hlegið að mörgu,
jafnvel þó aö þaö séu skuggar á bak við. Það
þarf aö reyna aö finna það út sem vekur gleði
og ánægju.
- Hvaðan ertu upprunnin?
Ég er fædd á Svínafelli í Öræfum. Móðir mín
var þaðan og var dóttir hjónanna þar, Sigurðar
og Sigríðar. Þetta var stórbýli á þá tíð. Það var
austurbær og vesturbær og býlið tengdist
sömu ættinni mann fram af manni. Faðir minn
var fæddur á Fossi á Síðu. Foreldrar hans
voru Guðný Pálsdóttir prests í Hofsdal, en fað-
ir hans var Guðmundur óðalsbóndi á Fossi.
Þar ólst hann upp. Þannig lágu leiðir foreldra
minna saman að hann var póstur. Hann hafði
verið glaðsinna maður og kjarkmikill að
feröast. Þá bjuggu á Sandfelli prestshjónin
séra Sveinn Eiríksson og Guðríður Pálsdóttir
prests í Hofsdal. Þær voru því hálfsystur,
Guðríður og Guðný amma mín. Mamma var
þarna vinnukona, nýkomin úr foreldrahúsum.
Mamma sagði mér að Guðríði hefði verið
mikið í mun að þau faöir minn kynntust sem og
gerðist. Þau kynntust árið 1889 og giftust
sama ár. Þau fluttust til Borgarhafnar í Suður-
sveit. Þar var þá nokkuð þétt byggð og þar
fæddust elstu systkinin en við vorum sjö alls.
Ég er ein á lífi enda er ég yngst.
Ekki voru nú aðstæðurnar alltaf glæsilegar
en faðir minn dó tveimur dögum áður en ég
fæddist, 41 árs gamall. Móðir mín stóð uppi
með barnahópinn og varð að berjast á móti því
að okkur yrði tvístrað en þaö var unnið að því
að koma okkur burt. Hún verndaði okkur og
vermdi, gafst ekki upp og bjó í litla bænum
áfram. Svo kom annað reiðarslag 1910. Þá dó
Sigurður, elsti bróöir minn, snögglega. Ætli
það hafi ekki verið heilabólga. Það var nú
læknisleysi þá. Þetta urðu tildrögin að því að
móðir min hætti að búa. Það var reyndar ýmis-
legt annað sem kom til.
Við fórum að austan 1911 til Sveins á Ásum
í Skaftártungum. Það var þannig að mamma
var búin að vera í mikilli vináttu við fólk föður
míns. Sveinn og pabbi voru systrasynir. Þetta
fólk vissi um hagi mömmu þarna fyrir austan
og þar með fórum við að Ásum. Ég man að
Sveinn kom 14. maí með hesta til að sækja
okkur en fylgdarmaður hans var Helgi á
Núpum. Við nutum mikillar vinsemdar og hjálp-
ar frá þessum ágætu mönnum. Móttökurnar,
sem við fengum þegar við komum að Ásum,
voru eins og ég get miðað við þjóðhöfðingja
sem núna eru að ferðast á okkar landi, en
kostnaðurinn kannski eitthvað minni.
- Varstu lengi á Ásum?
Þarna var ég til fimmtán ára aldurs. Þegar ég
kom að Ásum voru börn þeirra Sveins og Jó-
hönnu orðin fimm. Árið eftir komu þau svo sem
vinnufólk að Ásum systkini mín, Sigríður og
Páll. Þá varð gleði í hjarta móður minnar því
að þá hafði hún náð saman hópnum aftur.
Mig langar til að segja þér hvað kom fram í
mínu lífi síðar meir. í Svínafelli, sem í mínum
huga er fallegasti staður á íslandi, fallegri en
Skaftafell sem núna er orðinn þjóðgarður,
fossa lækirnir niður brekkurnar og landið er
fallega gróið.
Þegar ég kom að Ásum stóð bærinn á eins
konar tanga út í Ásavatn. Þarna kom ég í nýtt
umhverfi og þar sást ekki skógur og þar var
enginn foss nema lengra frá. Ég hafði misst
pabba minn, en leiksystkini mín áttu pabba.
Mér fannst ekkert athugavert við þetta þá,
Ég held það hjálpi
mikið til með aldurinn að
hafa létta og góða lund.
Fólk þarf að gœta vel að
gleðinni og barninu í
sálinni.
pabbi var hjá Guði. Manni var kennt að trúa því
hvernig umhorfs væri þar og um annað var
ekki aö ræða. Ég kunni að meta það síðar
hvað Sveinn var góður við mig, alveg eins og
sín börn. Þetta fólk var mér afar gott. Ég átti
góða móður en ég saknaði pabba míns. Það
vó því þungt hvað fólkið á Ásum var mér gott,
en það skynjaði ég ekki fyrr en síðar. Ég fór frá
Ásum með sárum trega. Þetta voru gleðistund-
ir.
Ég fermdist í Grafarkirkju ásamt tveim
öðrum. Fermingarsystkin mín voru Kristín
frá Búlandi og Eiríkur sem lifir enn. Hann varð
mikill hagleiksmaður og vann með Bjarna í
Hólmi við raflýsingu á mörgum sveitabæjum.
Krakkar fóru snemma að vinna á þessum
árum, unnu við allt sem til féll, smalamennsku
og fleira. Ég fór ásamt móður minni frá Ásum
1915.
- Hvert lá leiðin frá Ásum?
