Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 65
stóð í fjarlægasta horni herbergisins. Andlit
hennar hafði nú til þess að gera eðlilegan litar-
hátt. - Sjáðu nú til, sagði hann, munurinn á
rannsókn raunverulegs morðs eins og þess
sem hér hefur verið framið og á þeim sem þú
lest um ...
Annie greip fram í fyrir honum. Hún virtist
æst. - Morðinginn, sagði hún hvíslandi, er
rauöhærður.
Charley leit snöggt á hana. - Já? sagði
hann.
Annie opnaði töskuna sína og tók fram
minnisbók. - Sjáðu neglurnar á honum.
Charley horfði. í lélegu Ijósinu gat hann séð
dökkrauða hárflyksu sem var föst undir nöglun
mannsins. Rautt hár, færði Annie inn í bókina
sfna.
Charley gekk til rannsóknarlögreglumanns-
ins sem var að tala við undirforingjann. - Háriö
undir nöglum hans, sagði hann. - Er það ekki
úr gólfteppinu?
- Auðvitað.
Undirforinginn leit spyrjandi á Charley. -
Annie?
- Já.
Undirforinginn stóð upp. - Þetta er næstum
því of auðvelt.
- Bíddu. Charley hugsaði sig um andartak.
- Kannski þetta sé leiöin. Ég ætlaði að útskýra
fyrir henni aðferðir okkar en hún vill vera snjöll,
látum hana um það. Látum hana hafa þau
gögn er hana vantar.,
Dyrnar opnuðust og götulögregluþjónn hélt
um handfangið. Lítill, áhyggjufullur maöur
gekk inn fyrir á hæla hans.
- Hver ert þú? spurði undirforinginn.
- Whiteman. Theodore Whiteman, hótel-
stjóri.
- Allt í lagi. Bíddu.
Annie mætti augum Charleys, hann kom til
hennar ásamt undirforingjanum. - Sjáið skít-
inn á skónum hans.
- Já, sagði undirforinginn. - Hvað með
þaö?
Annie leit meö lítilsvirðingu á hann og hamp-
aði minnisbókinni. - Það er aðeins á einum
stað í allri New York, sem þú getur fundið
þennan rauða leir. I Suöurgötu ... hún færði í
minnisbókina, við hafnarsvæðið í Suðurgötu.
- Mjög athyglisvert, sagði undirforinginn al-
varlegur. - Þú myndir álíta að hann hefði verið
í Suðurgötu nýlega. Kannski morðinginn hafi
einnig átt þar leið um.
- Mjög sennilegt, sagði Annie. - Og morð-
inginn var hér klukkan 7.14.
Undirforinginn opnaði munninn hægt, svo
lokaði hann honum og sagði varlega. - Þú átt
við ... hvernig?
- Úrið hans, sagði Annie, það stansaði þeg-
ar hann var myrtur.
Undirforinginn kinkaði kolli viðurkennandi til
Annie. - Góð stúlka, sagði hann. - Haltu
svona áfram. Hann kinkaði kolli til Charley og
þeir gengu að borðinu þar sem einn leynilög-
reglumannanna stóð.
- Hvað um þennan leir? spurði Charley.
- Svona án þess að hugsa mig um, sagði
undirforinginn, gæti ég sagt þér frá fimmtíu
stöðum í borginni þar sem þú getur fundið
rauðan leir.
Lögreglumaðurinn við skrifborðið leit upp.
- Hvernig stóð á því að úrið hans stansaði,
Eddie? sagði Charley.
Leynilögreglumaðurinn yppti öxlum. - Hann
hafði ekki trekkt það. Ég gáði að því.
Undirforinginn brosti hamingjusamur til
Charley. - Halló, Hercule, sagði hann. Hann
sneri sér að hótelstjóranum. - Hefur nokkur
heimsótt hann?
- Já.
- Hvernig stendur á því?
- Hann hefur verið hérna áður.
- Vitið þér nokkuð um hann?
- Ekkert.
^tjörnuspá
- Töluðuð þér við hann í dag?
Hótelstjórinn kinkaði kolli. - í sima.
- Hvenær?
- Um það bil hálfátta.
- Um hvaö?
- Hann skuldaði símareikning frá því að
hann var hérna síöast. Ég bað hann um að
borga.
- Hvað sögðuð þér?
- Ég sagði: Þetta er hótelstjórinn. Það er
okkur ánægja að hafa yður hér aftur. Það er
hérna smáreikningur... svo greip hann fram í
fyrir mér.
- Hvað sagði hann?
- Hann sagði: Ókei, Þeó, seinna.
