Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 61
hverjum er yfirskriftin yfir löng-
um kafla um Warren þessi:
FESTIÐ SÆTISÓLARNAR
OG HALDIÐ í HATTINN -
ÞETTA ER SÁ STÓRI!!!
Meðal þeirra sem hann á að
hafa komist yfir eru Britt
Ekland, Goldie Hawn, Kate
Jackson, Brigitte Bardot, Di-
ana Ross, Liv Ullman, Cand-
ice Bergen og Carly Simon
(sem sagt er að hafi skrifað
lagið „You’re so Vain“ um
Warren). í bókinni er einnig
haft eftir Shirley McLaine,
systur hans, að hún vildi óska
þess að þau Warren fengju aö
leika saman í kossaatriði „svo
hún gæti komist að því af
hverju þær eru allar veinandi".
En þótt Shirley McLaine geti
ekki talað um bólfimi Warrens
af eigin reynslu eru þær þó
svo margar sem það geta að
ummælunum hefur verið safn-
að saman og fara nokkur
þeirra hér á eftir.
Richard Sylbert kvik-
myndaframleiðandi: Fyr-
ir mörgum árum fylgdist Warr-
en alltaf mjög grannt með því í
blöðunum hvaða pör væru að
skilja. Honum tókst sérlega vel
upp með vængbrotnar dúfur.
Þetta er það sem lífið snýst
um hjá honum.
Susan Braudy rithöf-
undur: Ég ætla að segja frá
Warren Beatty í ævisögunni
minni. Ástæðan fyrir velgengni
hans er sú að hann er
skemmtilegri en nokkur annar.
Joan Coliins leikkona:
Hann var óseðjandi. Þrisvar,
fjórum, fimm sinnum á dag, á
hverjum degi, var algengt hjá
honum. Hann gat líka talað í
símann á meöan.
Rita Mae Brown, rithöf-
undur og framarlega í
réttindabaráttu lesbía:
Ég er fræg fyrir að vera ein sjö
kvenna í Hollywood sem ekki
hafa sofið hjá Warren Beatty.
Við höfum talað saman í síma
nokkrum sinnum og hann er
frábær hlustandi. Ég skil vel
hvers vegna konur eru óðar í
hann. Væri ekki frábært ef þær
héldu ráöstefnu?
Mamie van Doren leik-
kona: Hann var einn stór
kirtill. í eitt skipti vorum við að
kela í sófanum - vorum þá að
byrja að vera saman. Allt í
einu reyndi hann að setja
höndina á mér þangað niður.
Það var rosalega stórt. Ég
hugsaði með mér að mig
myndi langa til að strjúka það
en ekki að fá það inn í mig. Ég
var ekki með reglustikuna með
mér en hann var of stór fyrir
mig. Ég kíkti aðeins á það.
Carole Mallory, fyrrum
módel, nú rithöfundur:
Hann er enginn King Kong.
Hann er af meðalstærð en
vinalegri en flestir. Það er ekki
á stærð við Texas, minnir
meira á fjallstind.
Shirley McLaine: Ég hef
ekki séö Warren beran síðan
hann var sex ára. Mér þætti
forvitnilegt að vita hvort hann
er með það sem þær segja
hann vera með.
Elizabeth Taylor leik-
kona: Á eitt til tíu skalanum
myndi ég gefa líkama hans
fimmtán.
Leslie Caron: Atferli Warr-
ens er mjög sérstakt. Hann
hefur alltaf orðið ástfanginn af
stúlkum sem nýlega hafa unn-
ið eða verið tilnefndar til
óskarsverðlauna.
Úr bókinni um Jane
Fonda: Jane og Roger Vad-
im bjuggu í Frakklandi allt árið
1967. Þegar Warren Beatty
kom til Parísar ákvað Jane að
kynna hann fyrir Brigitte Bard-
ot í kvöldverðarboði. Jane
vissi ekki að Brigitte og Warr-
en höfðu hist stuttu eftir að
hann kom til Frakklands og
verið eitthvaö saman. Yfir
borðum hrósaði Warren matn-
„ Allt í einu reyndi hann að setja
höndina á mér þangað niður. Það var
rosalega stórt. Ég hugsaði með mér að
mig myndi langa til að strjúka það en ekki
að fá það inn í mig “
um en gaf í skyn að hann vissi
um eitthvað sem bragðaðist
betur og leit kankvíslega á
Bardot. Jane tókst að dylja
gremju sína en Roger Vadim
sagðist vita nákvæmlega hvað
Warren ætti við og bætti við: „í
þeim efnum er Jane ekki alveg
í sama gæðaflokki og Brig-
itte.“
Michelle Phillips, söng-
og leikkona: Honum finnst
hjónaband ekki vera ánægju-
legur lífsmáti. Hann tekur
lausamennskuna fram yfir.
Helst kýs hann grunn og til-
gangslaus sambönd - honum
finnst þau heilbrigðari eða alla
vega eru það einu samböndin
sem hann getur komið sér
upp.
Liz Smith slúðurdálka-
höfundur: Ekki er hann
vandlátur. Hann sagði ein-
hverjum að hann langaði aö
sofa hjá mér til að sjá hvernig
ég væri.
Mamie van Doren: Hann
er sú manngerð sem mun
deyja í sínum eigin örmum.
Warren Beatty: stundum
hrekk ég upp klukkan fjögur á
morgnana og bregður illilega í
brún vegna þess að ég er að
velta fyrir mér hvar í fjáranum
ég sé.
13. TBL.1990 VIKAN 61