Þá fórum við í Mýrdalinn, að Skammadal til
ágætishjóna. Bóndinn, Sigurður, var bróöir
Jóhönnu á Ásum. Mamma hafði hug á að setj-
ast að í Vík og fékk þar leigt eins og gengur en
ég var í Skammadal í eitt ár. Ég hefði gjarnan
viljað vera þar lengur en þá var ég að hugsa
um mömmu. Svo var annað að hið mikla höf-
uðból, Suðurvík í Mýrdal, sem var eins og
Gullna hliðið í leikritinu, var þannig að þeir
unglingar sem komust þangaö inn og þeir sem
komust þar að sem vinnufólk á unga aldri
dvöldu í þrjátíu eða fjörutíu ár. Mér þótti
ósköp vænt um að komast til Víkur og ekki síst
inn á þetta myndarheimili. Þetta var einstakt
heimili og hverjum var ætlaö starf. Það voru
margar vinnukonur og margir vinnumenn en
gekk allt svo hljótt fyrir sig og allt sem gera
þurfti var sjálfsagt.
Engjarnar voru fyrir utan Reynisfjall og ég
minnist þess þegar maður var að ganga yfir
fjallið á mánudagsmorgnum. Það var tjaldað
úti á bökkunum og þar vorum við heilu vikurn-
ar, allur þessi stóri hóþur frá Suðurvík. Það var
eldað þarna í tjaldi og svo vorum við líka með
skrínukost. Þetta var allt mjög gaman. Svo
varð að flytja sig á teiga fjær þegar búið var að
heyja allt þarna suðurfrá. Svona gekk lífið. Svo
var komið heim á laugardagskvöldum en þaö
var alltaf allt í föstum skorðum. Halldór bóndi
var rólegur dugna’ðarmaður og séður á öllum
sviðum og Guðlaug, húsmóðirin, eins og engill
sem öllum vildi gott gera.
- En svo fluttirðu þig um set frá Stóruvík?
Svo átti aö fara að mennta sig eitthvað frek-
ar þó að það þætti alltaf góð menntun aö vera
á góðu heimili. En ég fórtil Reykjavíkur 1919.
Þar átti ég að fara í Kvennaskólann. Það var
búið að sækja um en þaö gekk nú ekki. Þá fór
ég að vinna á Uppsölum sem var matsölustað-
ur. Þá þóttist ég vera að læra matreiðslu hjá
þeim frænkum Þórunni og Hólmfríði sem voru
prýðilegar matreiðslukonur. Þar var þó engin
músík eins og á Hótel íslandi og Hótel Skjald-
breið. En staöurinn var eftirsóttur út af veiting-
unum. Þetta var einmitt þann vetur sem voru
þessi sextán skáld í Menntaskólanum, Tómas
Guðmundsson, Sigurður Einarsson og fleiri.
Og þaö var svolítið gaman þá. Ég var þarna í
eldhúsinu og það átti víst að vera einhver
menntun að komast þarna inn, að minnsta
kosti fékk ég ekkert kaup en átti eitthvað að
læra. Það var gaman að því að stundum þegar
við snerum við undirskálunum höfðu verið
skrifuð á þær Ijóð og vísur. Sumt af því hefði
ég vilja muna núna. Það var þó ekki verið að
yrkja til mín heldur annarra.
Þeir komu þarna oft saman ungu skáldin til
að drekka kaffi og fá heimabakaðar kökur,
bæði kleinur og pönnukökur, sem fékkst víst
ekki nýbakað í hinum húsunum. Rósa, kona
Helga Hjörvars, var búin að vinna þarna áður
og hún hljóp stundum í skarðiö ef vantaði fólk
til að bera fram og svoleiðis. Ég minnist þess
þegar Helgi Hjörvar var að koma þarna inn,
heldur lágvaxinn en það var allt í gleði í kring-
um hann. Helgi var kennari í Kennaraskólan-
um. Hann var alveg einstakur, svo glaðvær og
skemmtilegur enda var honum fagnað þegar
hann gekk inn í veitingasalinn.
- Þú hefur þá kynnst manninum þínum
þegar þú komst til Reykjavíkur?
Já, en hann var úr Mýrdalnum. Þegar ég
kynntist honum var hann búinn að vera á skip-
um innanlands og utan. Byrjaði á skútum, sem
var vfst ekki beysið, en komst svo í siglingar til
Ameríku og sigldi víða, til Frakklands og fleiri
landa. Svo var hann kominn heim og var að
fara á varðskipið Þór. Hann var vel látinn svo
að hann þurfti aldrei aö standa lengi á hafnar-
bakkanum til að leita að vinnu. Hann var mat-
sveinn á þessum árum.
í Reykjavík ætluðum við aö búa. Við fengum
lóð við Skólavörðustíginn og létum teikna hús
og svo átti að fara að byggja. Maöurinn minn
hét Jón Jónsson. Hann var búinn að læra silf-
ursmíði hjá Gísla Gíslasyni frá Óseyrarnesi.
Ég man vel eftir teikningunni að húsinu. Ég
var ósköp hamingjusöm þó að ekki væri um
stórt hús að ræöa. Mér fannst ég hafa allt til
alls til að komast áfram í lífinu. Maðurinn minn
var kunnugur mörgum og þekkti til margra
verka. En forlögin gripu i taumana og áætlanir
breyttust. Við fórum austur og það var byggt
16 VIKAN 13. TBL. 1990