- Þeó?
- Já, ég er kallaður það. Hann þekkti mig.
Undirforinginn horfði á hótelstjórann andar-
tak, svo sneri hann sér undan. - Vertu hér í
nágrenninu, sagði hann. Hann gaf einum
leynilögreglumannanna merki og hann kom.
- Lou? Charley? sagði undirforinginn. -
Hvert er ykkar álit?
Charley yppti öxlum. - Rútína, sagði hann. -
Smáglæpamaður sem hefur náð í peninga. Öll
fötin hans eru ný. Sammála, Lou?
Hinn leynilögreglumaðurinn kinkaði kolli.
- Svo kemur hann sér fyrir hér, hélt Charley
áfram. - En það eru engir peningar hérna
núna. Sammála Lou?
Lou kinkaði kolli aftur.
- Svo... Charley yppti öxlum einu sinni
enn. - Einhver sendi hann yfir um og hirti pen-
ingana. Kannski sá hafi einmitt átt peningana.
Undirforinginn leit spyrjandi á Lou.
- Já, ætli það hafi ekki verið eitthvað þessu
líkt, sagði Lou.
- Jæja, við náum honum einhvers staðar
fyrr eða síðar, sagði undirforinginn. - Hefur
fréttin verið send?
- Fyrir hálftíma.
- Gott. Undirforinginn kinkaði kolli til Lou og
Framhald á bls. 69
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þú skalt ekki vera í miklu
fjölmenni næstu daga. Þú hefur
nóg að gera heima við og þarft
að sinna verkefnum sem setið
hafa á hakanum. Þér hættirtil að
láta óvarleg orð falla.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú lendir í samkvæmi þar
sem þér finnst þú vera eins og illa
gerður hlutur. Þér hættir til að
draga þig inn í skel ef þér líður
illa. Það leysir engan vanda. Þú
verður að vera opinn og hrein-
skilinn.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Ákveðin persóna sækist
mjög eftir félagsskap þínum. Þú
skalt meta stöðuna óháð því sem
aðrir hafa að segja um málið.
Öfund er ill sýki sem herjar á
marga og spillir ýmsu.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú hefur verið í alveg
ómögulegu skapi þessa dagana.
Þínir nánustu hafa læðst á tán-
um í kringum þig af þessum
sökum. Bættu nú ráð þitt og
sýndu þeim einhvern áhuga áður
en það er um seinan.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Þér er ( nöp við einn sam-
starfsmann þinn. Hann hefur
lengi stundað að skjóta að þér ill-
kvittnum athugasemdum. Þér
gefst færi á að koma honum að
óvörum ef þú heldur rétt á
spöðunum.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Maður nokkur hefur sýnt
þér mikla athygli og hann mun
veita þér ómetanlegt tækifæri til
að sýna hvað í þér býr. Þú ert
samviskusamur og þó að þér
finnist þú tímabundinn skaltu
haida því áfram.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Það er hætt við að þú
megir teljast sekur um að fylgjast
ekki nægilega vel með. Það verð-
ur til þess að fólk verður þreytt á
að tala við þig. Reyndu að bæta
úr þessu hið snarasta.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Þú þarft að þiggja fjár-
hagsaðstoð og það fer mjög í
taugarnar á þér. Það þýðir ekkert
annað en að leggja stoltið á hill-
una og hjálpin er veitt með góðu
hugarfari. Hagur þinn mun
vænkast.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú ert ekki nægilega vel
á þig kominn líkamlega og þarft
að ráða bót á þeim málum. Fram-
undan er sumarfrí. Þó veðrið sé
ekki nógu skemmtilegt er óþarfi
að láta það eyðileggja fyrir sér
fríið.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Einn ættingi þinn ætlast
til nokkuð mikils af þér þessa
dagana. Þú verður að taka því
með þögn og þolinmæði því
hann mun launa þér það riku-
lega. Vikan verður að öðru leyti
daufleg og erilsöm.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Einhver veikindi hafa
hrjáð þig upp á síðkastið. Það er
þó ekkert alvarlegt og mun ekki
hafa nein áhrif á framtíðaráætl-
anir þínar. Einhver uppákoma á
næstu dögum mun hafa
skemmtilegar afleiðingar.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Það hefur farið lítið fyrir
þér í vinnunni nú um nokkurt
skeið. En þar sem þú hefur unnið
verk þitt vel, án þess að breiða þá
staðreynd út, er hætt við að þú
sért vanmetinn. Láttu það ekkert
á þig fá.
13. TBL.1990 VIKAN 65